Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.12.1989, Qupperneq 19

Bæjarins besta - 21.12.1989, Qupperneq 19
BÆJARINS BESTA 19 BB hleraði: - að enn sé verið að skrifa nýja þætti í sápuóperuna „Slopparnir slást“. Næsti þáttur mun að líkindum gerast i siöanefnd lækna þar sem þeir Kristinn Bcnedikts og Ágúst Odds munu vænt- anlega kæra þau Bergþóru og Geir fyrir að vega að starfsheiðri sínurn í síðustu blaðaskrifum. Við bíðum spennt. - að síðasta slúður BB um sameiginlegt framboð krata og íhalds í Víkinni sé tómt bull. íhaldið ætlar að bíða með alla umræðu um fram- boð fram á nýja árið. Það rétta í ntálinu sé að nú séu Allaballar, Framsóknar- menn og óháðir farnir að hittast í hornum og plan- leggja sameiginlegt fram- boð. Og þá cr auðvitað spurningin hverjum óháðir verða þá óháðir ef af vcrð- ur... - að Einar Oddur Kristjáns- son hefði verið á fundi í Bol- ungarvík fyrir hclgina. Einar flutti ,,tölu" eins og það er stundum orðað og sagði meöal annars að hann væri orðin langþreyttur á því að vera eilíft að vera að tala um tölur og aftur tölur. Bæjar- stjórinn í Bolungarvík, Ólaf- ur Kristjánsson, var staddur á fundi þessum óg greip þá fram í og kallaði til ræðu- manns hvort hann vildi þá ekki skipta um umræðuefni og tala um rennilása í staö- inn... Undirskriftir til stuðnings Kristni P. Benediktssyni BÆJARINS besta hefur borist svohljóðandi yfirlýsing: „Vegna skrifa Geirs Guðmundssonar og Bergþóru Sigurðardóttur lækna á Heilsugæslustöðinni á ísafirði í BB þ. 18. desember s.l. (jólablaðinu), þá viljum við undirritað starfsfólk á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Isafirði koma eftirfarandi á framfæri: I greinum þeirra, einkum Geirs, er gróflega vegið að mannorði og starfsheiðri bæði tveggja fyrrverandi samstarfsmanna okkar, og þó sérstaklega yfirlæknis okkar, Kristins P. Benediktssonar, þar sem koma fram ærumeiðingar, ósannindi um störf hans við FSÍ og atvinnurógur. Okkur er óskiljanleg sú heift sem Geir Guðmundsson beitir fyrir sig í grein sinni. Hún er honum til lítils sóma. Viljum við hér með lýsa yfir megnustu andúð á slíkum skrifum. Við undirritað starfsfólk á FSÍ lýsum yfir fullum stuðningi okkar við Kristinn P. Benediktsson yfirlækni, og vonum að hann standi þetta fár af sér.“ Anna Hjartardóttir. Ágústa Hóbnbergsdóttir. Ásgerður Jensdóttir. Árný Björg Halldórsdóttir. Björney J. Björnsdóttir. Bryndís Kjartansdóttir. Elísabet Rósmundsdóttir. Elizabeth Einarsdóttir. Frauke Eckhoff. Gígja Tómasdóttir. Guðmunda Brynjólfsdóttir. Halldóra Guðmundsdóttir. Halldóra Magnúsdóttir. Helga Sigurgeirsdóttir. Hulda Björk Georgs. Hörður Högnason. Inga Porláksdóttir. Ingibjörg Jónsdóttir. Ingibjörg Norðkvist. Kolbrún Benediktsdóttir. Kristrún Guðmundsdóttir Magnús Kristjánsson. Katrín Arndal. Kolbrún Porvaldsdóttir. Kristín Jónsdóttir. Lárus Baldursson. Lilja Sigurgeirsdóttir. Rósa Hallgrímsdóttir. Sigríður Vagnsdóttir. Sigrún Magnúsdóttir. Sigurlín Pétursdóttir. Sólveig Kristinsdóttir. Steinunn Sölvadóttir. Sveinsína Sigurgeirsdóttir. LJnnur Árnadóttir. Pórdís M. Sumarliðadóttir. Purý Símonardóttir. hvernig fólkið bregst við því. Pað er svo margt skrítið en samt er það satt svona er hún veröld, ojœja. Hún kallar migfífl þegar geðið er glatt get ekki stillt mig að hlœja. Þetta er eftir Pál Olafs- son“ segir gamla konan og hlær. „Maður verður að taka því góða í lífinu og gleyma hinu. Ef fólk gerði ekki svona miklar kröfur þá væri það svo miklu ánægðara.“ Og á þeim vísdómsorðum ljúkum við þessu spjalli við Onnu Bjarnadóttur á Hlíf og þökkum fyrir okkur. -V.D. „Jólagjafirnar voru, kerti ,vasakiútur eða lítil spil.“ Læknadeilan: BÆJARINS BESIA - svalar lestrarþörf Vestfirðinga.

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.