Bæjarins besta - 21.12.1989, Blaðsíða 20
AFLAFRÉTTIR
20
BÆJARINS BESTA
ísafjörður:
Guðbjartur er á veiðum og
er væntanlegur inn á föstu-
dag. Hann er svo til búinn
með sinn kvóta og er nú að
fiska tegundir utan kvóta.
Hálfdán í Búð kom inn á
föstudag eftir þriggja daga
túr'Og landaði 51 tonni af
þorski og ýsu. Aflinn fór
allur til vinnslu í Norður-
tanganum.
Orri fór í fimm róðra og
landaði samtals 41 tonni.
Guðný fór í þrjá róðra og
var með um 20 tonn.
Júlíus Geirmundsson er
á veiðum og er væntanlegur
inn á föstudag eða Þorláks-
messu. Veiðar hafa gengið
vel.
Hafdís landaði 29 tonn-
um af slægðum þorski eftir
fimm róðra.
Páll Pálsson landaði á
mánudag um það bil 100
tonnum. Aflinn var bland-
aður. Sett var í fjóra gám.
Páll fer út aftur eftir ára-
mót.
Guðbjörg komst í mok-
fiskirí og landaði á mánu-
dag 260 tonnum. Þar af
voru um 200 tonn þorskur
og 60 tonn ýsa. Sett var í
fimm gáma. Guðbjörg fór
aftur út á þriðjudagskvöld
og kemur inn aftur á föstu-
dag eða á Þorláksmessu.
Siggi Sveins kom inn á
mánudag og landaði rúm
20 tonnum.
Rækjutogarinn Hafþór
var kominn með um 24
tonn þegar síðast fréttist og
er væntanlegur til Akureyr-
ar á föstudag þar eð ófært
er fyrir Horn vegna íss.
Þann 12. desember var
gert mánaðarhlé á rækju-
vertíðinni og síðustu tvo
daga hennar lönduðu 12
bátar 23 tonnum og 372 kg.
af rækju á ísafirði. Á ver-
tíðinni var alls landað 1050
tonnum og 585 kg. (Súða-
vík og Bolungarvík meðtal-
in). Kvótinn er 1530 tonn
og hefjast veiðar á ný 12.
janúar. í byrjun febrúar
verður farið í leiðangur á
Dröfn og að honum og öðr-
um athugunum loknum
verður endurskoðað hvort
bætt verður við kvótann.
Bolungarvík:
Heiðrún kom inn á
mánudag og landaði 55
tonnum. Aflinn var aðal-
lega ýsa. Heiðrún fer út aft-
ur eftir áramót.
Dagrún er á veiðum og
er væntanleg inn á föstu-
dag. Hún fer út aftur á milli
jóla og nýars.
Sólrún er á veiðum og er
væntanleg inn til Akureyr-
ar á föstudag þar sem ófært
er fyrir Horn vegna íss.
Júpiter landaði um 600
tonnum af loðnu á sunnu-
dag. Hann er kominn til
Reykjavíkur og fer ekki út
aftur fyrr en eftir áramót.
Línubáturinn Ljósfari
landaði á mánudag 17
tonnum.
Góður afli hefur verið
hjá línubátum.
í síðustu viku lönduðu
fjórir rækjubátar seamtals 6
tonnum og 346 kílóum af
rækju hjá íshúsfélagi Bolung-
arvíkur.
Súðavík:
Haffari landaði á föstu-
dag 35 tonnum af blönduð-
um afla.
Bessi kom inn á mánu-
dag og landaði um 120
tonnum af ýmsum tegund-
um. Bessi fer út aftur út á
milli jóla og nýárs.
í síðustu viku lönduðu
fimm rækjubátar samtals
10 tonnum og 908 kílóum
af rækju í Súðavík.
Suðureyri:
Ingimar Magnússon fór í
tvo róðra í síðustu viku og
landaði samtals tæpum 9
tonnum af þorski.
Elín Þorbjarnardóttir
landaði á þriðjudag um 85
tonnum af þorski og ýsu.
Elín fer út aftur eftir ára-
mót.
Sigurvon fór í fimm
róðra í síðustu viku og
landaði samtals tæplega 54
tonnum af ýsu, þorski og
karfa.
Flateyri:
Línubáturinn Þórunn fór
í einn róður í síðustu viku
og landaði 5 tonnum.
Jónína fór í fimm róðra
og landaði 14 tonnum hjá
Kambi og 17,4 tonnum hjá
Hjálmi. Vfsir fór í fimm
róðra og landaði samtals 40
tonnum.
Þingeyri:
Framnes kom inn til ísa-
fjarðar á laugardag og
landaði 55,5 tonnum þar og
20 tonnum til Þingeyrar.
Aflinn var blandaður.
Sléttanes landaði í Hafn-
arfirði á sunnudag 110
tonnum af blönduðum afla.
26 tonn fóru á markað en
hitt fór til Siglufjarðar með
bíl.
Línubátarnir hafa ekkert
farið á sjó síðustu viku.
Tálknafjörður:
Vinnslu á afla Tálknfirð-
ings eftir síðustu veiðiferð
ársins lauk fyrr i vikunni og
þá voru keypt nokkur tonn
frá Patreksfirði. Vinnu í
fiskinum lauk svo á mið-
vikudag en engum er sagt
upp á Tálknafirði og unnið
verður við þrif og málning-
arstörf í frystihúsinu fram á
Þorláksmessu og á milli há-
tíðanna.
Línubáturinn María Júlía
er nú búin með sinn kvóta.
Máni fór í þrjá róðra og
landaði samtals 27,4tonn-
um.
Bíldudalur:
Sölvi Bjarnason landaði á
þriðjudag 110 tonnum af
þorski, ýsu og fleiri tegund-
um. Sölvi fer ekki aftur út
fyrr en eftir áramót.
Patreksfjörður:
Brimnes fór í þrjá róðra í
síðustu viku og landaði
15,4 tonnum.
Þrymur landaði 14. des-
ember 39,7 tonnum af
þorski eftir sjö daga á veið-
um og Vestri 37 tonnum
eftir fimm róðra.
Andey fór í fimm róðra
og var með 35,5 tonn,
Tálkni fór í fjóra róðra og
landaði samtals 24,7 tonn-
um.
BB þakkar öllum þeim
sem hafa aðstoðað okkur
við öflun aflafrétta kærlega
fyrir samstarfið á árinu og
óskar þeim, sem og lesend-
um, gleðilegra jóla.
SMÁAUGLÝSINGAR
íbúð til leigu
Til leigu er tveggja herbergja
íbúð í tvíbýlishúsi á besta
stað á Eyrinni. íbúðin verður
lausfrááramótum. Mánaðar-
greiðslur. Upplýsingar í C
4560 eða 4792.
Björn.
Bæjarins bestu kettlingar
Fallegir, vel siðaðir og vel
ættaðir kettlingar óska eftir
framtíðarheimili hjá sóma-
fólki. Kettlingarnir benda
Sveinka á að þeir eru tilvalin
jólagjöf. Allar frekari upp-
lýsingar í CC 7389.
Bátur
Til sölu er trébátur, 2.5 tonn,
3 Elliðarúllur 12 volta einnig
grásleppunet og 8mm blý-
teinar. Allt í mjög góðu
standi. Upplýsingar í <C 4258
á kvöldin.
Sófus.
Sófasett o.fl.
Til sölu er bastsófasett,
2+1 +1. Hvítir skautar nr. 38
og bleikt stelpuhjól fyrir 5-8
ára. Upplýsingar í <C 4258.
Tapað/fundið
Svart kvenarmbandsúr
fannst á Urðarvegi. Eigandi
getur vijað þess í <C 4305.
Píanó óskast
Óskum eftir að kaupa notað
píanó. Uppl. í C 4258.
Videoupptökuvél
Af sérstökum ástæðum er til
sölu RICOH videoupptöku-
vél. Upplýsingar í C 3719
eða4400.
Jósep.
Golfpeysur
Til sölu eru golfpeysur,
merktar Golfklúbbi ísafjarð-
ar. Tilvaldar til jólagjafa.
Gott verð. Upplýsingar gefa
Ernir í C 3696 og Guðríður í
C 3035.
Árshátíð bílstjóra
Árshátíð bílstjóra verður í
Staupasteini 13. janúar nk.
Rokkbændur leika fyrir
dansi. Nánar auglýst síðar.
Nefndin.
Leðurkápa
Til sölu er svört leðurkápa.
Til sýnis í kvenfatadeild
Kaupfélags ísfirðinga. Upp-
lýsingaríZ? 3025.
Nagladekk
Til sölu eru 13” nagladekk.
Notuð einn vetur, 2000.- kr.
pr. stk.Upplýsingarí0 4560
eða 4792.
Björn.
Endurminningar Gunnars
Guðmundssonar frá Hofi
Enn eru fáanleg nokkur ein-
tök af Endurminningum
Gunnars frá Hofi. Fást hjá
Vilborgu í C 4560 og 3936
eða Katrínu í <C 8117.