Bæjarins besta


Bæjarins besta - 14.09.1988, Qupperneq 12

Bæjarins besta - 14.09.1988, Qupperneq 12
BÆJARI3MS BESTA 12 Einar Ólafsson, ásamt krökkunum átta sem voru í sumarskíðaskólanum í sumar. Lesendur: Skíðafréttir í september Nú er fótboltavertíðin á enda og Jói Torfa og hans menn komn- ir upp í þriðju deild. Er það vcl gert hjá strákunum. Sundliðið stendur í ströngu eins og vcnjulega og skilst mér að það gangi vel eins og undan- farin ár. En hvað skyldi skíða- fólkið vera að gera þessa dag- ana? Fyrst ber að nefna að greinar- höfundur hefur ákveðið að hvíla sig frá öllum æfingum í bili a.m.k., en hefur snúið sér að þjálfun skíðagönguliðsins hér á Isafirði. Fað lið sem hefur staðið sig svo vel undanfarin ár og hirti nærri öll verðlaun á íslandsmót- unum í vor sem leið. I blöðum landsins voru uppi flennistórar fyrirsagnir um þann árangur. Ætla mætti að þessir krakkar tækju lífinu með ró því enn er langt í fyrsta mót eða nærri sex mánuðir. En sú er ekki raunin. Æfingarnar hjá krökkunum byrjuðu í byrjun júlí. Því sagt er, að skíðamaðurinn fæðist á sumr- in. Það er að skiljast hjá þessum krökkum sem æfa í dag. Samæfingar hafa verið þrisvar í viku en þau elstu hafa æft meira en það. Nú, svo eru margir af yngri krökkunum í fótbolta líka. I enduðum júní voru þeir Daníel Jakobsson, Hlynur Guðmunds- son og Óskar Jakobsson ásamt fimm krökkum frá Siglufirði og Akureyri með í sumarskíðaskóla Einars Ólafssonar sem haldinn var hér á ísafirði. Þetta er skóli sem er orðinn fastur liður í þjálf- un skíðagöngukrakkanna á ís- landi. Um verslunarmannahelgina fór greinarhöfundur með krakk- ana í útilegu til Hesteyrar og Aðalvíkur þar sem hópurinn átti mjög góða daga saman. Þetta var liður í að efla hópandann og breyta til í æfingum. Hvað framhaldið varðar er ætlunin að halda samæfingunum áfram þrisvar í viku, á þriðju- dögum, fimmtudögum og laug- ardögum, og er öllum velkomið að mæta og hlaupa með okkur. í september verður svo haldin helgarsamæfing frá föstudegi til sunnudags. Það verður líka gert í nóvember og desember. Þá verður vonandi kominn einhver snjór. Milli jóla og nýárs er ætlunin að fara æfingaferð til Svíþjóðar og er öllum heimilt að fara þá ferð. Krakkarnir ætla sjálf að safna fyrir þeirri ferð með alls- konar fjáröflun og vona ég að bæjarbúar taki vel á móti krökk- unum og styðji áfram vel við sitt skíðafólk. í lok janúar eða í byrjun febrúar byrja svo mót vetrarins og þá uppsker sá sem hefur sáð rétt yfir sumarmánuð- ina. Hvað einstaka skíðamenn varðar má fyrstan nefna Rögn- vald Ingþórsson, sem er eini ís- firðingurinn í landsliðinu og keppir í fyrsta sinn i fullorðins- flokki í vetur. Hann hefur aldrei æft eins mikið og í sumar, og er orðinn enn sterkari en áður. Hann hefur verið á landsliðsæf- ingum norður í Fljótum í júní og júlí. í fyrra skiptið æfði landslið- ið mikið á snjó sem er nauðsyn- legt ef árangur á að nást á al- þjóðamælikvarða. Nú í septemb- er er Rögnvaldur með landsliðinu í Austurríki þar sem þeir verða í þrjár vikur á Dachsteinjökli þar sem er hálfgert gósenland fyrir gönguskíðafólk. Það má vænta mikils af Rögnvaldi í vetur ef heilsan og annað verður í lagi, og er óhætt að segja að þarna sé á ferðinni mikið efni í góðan göngumann. Bjarni Brynjólfsson var á Brjánslæk í sumar og hefur æft sæmilega að sögn hans sjálfs, og keppt mikið í frjálsum og þá aðal- lega í lengri vegalengdunum. Daníel og Öskar Jakobssynir hafa æft einna best fyrir utan Rögnvald og eru mjög samvisku- Við flytjum í Stjórnsýsluhúsið Frá og með mánudeginum 19. september flyst öll starfsemi Fræðsluskrifstofu Vestfjarða- umdæmis í Stjórnsýsluhúsið. Verið velkomin í ný og glæsileg húsakynni. FRÆÐSLUSKRIFSTOFA VESTFJARÐAUMDÆMIS SÍMI3855

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.