Bæjarins besta - 14.09.1988, Blaðsíða 20
20
BÆJARINS BESTA
iMifjóióm:
Elísabet Gunnarsdóttir
kynnir skipulagshngmyndir
- bæjarsjóður hefur ráðið hana til að vinna
nokkur verkefni fyrir ísafjarðarkaupstað
Eftir átta ára nám hefur ung
ísfirsk kona; Elísabet Gunnars-
dóttir, nú útskrifast sem ar-
kítekt.
Elísabet lagði stund á arkí-
tektúr fyrst í Skotlandi við Ed-
inburgh college of art og síðan í
Frakklandi í Ecole d’architec-
ture Paris la Villette.
Hún er nú komin aftur heim
á ísafjörð og ætlar að opna hér
teiknistofu. Pessa dagana leitar
hún að hentugu húsnæði undir
reksturinn. í dag notast hún við,
til bráðabirgða, lítið herbergi
sem hún hefur á leigu í húsi
Brunabótafélags íslands.
Elísabet vakti athygli ísfirð-
VEFSTOFA
GUÐRÚNAR VIGFÚSDÓTTUR
HAFNARSTRÆTI 20
SÍMI 3162
Vegna lokunar 25. september
eru eftirtaldir hlutir til sölu:
★ Pfaff saumavélíborði ★ Skrifborð
★ Toyota saumavél ★ Vefstólar
★ Toyota overlook vél sem sker
★ Stórvinnuborð ★ Ýfingarvél
★ Innréttingar í verslun.
TÓNLISTARSKÓLI
ÍSAFJARÐAR
TÓNLISTARNEMAR - FORELDRAR
Skólasetning Tónlistarskólans
fer fram sunnudaginn 18. sept.
kl. 17 í sal Grunnskóla ísa-
fjarðar.
Allir velunnarar skólans
velkomnir.
Skólastjóri.
inga á sér þegar hún kom heim,
með því að opna sýningu í
Slunkaríki, þar sem hún hefur til
sýnis teikningar sem eru hluti
lokaverkefnis hennar frá skólan-
um í París. Það sem hún sýnir
eru hugmyndir hennar að skipu-
lagi strandlengjunnar og pollsins
við ísafjarðarkaupstað. Sannar-
lega áhugavert verkefni, og hug-
myndirnar eftir því. Bæjarbúar
hafa sýnt hugmyndunum mikinn
áhuga og hefur sýningin verið
mjög vel sótt.
Á fundi bæjarráðs um fjármál
10. ágúst sl. var bæjarstjóra falið
að undirbúa ákveðin verkefni
sem Elísabet kemur til með að
vinna á næstunni fyrir bæjarsjóð
ísafjarðar. Þetta er gott tækifæri
fyrir nýútskrifaðan arkítekt til
að láta til sín taka.
Að sögn Elísabetar er hér að-
allega um að ræða verkefni sem
snúa að deiliskipulagi. En fyrir
þá sem ekki vita hvað það er, þá
er það smærri eining innan aðal-
skipulags. í því felst að skipu-
leggja íbúðahverfi, útivistar-
svæði o.fl. í þeim dúr. í
deiliskipulagi er stuðst við sam-
þykkt aðalskipulag.
Sýning Elísabetar í Slunkaríki
stendur fram á n.k. sunnudag.
Glisabet Gunnarsdóttir á sýningu sinni í Slunkaríki.
Útgáfa:
Tímaritið Þroska
hjálp komið út
Tímaritið Þroskahjálp, 4.
tölublað 1988, er komið út.
Meðal efnis í blaðinu er viðtal
við þriggja barna móður frá
Vestmannaeyjum, en fjölskyld-
an bjó um nokkurra ára skeið í
Noregi. Rannveig Traustadóttir
í Ameríku spjallar við tvær
mæður vestan hafs um þátt for-
eldra í fræðslu, ráðgjöf og upp-
lýsingamiðlun til annarra for-
eldra. Elín Stephensen
skólasafnskennari ritar athyglis-
verða grein um skólasöfn og
þroskahefta nemendur. Einnig
birtist erindi Jóns Björnssonar
félagsmálastjóra á Akureyri,
„Skip á leið til Parísar" í þessu
tölublaði.
Tímaritið Þroskahjálp kemur
út sex sinnum á ári. Það er sent
áskrifendum og fæst í lausasölu í
bókabúðum og blaðsölustöðum
víða um land. Áskriftarsíminn er
91-29901.