Bæjarins besta - 14.09.1988, Blaðsíða 4
4
BÆJARINS BESTA
BÆJARINS BESTA, óháð vikublað á Vest-
fjörðum. Útgefandi: H-PRENT sf, Suðurtanga
2, 400 ísafjörður, S 4560. Ritstjórar og
ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson og
Halldór Sveinbjörnsson. Blaðamaður: Vigdís
Jakobsdóttir. Útgáfudagur: Miðvikudagur. Rit-
stjórnarskrifstofa og auglýsingamóttaka að
Suðurtanga 2, ® 4570 og er svarað allan sólar-
hringinn.
Setning, umbrot og prentun: H-prent sf, Suður-
tanga 2, 400 ísafjörður.
RITSTJÓRN
Neðstikaupstaður
Upp úr því að íslendingar fóru almennt að hafa pcninga milli
handa greip þá ómótstæðileg löngun til að afmá fortíðina,
þurrka út rnuni og minjar, scm minntu á búskaparhætti forfeðr-
anna. Þennan uppskafningshátt nýríkra tileinkaði fjöldinn sér
til að undirstrika umskiptin frá torfkofum og timburhjöllum yfir
í steinkassa ogglerhallir nútímans.
Sem beturfcr höfum við átt ogeigum fólk, sem gerirsérgrein
fyrir gildi sögunnar og telur feng að varðveislu gamalla muna og
húsa, sem segja meira en mörg orð um daglegt líf og baráttu ís-
lensku þjóðarinnargegnum aldir. Um starf. þrautsegju ogelju,
sem lagði grunninn að velferðarþjóðfélagi nútímans. Velferð,
sem við kunnum ekki að meta og misnotum í ríkum mæli.
Þessu fólki cigurn við að þakka stofnun Sögufélags ísfirðinga,
18. janúar 1953. Ári fyrr stofnuðu sýslunefndir Norður- og
Vcstur-ísafjarðarsýslna Héraðsskjalasafnið. Sömu aðilarstofn-
uðu Byggðasafnið 1955. Ársrit Sögufélags ísfirðinga kom fyrst
út 1956. Sögufclagið taldi þá 38 félaga. I dag eru þeir yfir 800.
Frá upphafi hefur það verið gæfa nefndra stofnana, að þar hafa
verið valdir menn í fyrirrúmi.
Friðun Neðstakaupstaðarhúsanna var þarft verk. Endurnýj-
un þeirra hefur skilað sér vel á veg þótt mikið verk sé óunnið.
Parna er kjarni, sem vcrt er að vinna út frá. Sjóminjasafnið í
Turnhúsinu lofargóðu.
Mcðal þess sem tæknivæðingin hefur rutt úr vcgi eru gömlu
cldsmiðjurnar. Ein slík er þó tilTNeðsta og í svo góðu ástandi
að trúlega mætti hefja þar vinnu á morgun. Því er hcr með bcint
til viðkomandi aðila, hvort ckki sé rétt að bæta eldsmiðjunni í
safnið. Smiðjur af hennar tagi eru ckki á hverju strái.
En horfum lengra. Landvinningar í Suðurtanga gefa ýmsa
möguleika. Einhverntíma kemur að byggingu safnhúss yfir
byggðasafnið. Hvers vegna ekki að ætla því stað í Neðsta? Þang-
að mætti li'ka hugsa sér flutning gamalla húsa, sem af skipulags-
ástæðum þyrfti að fjarlægja annars staðar. Nýbyggingar í
„gömlum þjóðlegum stíl“ kæmu einnig til greina.
Við skulum halda áfram endurreisninni í Neðstakaupstað.
Þar höfum við möguleika til að tengja fortíðina á lifandi hátt við
nútímann hverju sinni. Uppbyggingin er rétt að byrja. Minn-
umst árvekni þeirra manna, sem að henni hafa staðið, þegar að
því kemur að skipuleggja næsta nágrenni hins endurreista
Neðstakaupstaðar.
s.h.
Félagsstarf aldraðra ísafirði:
Þakktr til
ferðafélaga
ísfirskir þátttakendur í ferða-
lagi í Reykjanes dagana 16.- 20.
ágúst síðastliðinn senda þakkir
til ferðafélaga frá Blönduósi,
Skagaströnd, Bolungarvík,
Súðavík, Suðureyri, Reykhólum
og Selfossi fyrir ánægjulega sam-
veru og samvinnu.
Einnig sendum við þakkir til
þeirra sem styrktu ferðalagið svo
sem Kaupfélag fsfirðinga,
Gamla bakaríið og bæjarstjórn
Bolungarvíkur. Ekki skal síst
þakkað starfsfólki hótelsins, Sr.
Baldri, Jens í Kaldalóni og bíl-
stjóranum okkar Ásgeiri Sig-
urðssyni.
Hittumst heil á næsta móti
aldraðra.
f.h. Félagsstarfs aldraðra
Málfríður Halldórsdóttir
Brids:
Yel heppnað
Vestfjarðamót
Helgina 3.-4. september sl.
var haldið Vestfjarðamót í tví-
menningsbrids. Mótið var haldið
á Laugarbóli í Bjarnafirði við
Hólmavík.
Þátt tóku 27 pör alls staðar að
af Vestfjörðum.
Sigurvegararnir höfðu hlotið
að lokinni keppni 104 stig. það
voru þeir Jóhannes Ó. Bjarna-
son og Hermann Sigurðsson frá
Þingeyri.
í öðru sæti urðu Tálknfirðing-
arnir og bræðurnir Geir og Sím-
on Viggóssynir. Þeir hlutu 95
stig.
Einar V. Kristjansson og Arn-
ar Geir Hinriksson frá ísafirði
fengu 92 stig, og urðu þar með í
þriðja sæti.
Kristinn Kristjánsson og Rún-
ar Vífilsson urðu í 4. sæti. Fengu
90 stig. Þeir eru frá ísafirði.
í 5. sæti höfnuðu svo heima-
mennirnir Guðbrandur Björns-
son og Jón Stefánsson. Þeir
fengu 81 stig.
Keppnisstjóri var Vigfús
Pálmason.
Keppnin fór í alla staði mjög
vel fram, og að sögn þeirra sem
voru viðstaddir var hún Hólma-
vík og Hólmvíkingum til sóma.