Bæjarins besta - 14.09.1988, Qupperneq 14
14
BÆJARINS BESTA
Lesendur:
Verður dagvistunarstofnunum
ísafjarðarkaupstaðar
lokað um miðjan október?
Ég undirrituð, tel ástæðu til að
vekja athygli á því ófremdará-
standi sem nú blasir við dagvist-
unarstofnunum hcr í hæ.
I febrúar s.l fóru forstöðu-
menn dagvistunarstofnanna
fram á að laun þeirra yrðu hækk-
uð í samræmi við laun forstöðu-
manna annars staðar á
landinu.(Pá var ekki miðað við
hæstu taxta forstöðumanna.)
Bæjaryfirvöld hafa ekki séð sér
fært að verða við óskum þeirra.
I júlí s.l. sögðu allir forstöðu-
menn upp störfum sem þýðir að í
október n.k. ganga þeir allir út.
A Bakkaskjóli er búið að vera
forstöðumannslaust síðan 1.
júní, og hefði þá átt að loka því.
Þar sem dagvistunarfulltrúi hef-
ur hlaupið í ska^ðið hefur ekki
þurft að koma til þess.
Þcss má geta að forstöðumaö-
ur sagði starfi sínu lausu vegna
bctri launa við sömu störf annars
staðar. Starfið hefur verið marg
auglýst en ekki hefur verið svo
mikið sem spurt um það.
Sökum þessa hefur ckki verið
hægt að taka inn börn á leikskól-
ann að loknu sumarleyfi og eru
því mun færri börn en ættu að
vera. Enda eru foreldrar og börn
orðin óþolinmóð að bíða.
Hvers eiga foreldrar og at-
vinnurekendur að gjalda? Par
sem þetta ástand hcfur skapast
hvað cftir annað og ekki virðist
áhugi bæjaryfirvalda vera mikill
frekar en fyrri daginn á að koma
þessum málum í viðunandi
horf, sjáum við því á eftir hverj-
um forstöðumanninum á fætur
öðrum og samstarfsfólki.
Þessir áhugasömu forstöðu-
menn hafa gert góða hluti í þess-
um bæ, til dæmis skapað mjög
góðan starfsanda meðal starfs-
fólks. Staðið fyrir skemmtileg-
um uppákomum, börnum, for-
eldrum og starfsfólki til mikillar
ánægju.
Hvers vegna getur ísafjarðar-
kaupstaður ekki staðið undir
sömu launakröfum og aðrir
kaupstaðir á landinu? A meðan
greiðum við hæstu gjöld sem um
getur.
I þeim efnum láta bæjaryfir-
völd sér ekki muna um að skara
fram úr.
Ég vil hvetja bæjaryfirvöld
ísafjarðarkaupstaðar til þess að
koma til móts við forstöðumenn
svo að viðunandi ástand skapist
á stofnununum.
Þórunn Vernharðsdóttir
starfsmaður á Bakkaskjóli
** fV-Á FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
I ÁÍSAFIRÐI
Loksins - loksins
Erum að opna
líkamsræktina.
Skráning í síma 4500.
„Form erfitu betra “
Endurhæfing.
Viðskiptavinir
athugið!
Vegna flutnings á skrifstofu minni frá
Silfurgötu 1, yfir í stjórnsýsluhúsið, 2.
hæð, Hafnarstræti 1, ísafirði, um
næstu helgi, verður skrifstofan lokuð
föstudaginn 16. september n.k.
Skrifstofan verður opnuð í hinu nýja
húsnæði á mánudagsmorgunn 19.
september n.k.
Endurskoðunar- ogbókhaldsstoía
Guðmundar E. Kjartanssonar
Þetta gekk
allt mjög vel
- segir Högni Pétursson réttarstjóri
Fyrstu réttirnar voru í Bolung-
arvík sl. sunnudag. Ljósmyndari
BB var á staðnum og tók með-
fylgjandi mynd.
BB hafði samband við Högna
Pétursson, réttarstjóra og spurði
hann hvernig til hefði tekist.
Högni kvað hafa gengið mjög
vel. Alls voru það um tíu manns
sem fóru í að smala um morgun-
inn, og á annað þúsund fjár safn-
aðist.
Lagt var af stað um kl. átta og
smalað í Seljadalnum, í Miðdal,
og þar í kring.
Réttir byrja heldur fyrr í Bol-
ungarvík nú en þær hafa gert,
því venjulega hefur ekki verið
byrjað fyrr en í kringum tuttug-
asta september.
Næstu réttir í Bolungarvík eru
eftir tvær vikur.
Slátrun í Bolungarvík hefst í
dag, hjá Einari Guðfinnssyni.