Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.12.1989, Side 2

Bæjarins besta - 21.12.1989, Side 2
2 BÆJARINS BESTA Unnur Jökulsdóttir og Þorbjörn Magnússon árituöu bók sína „í kjölfar kríunnar" í Bókhlöö- unni á mánudag. Jólasveinarnir komu til ísafjarðar 9. desember síðastlið- inn og tók á móti þeim mikill fjöldi fólks. Til Bolungarvíkur komu þeir aftur á móti síðastliðinn laugardag. Þar var ungviðið mjög spennt og hafði gaman af komu þeirra. Þessi litli jólasveinn sat hinsvegar rólegur á herðum pabba .íns og hugsaði. Bókasalan: McLean og Guðrún Ásmunds söluhæst ÞAU Unnur Jökulsdóttir og Þorbjörn Magnús- dóttir árituðu ferðabók sína ,,í kjölfar kríunnar" í Bók- hlöðunni á ísafirði á mánu- dag og kynntu hana við- skiptavinum. Bókin greinir frá ferð þeirra á skútunni Kríu um hálfan hnöttinn. Þau hjónin voru búsett á Isa- firði um tíma fyrir all- nokkrum árum. Bók þeirra er sú fjórða söluhæsta samkvæmt saman- tekt Bókhlöðunnar um síð- ustu helgi. Margar af sölu- hæstu bókunum eru ævisögubækur og spennu- bækur eins og sjá má á list- anum: 1. Dauðalestin - Alistair McLean. 2. Ég og lífið - Guðrún Ás- mundsdóttir. 3. Sagan sem ekki mátti segja - Björn Sv. Björnsson. 4. I kjölfar kríunnar - Unnur Jökulsdóttir og Þorbjörn Magnússon. 5. Sendiherrafrúin segir frá - Heba Jónsdóttir. 6. Háskaleg áætlun - Hamm- ond Innes. 7. Skýrt og skorinort - Ind- riði G. Þorsteinsson og Sverrir Hermannsson. 8. Svartur sjór af síld - Birgir Sigurðsson. 9. - 10. Heimsmetabók Guinness og Aflakóngar og athafnamenn. Söluhæstu barna- og ung- lingabækurnar eru þýdd ung- lingabók sem heitir „Ég get séð um mig sjálf“, „Fiðring- ur í tánum" eftir Þorgrím Þráinsson, „Lata stelpan“ og „Fimm hittast á ný“ eftir E. Blyton. Bókasalan hefur verið jöfn og góð allt frá um 12. desember og sagðist Gunn- laugur bóksali Jónasson í samtali við BB ekki geta kvartað. Veðrið hefur líklega haft þau áhrif að margir hafa þegar lokið sínum bókainn- kaupum en eflaust verða ein- hverjir að láta sig hafa það að fara í verslunarleiðangra í brunagaddinum sem nú ríkir síðustu dagana fyrir jól. Patreksfjörður: Lýtingur kemurumjólin Seljavík greiðir 128 milljónir fyrir skipið SELJAVÍK h.f., félag hefur gengið frá samningum sem fyrirtækin Bjarg, um kaup á skipinu Lýtingi Oddi og Fiskvinnslan á NS 250 frá Vopnafirði. Bíldudal stofnuðu í október, Kaupverð skipsins er 128 milljónir. Það átti að vera komið til Patreksfjarðar fyrr í vikunni en brottför tafðist þar sem skipið þurfti að fara í meiri viðgerðir en búist var við. Áætlað var að skipið legði af stað vestur frá Akur- eyri, þar sem það var í slipp, á miðvikudag og ætti því að vera komið til sinnar nýju heimahafnar þegar þetta birtist lesendum. Lýtingur er togskip með alls um 460 tonna kvóta mið- að við þorskígildi, 120 tonna rækjukvóta og síldarkvóta. Hann er smíðaður í Þýska- landi árið 1965 og yfirbyggð- ur árið 1985. Skipið er 214 brúttólestir að stærð. Það byrjar á línuveiðum strax eftir áramótin. Jólin: Svipmyndir frá komu jólasveinanna

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.