Morgunblaðið - 01.09.2020, Síða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1. S E P T E M B E R 2 0 2 0
Stofnað 1913 205. tölublað 108. árgangur
SIRKUSSTJÓR-
INN Á UNDAN
SINNI SAMTÍÐ
HÁLFUR
LÍFEYRIR TEKJU-
TENGDUR
EINSTAKT AFREK
Í ÍSLENSKRI
ÍÞRÓTTASÖGU
NÝ LÖG Í GILDI Í DAG 14 SARA BJÖRK 26HELGI FELIXSON 28
Í sumar hófust framkvæmdir við breikkun Vesturlandsvegar í
Mosfellsbæ og eru þær nú langt á veg komnar.
Hafa vegagerðarmenn höggvið í bergið við veginn svo að
koma megi fyrir hinum breikkaða vegi, en framkvæmdalok
eru áætluð á fullveldisdaginn 1. desember næstkomandi og
verður um mikla bragarbót að ræða fyrir vegfarendur.
Framkvæmdir við Vesturlandsveg langt á veg komnar
Morgunblaðið/Eggert
Landsframleiðsla dróst saman
um 9,3% að raungildi á öðrum
fjórðungi þessa árs miðað við sama
tímabil ársins 2019. Þetta er mesti
samdráttur frá upphafi mælinga
árið 1995. Gríðarlegur samdráttur
var í útflutningi á ársfjórðungnum
og má rekja það einkum til hruns
ferðaþjónustu. Var framlag útflutn-
ings til hagvaxtar metið neikvætt
um 15,5% á tímabilinu. Samsvar-
andi samdráttur innflutnings var
hins vegar metinn jákvæður um
12,2%.
Í samantekt Hagstofunnar kem-
ur fram að vöruskiptajöfnuður á
tímabilinu var neikvæður um 9,2
milljarða króna á tímabilinu, en
þjónustujöfnuður jákvæður um 3,7
milljarða. »12
Mesti samdráttur
landsframleiðslu
frá upphafi mælinga
Stórt svæði á Suðausturlandi er
óaðgengilegt sjúkraflugi, en þrjú
rútuslys hafa orðið á því svæði á
undanförnum þremur árum. Leifur
Hallgrímsson, flugrekstrarstjóri
Mýflugs, segir í samtali við Morg-
unblaðið að þrátt fyrir að þyrlur
séu mikilvirk tæki í sjúkraflutn-
ingum verði ekki öll verkefni leyst
með þeim og því þurfi að fara að
huga að því að koma flugvelli á
svæðinu í betra horf til að hægt sé
að sinna sjúkraflugi þaðan. »6
Þyrlur leysi ekki öll
verkefni sjúkraflugs
Oddur Þórðarson
Sigurður Bogi Sævarsson
Hópuppsagnir í ágústmánuði náðu
til 285 einstaklinga hjá fjórum fyr-
irtækjum sem öll eru innan ferða-
þjónustunnar. Isavia sagði á föstu-
dag upp 133 starfsmönnum og 62
starfsmönnum Fríhafnarinnar var
sagt upp störfum í gær. Þá var einn-
ig öllum starfsmönnum Herjólfs sagt
upp í gær eða 68 manns.
Jóhannes Þór Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón-
ustunnar, segir í samtali við Morg-
unblaðið að búið sé að lama ferða-
þjónustu á Íslandi fram að jólum.
Aðgerðir stjórnvalda á landamærum
séu nú þegar farin að hafa áhrif á at-
vinnugreinina. Fjöldi fólks er án at-
vinnu og fyrirtæki leggja upp laup-
ana í hrönnum. Engu breyti þó
rýmkað verði fyrir komu farþega til
landsins á næstunni, skaðinn sé nú
þegar skeður.
„Ég hef verið skýr með það að bú-
ið sé að loka íslenskri ferðaþjónustu
eins og hún leggur sig,“ segir Jó-
hannes. „Nú er
komið í ljós hvers
konar áhrif það
hefur að þrengja
svona að heilli at-
vinnugrein.
Fyrirtæki standa
í uppsögnum og
geta ekki ráðið
fólkið sitt aftur
vegna óvissunnar
sem ríkir.“
Óánægjan aldrei meiri
Fréttir bárust af því í gær að
óánægja með ákvarðanir ríkisstjórn-
arinnar í baráttunni gegn efnahags-
legum áhrifum kórónuveirufarald-
ursins hefði aldrei mælst meiri.
Jóhannes Þór tekur undir þetta og
segist finna fyrir þessari óánægju
meðal þeirra sem starfa innan ferða-
þjónustunnar.
„Það sem við erum að sjá í dag,
bæði þessar uppsagnir og þessi
óánægja með aðgerðir stjórnvalda,
eru bara beinar afleiðingar af að-
gerðum stjórnvalda, sem að mínu
mati voru of harkalegar. Þetta hegg-
ur auðvitað mest í Suðurnesin þar
sem mjög margir hafa lifibrauð sitt
af komu erlendra ferðamanna, þó að
sjálfsögðu megi ekki gera lítið úr
þeim vanda sem fyrirtæki annars
staðar á landinu standa frammi fyr-
ir,“ segir Jóhannes Þór.
Næstu mánaðamót einnig erfið
Guðbjörg Kristmundsdóttir, for-
maður Verkalýðs- og sjómanna-
félags Keflavíkur, segir í samtali við
Morgunblaðið í dag að ástandið sé
mjög alvarlegt, en um 1.500 félags-
menn hennar eru nú án atvinnu. Seg-
ist hún óttast að næstu tvenn mán-
aðamót geti líka orðið mjög erfið
hvað varðar uppsagnir.
Kjartan Már Kjartansson, bæjar-
stjóri í Reykjanesbæ, segir að staðan
sé þröng en atvinnuleysi þar mældist
um 19% um síðustu mánaðamót.
Segir hann brýnt að starfsemi á
Keflavíkurflugvelli hefjist aftur sem
fyrst, því þar séu flest störfin.
Svartur dagur
í ferðaþjónustu
285 manns sagt upp í ágúst Greinin lömuð fram að jólum
Jóhannes Þór
Skúlason
MUppsagnir í ferðaþjónustu »4
Sveitarfélög sem eru að kikna undan
hallarekstri hjúkrunarheimila fá
engin efnisleg svör frá ríkinu þegar
þau krefjast leiðréttingar á dag-
gjöldum. Hið minnsta þrjú sveit-
arfélög hafa á þessu ári sagt upp
samningum við ríkið um þessa þjón-
ustu og fleiri eru að íhuga þá leið.
Ragnar Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri hjúkrunarheimila
Fjarðabyggðar, segir að mikil sam-
staða hafi verið um starfsemina þar
eins og víða annars staðar og sé það
erfið pólitísk ákvörðun og viðkvæm
að segja sig frá rekstrinum enda hafi
íbúarnir stutt þessa starfsemi með
margvíslegum hætti. Það sé þó stað-
an sem flestöll sveitarfélög standi
frammi fyrir. »10
Hraunbúðir Ríkið gæti þurft að
taka við rekstri í Vestmannaeyjum.
Mörg íhuga
uppsögn
Kikna undan
rekstri heimilanna