Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.12.1989, Side 17

Bæjarins besta - 21.12.1989, Side 17
BÆJARINS BESTA 17 Kristinn Grétarsson skíðamaður: Váði úrvalsárangri í Austurríki 1Næsthæstur á skíðakennaraprófi sem 80 þreyttu en aðeins 30 náðu Kristinn t.v. ásamt einum félaganum á námskeiðinu. KRISTINN Grétarsson skíðamaður frá ísafirði er, þegar þetta birtist lesend- um, farinn til Austurríkis til starfa sem skíðakennari. Kristinn útskrifaðist af skíðavalsbraut Menntaskól- ans á Isafirði síðastliðið vor. í nóvember fór hann síðan til Austurríkis og var þar á nám- skeiði í hálfan mánuð og þreytti að því loknu strangt skíðakennarapróf og náði þeim glæsilega árangri að vera næstefstur. Áttatíu manns, flestir frá Austurríki tóku prófið, sem er bæði verklegt og bóklegt, en aðeins þrjátíu náðu til- skildum árangri. Skíðakennari í Obertauern „Ég frétti af þessu prófi í gegnum skólasystur mína frá Keflavík, Lindu Steinþórs- dóttur, sem útskrifaðist af skíðavalsbrautinni 1988 og vann sem skíðakennari í Austurríki í fyrra“ sagði Kristinn í stuttu spjalli við BB skömmu áður en hann hélt utan. „Hún tók þetta próf um leið og ég og var meðal þeirra hærri líka. Það var eiginlega nauðsynlegt fyrir mig að taka þetta próf þar sem ég var búinn að ákveða að verða skíðakenn- ari í Obertauern, rétt hjá Al- tenmarkt. Námskeiðið stóð í tvær vikur og fór fram í Kaprun, skammt frá Sell am Zee. Vikuna áður en nám- skeiðið hófst vorum við út- lendingarnir, sem vorum fimmtán, við æfingar á skíðasvæðinu með leiðbein- endum sem kenndu okkur á skíðum, sýndu okkur ýmsar æfingar og mátu hversu góð við vorum á skíðum til þess að ákveða hvort við mættum taka prófið. Fyrirlestrar í fimm tíma Á námskeiðinu sjálfu fór- um við á fætur hálfsjö og fór- um'í upp í fjall og vorum þar við æfingar og kennslu til klukkan tvö eða hálfþrjú. Þá fórum við heim og það tók klukkutíma að koma sér nið- ur fjallið. Bóklegur tími byrjaði hálffimm og stóð til hálftíu á kvöldin með hléum á milli. Þann tíma stóð kenn- arinn framan við töflu og tal- aði látlaust allan tímann, á þýsku að sjálfsögðu. Nám- skeiðið fór allt fram á þýsku og til að byrja með skildi ég lítið en fékk aðstoð frá her- bergisfélögunum og fékk síð- an að taka bóklegu prófin á ensku en í þeim verklegu varð ég að tala þýsku við kennsluna. Það var prófað í fjórum verklegum greinum; í einu er skíðað frjálst í alls konar beygjum, í öðru eru gerðar svokallaðar kennara- Á námskeiðinu var kennt í fimmtán manna hópum og hér er mynd af hópfélögum Kristins ásamt kennara. Það gæti orðið einhver bið enn á því að ísfirðingar sjái svona snjó á Selja- landsdal. æfingar, í þriðja er maður látinn sýna kennslu í ein- hverju ákveðnu, t.d. plógæf- ingum og í því fjórða skíðar maður eftir fyrirmælum prófdómara. Svo tókum við átta bókleg próf, m.a. í fyrstu hjálp, í útbúnaði, hættum í fjöllunum og snjó- flóðahættu. Tryggir réttindi og laun Þetta próf gildir fyrir kennara fyrstu tveggja hópanna, þ.e. algjörra byrj- enda og næsta hóp á eftir, og tryggir manni ákveðin at- vinnuréttindi og lágmarks- laun. Ég hefði aldrei náð þessum árangri nema af því að ég er búinn að vera við nám á skíðavalsbrautinni í M.f. Þar var búið að kenna nánast sömu hluti, að vísu farið öðruvísi í námið, en uppistaðan er sú sama. Kennslan um snjóflóðahætt- una var nokkuð frábrugðin, eðlilega, og reglur sem gilda í brekkunum í Austurríki eru einnig mun strangari en hér enda fleira fólk. Skíðakenn- arinn er ábyrgur fyrir nánast öllu sem getur farið úrskeið- is og ber mikla ábyrgð.“j Kristinn verður, sem fyrr segir, kominn til skíðabæjar- ins Obertauern þegar þetta birtist og er væntanlega byrj- aður störf: „Þarna eru þrír skíðaskólar, sem þykir ekki mikið“ sagði hann. „Bærinn er í raun byggður utan um skíðaíþróttina. Þangað koma margir í frí og ég byrja að vinna þann 20. desember og verð að vinna öll jólin. En það er í lagi því þetta er mitt óskastarf.“ BB óskar Kristni gleði- legra jóla og farsæls kom- andi árs í skíðabrekkunum í Austurríki. GLEÐILEG JÓL Gefið ykkur sjálfum góða jólagjöf T.D. MPiorueeR HLJÓMTÆKJASAMSTÆÐU SEM ÞIÐ FÁIÐ Á SÉRSTÖKUM JÓLAKJÖRUM. # MIKIÐ AF FALLEGUM GJAFAVÖRUM T.D. STYTTUR - LAMPAR - STÁLVÖRUR MEÐ GYLLINGU, MATAR- OG KAFFISTELL. # SINGER SAUMAVÉLAR KR. 23.100. # FYRIR BÖRNIN, SNJÓÞOTUR OG SLEÐAR Á GÓÐU VERÐI. OPIÐ ÞORLÁKSMESSU KL. 10-23. OPIÐ AÐFANGADAG KL. 11-12. RAFSJA HÓLASTÍG 6 BOLUNGARVÍK S 7326

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.