Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.12.1989, Side 11

Bæjarins besta - 21.12.1989, Side 11
BÆJARINS BESTA 11 Grjóthrun í Óshlíð: Netin héldu en staur og undirstöður stórskemmdust r REYNSLA fékkst á grjótvarnarnet Vega- gerðarinnar á Óshlíð fyrir nokkru. Allstór grjótskriða féll á netið fyrstu vikuna í desember skammt fyrir inn- an ytri vegskálann og hélt netið sjálft þannig að ekkert grjót fór fram á veginn en staur stórskemmdist og und- irstöður hans mölbrotnuðu. Nokkrir metrar af grjót- varnarnetum voru settir upp í sumar en verulega bætt við í október og alls eru netin nú um 200 metrar. Pau eru um fjögurra metra há og eru staðsett í svokölluðum Skriðum og einnig fyrir inn- an ytri vegskálann. „Við búumst við því að þetta verði daglegt brauð, þ.e. að staurar og undirstöð- ur skemmist undir svona álagi, en tilganginum er samt náð því grjótið fer ekki inn á veginn“ sagði Geir Sigurðs- son starfsmaður Vegagerðar- innar í samtali við blaðið. „Þegar fer að vora má búast við töluverðu grjóthruni því grjótið springur í frostinu og þegar fer að hlýna, og sér- staklega í sólbráð, þá hrynur það niður.“ Að sögn Geirs er það stefna Vegagerðarinnar að bæta verulega við netin. ísafjördur: Ákveðið að endurvekja Togaraútgerð ísafjarðar AÐALFUNDUR Tog- araútgerðar ísafjarðar h.f., sem haldinn var í Stjórnsýsluhúsinu á fimmtu- dag, tók þá ákvörðun að hafna tilboði Ishúsfélags ís- firðinga í hlutabréf þess og endurvekja félagið sem hef- ur ekki starfað í tugi ára. Togaraútgerð ísafjarðar var stofnuð árið 1956 en hef- ur aldrei verið með útgerð. Félagið á um 14% hlut í ís- húsfélagi ísfirðinga. Stærsti hluthafi í Togaraútgerðinni er Bæjarsjóður ísafjarðar sem á 42%, íshúsfélagið á 32% og Kaupfélag ísfirðinga á 12% og 47 aðrir hluthafar eiga minna. Fyrir nokkrum árum var kosin skilanefnd á aðalfundi Togaraútgerðarinnar sem í áttu sæti Haraldur L. Har- aldsson, Kristján G. Jó- hannsson og Sverrrir Berg- mann. Nefndinni var falið að ★ ★ KRUSJN: * JÓLADANSLEIKUR ANNAN í JÓLUM KL. 23-03. ALDURSTAKMARK 20 ÁR. HIN ELDHRESSA HLJÓMSVEIT BG-FLOKKURINN SKEMMTI R SNYRTILEGUR KLÆÐNAÐUR - MUNIÐ NAFNSKÍRTEININ OPNUNARTÍMI YFIR JÓLIN AÐFANGADAGUR 24. DESEMBER KL. 1000-1500 JÓLADAGUR 25. DESEMBER LOKAÐ ANNAR í JÓLUM 26. DESEMBER KL. 1200-1630 GAMLÁRSDAGUR 31. DESEMBER KL. 1000-1500 NÝÁRSDAGUR 1. JANÚAR LOKAÐ ATH! SJÁLFSALINN ER OPINN EFTIR LOKUN Gleðilega hátíð BENSÍNSTÖÐIN Á ÍSAFIRÐI reyna að selja hlutabréfin í íshúsfélaginu en taldi að ekkert nægilega hátt boð hefði borist í þau og eftir það var málinu frestað. Á fund- inum á fimmtudag var kynnt tilboð íshúsfélagsins í bréfin og bauð það 8 milljónir og 70 þúsund krónur í þau. Tilboð- inu var hafnað sem fyrr segir og ákveðið að endurvekja félagið. Þess má geta að til- boðið fól í sér 2000-falt nafn- verð bréfanna. í stjórn Togaraútgerðar- innar voru kosnir Haraldur L. Haraldsson, Magnús Reynir Guðmundsson, Smári Haraldsson, Pétur Sigurðsson og(< Haraldur Jónsson. Ákveðið var að gefa henni tíma til 15. mars til þess að kanna hvaða möguleika félagið hefur til útgerðar. At- huga á hvort nýir aðilar vilja koma inn í félagið og leggj a til aukið hlutafé. AUGLÝSENDUR ATHUGIÐ! SÍÐASTA TÖLUBLAÐ BÆJARINS BESIA 1989, KEMUR ÚT FIMMTUDAGINN 28. DESEMBER N.K. SKILAFRESTUR AUGLÝSINGA RENNUR ÚT Á HÁDEGI 27. DESEMBER. BÆJARINS Bm blað í stöðugri sókn.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.