Bæjarins besta - 21.12.1989, Side 22
22
BÆJARINS BESTA
Flugfélagið Ernir:
Sjúkraflug Vest-
firðinga er í hættu
Ágúst Oddson heilsugæslulæknir
✓
og Kristinn P. Benediktsson yfirlæknir FSI skrifa:
ísafjarðarkaupstaður
Útboð
Akstur með skíðafólk
á Seljalandsdal
Bæjarsjóður ísafjarðar auglýsir eftir
tilboði í akstur skíðafólks á skíðasvæðið
á Seljalandsdal. Um er að ræða akstur á
tímbilinu 15. janúar til 15. maí 1990.
Útboðsgögn fást á bæjarskrifstofunni
á ísafirði frá og með föstudeginum 22.
desember 1989.
Tilboðum skal skila til íþrótta- og
æskulýðsfulltrúa fyrir kl. 11.00, mánu-
daginn 8. janúar 1990 og verða þá opnuð
að viðstöddum þeim bjóðendum sem
þess óska.
íþrótta- og æskulýðsfulltrúinn
á ísafirði
Sundhöll - íþróttahús
Starfsmann (karlmann) vantar við
Sundhöll- íþróttahús frá 1. jan n.k.
Upplýsingar gefur undirritaður í síma
3722 eða á bæjarskrifstofu.
íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
íþróttahúsið ísafirði
Þeir sem ætla að leigja tíma í íþrótta-
húsinutímabiliðjan.-apríl 1990 sækium
það fyrir 28. des. n.k. Umsóknareyðu-
blöð fást á bæjarskrifstofu.
íþróttafulltrúinn.
ESSA dagana hafa farið
fram umræður um stöðu
Flugfélagsins Ernis á ísa-
firði. Fram hefur komið að
fjárhagsstaða félagsins er
slæm og hætta sé á að rekst-
ur þess geti stöðvast hvenær
sem er verði ekki gripið í
taumana.Þetta er mjög al-
varlegt ástand, þar sem Flug-
félagið Ernir hefur séð Vest-
firðingum fyrir sjúkraflugi
um hart nær 20 ára skeið.
Nú þegar hefur stærsta
flugvél félagsins verið leigð
til Afríku vegna verkefna-
skorts hér fyrir vestan. Næst
stærsta flugvél félagsins hef-
ur verið ónothæf vegna vél-
arbilunar um margra vikna
skeið vegna þess að ekki hef-
ur fengist fjármagn til að
kosta viðgerð. Öll starfsemi
félagsins í dag byggist því á
minnstu vélinni sem er að
vísu mjög vel útbúin til flugs
við erfið skilyrði en allscndis
ófullnægjandi hvað varðar
innra rými og starfsaðstöðu
við aðhíynningu á veiku fólki
og ekki síst sængurkonum.
Auk starfa við sjúkraflug
hefur Ernir skyldum að
gegna við Vestfirðinga með
póst- og farþegaflugi. Það er
þvi ljóst að ein flugvél getur
engan veginn sinnt allri
þessarri starfsemi. Vegna
sjúkraflugsins eins hafa þeg-
ar verið farnar nærri 200
ferðir á þessu ári.
Það er öllum ljóst, sem til
þekkja, að sjúkraflugi Vest-
firðinga verður ekki sinnt frá
Reykjavík. Þar ráða mestu
um ótrygg lendingarskilyrði,
oftast vegna veðurs, og að
flugtíminn í Reykjavík hing-
að vestur getur skipt sköpum
ef um bráð veikindi er að
Kristinn P. Benediktsson yf-
irlæknir FSÍ.
Ágúst Odddsson heilsu-
gæslulæknir í Bolungarvík.
ræða eða alvarlegt slys. Það
er því frumskilyrði að alltaf
sé til staðar flugvél á ísa:
fjarðarflugvelli, ef sinna á
sjúkraflugi Vestfirðinga af
einhverju öryggi. Góður
flugvélakostur nægir þó
ekki, heldur þarf einnig flug-
menn með góða staðarþekk-
ingu og reynslu af flugi við
þær aðstæður sem gjarnan
skapast hér fyrir vestan.
Flugmenn Flugfélagsins
Ernis hafa þessa reynslu og
þekkingu eftir áralanga
þjónustu við Vestfirðinga.
Það er vandséð hverjir aðrir
gætu annast þessa mikilvægu
þjónustu. Flugfélagið Ernir
hefur haldið uppi og kostað
bakvaktir allan sólarhring-
inn allt árið um kring til að
geta sinnt beiðni um sjúkra-
flug, hvenær sem hún berst.
Þann tíma sem við höfum
starfað hér höfum við alltaf
getað treyst á að hjálpar-
beiðni um sjúkraflug væri
sinnt fljótt og vel, hvort sem
væri að nóttu eða degi.
Sú spurning er áleitin
hvers vegna vandi Flugfé-
lagsins Ernis er svona mikill.
Svarið við henni er ekki
fljótfundið en ýmislegt kem-
ur þar til. Bakvakt fyrir
sjúkraflug er félaginu kostn-
aðarsöm og hafa opinberir
aðilar alltof lítið lítið komið
þar til aðstoðar. Flvers
vegna greiðir hið opinbera
ekki bakvaktir fyrir sjúkra-
flug eins og fyrir sjúkraflutn-
ing á landi? Ekki er sá flutn-
ingur síður mikilvægur fyrir
sjúka og slasaða, sérstaklega
ef litið er til landfræðilegra
og samgöngulegra aðstæðna
á Vestfjörðum. Ernir hefur
leitast við að byggja upp
flugflota sinn og aðstöðu á
landi, til þess að geta veitt
betri þjónustu og meira ör-
yggi í sjúkraflugi sem og
öðru flugi. Vonast var til að
Vestfirðingar sæju sér hag í
því að nýta sér þessa auknu
þjónustu síns heimafélags og
þannig stuðla jafnframt að
auknu öryggi í sjúkraflugi
svæðisins. En því miður varð
reyndin önnur og aðsóknin
brást nema þegar ekki var
hægt að nýta aðra kosti. í
dag er útlit fyrir að starfsemi
félagsins stöðvist innan
skamms, ef ekki verður
brugðist skjótt við og greitt
úr rekstrarerfiðleikum þess.
Sjúkraflug félagsins myndi
þá jafnframt leggjast niður,
og er vandséð hverjir geti
fyllt það skarð. Hér verða
allir að leggjast á eitt og
leggja sitt af mörkum. Opin-
berir aðilar hafa verið að
vinna í málinu, en treglega
hefur gengið að finna viðun-
andi lausn. Að lokum viljum
við hvetja Vestfirðinga til að
nýta sér þjónustu Flugfélags-
ins Ernis og þannig stuðla að
átramhaldandi öryggi í
sjúkraflugi fjórðungsins.
Með kveðju
Kristinn P. Benediktsson
yfirlœknir FSÍ
Ágúst Oddsson
heilsugœslulœknir
Bolungarvík
Niðursuðuvörur
Þegar vanda skal til veislu
úrvalsframleiðsla
úr 1. flokks hráefni
Islensk /////
Ameríska