Morgunblaðið - 01.09.2020, Side 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 2020
Hin árlega verðlaunahátíð MTV-
sjónvarpsstöðvarinnar bandarísku
fór fram um helgina og mótaðist
framkvæmdin af hinum óvenjulegu
aðstæðum vegna kóróuveirufarald-
ursins. Komu hinir ýmsu listamenn
fram í útsendingunni á MTV, á ótil-
greindum stöðum.
Tónlistarkonan Lady Gaga var í
aðalhlutverki en hún hreppti alls
fimm verðlaun. Kom hún fram með
sífellt nýjar andlitsgrímur en Lady
Gaga var valin listamaður ársins,
átti lag ársins, besta kvikmyndatak-
an var í myndbandi við lag hennar,
hún fékk verðlaun fyrir besta sam-
starfið í laginu „Rain on Me“ og þá
varð hún fyrst til að hreppa ný verð-
laun, Tricon, sem veitt eru fyrir ár-
angur á hið minnsta þremur sviðum
listrænnar túlkunar. Meðal annarra
verðlauna má nefna að The Weeknd
áttu besta myndbandið, Taylor Swift
var verðlaunuð fyrir bestu leikstjórn
á myndbandinu við The Man, „Sa-
vage“ með Megan Thee Stallion var
valið besta hip-hopið, „On“ með BTS
besta poppið og Doja Cat var besti
nýi listamaðurinn.
Sigursæl Lady Gaga, sem er til hægri, birtist með ólíkar grímur fyrir vitum sér er hún tók við verðlaunum sínum en
hún sést hér flytja ásamt Ariana Grande lagið „Rain on Me“ en þær hlutu verðlaun fyrir samstarfið við lagið.
Í kastljósi Tónlistarkonan Miley Cyrus var meðal þeirra sem komu fram.
AFP
Betri tíð Hljómsveitin Black Eyed Peas flutti „I’ve Got A Feeling“, óð til betri
daga en heimsbyggðin upplifir nú, og minnti á að líf svartra skipti máli.
Lady Gaga
með fimm
verðlaun
Sópransöngkonan og tónskáldið
Alexandra Chernyshova, sem hef-
ur verið áberandi íslensku tónlist-
arlífi á undanförnum árum, varð í
fyrsta sæti í alþjóðalegri tón-
skáldakeppni í Moskvu sem kennd
er við tónskáldið Isaak Dunaj-
evskiyi. Verðlaunin fékk hún fyrir
14 lög fyrir rödd og píanó í ís-
lensku óperunni „Skáldið og bisk-
upsdóttirin“. Óperan fjallar um
vináttu Hallgríms Péturssonar og
Ragnheiðar Brynjólfsdóttur og er
samin við handrit Guðrúnar Ás-
mundsdóttur og við ljóð eftir Hall-
grím Pétursson, Rúnar Krist-
jánsson, Guðnýju frá Klömbrum,
Daða Halldórsson og þjóðvísur frá
13 öld. Óperan var frumsýnd í
konsertuppfærslu í Hallgríms-
kirkju í Saurbæ í Hvalfirði árið
2014 við góðar undirtektir.
Ópera Alexöndru var flutt síð-
asta sumar á tónleikum með yfir-
skriftina „Russian Souvenir: Intro-
ducing Iceland“ í kastala í
Pétursborg. Árið 2018 var hún
flutt í einum virtasta tónlistarhá-
skóla Kænugarðs í Úkraínu,
R.Glier-tónlistarháskólanum.
Kænugarður er heimabær Alex-
öndru og stundaði hún meðal ann-
ars nám í þessum skóla en upp-
færsla óperunnar tengdist 150 ára
afmæli háskólans. Árið 2019 varð
Alexandra Chernyshova í 2. sæti í
alþjóðlegri tónskáldakeppni í
Moskvu fyrir tónsmíði sína á óp-
eruballettinum „Ævintýrið um
norðurljósin“, en óperan var frum-
sýnd á Íslandi í Norðurljósasal
Hörpu.
Alexandra Chernyshova
verðlaunuð í Moskvu
Morgunblaðið/RAX
Tónskáldið Verðlaunin fékk Alex-
andra Chernyshova fyrir lögin í óp-
erunni Skáldið og biskupsdóttirin.
Á sama tíma og víða hefur þurft að
takmarka aðgang almennings að
listsýningum hefur verið opnuð í
Landakotsskóla samsýning fram-
sækinna listamanna undir heitinu
Stafróf lífs míns, þræðir og skrítin
form. Verkin á sýningunni eru eftir
listamennina Hrafnhildi Arn-
ardóttur - Shoplifter, Loja Hösk-
uldsson, Ýrúrari og þríeykið Stein-
unni Mörtu Önnudóttur, Önnu
Hrund Másdóttur og Ragnheiði
Káradóttur.
Í tilkynningu frá Landakotsskóla
segir að sýningarstjórar séu Gun-
dega Skela og Ingibjörg Jóhanns-
dóttir skólastjóri. Í vetur verður
listamönnunum boðið að vinna með
ákveðnum nemendahópum í skól-
anum. Sýningin verður opin út
skólaárið, í fyrstu einungis börnum
sem eru nemendur skólans og
starfsfólki en væntanlega mun al-
menningur getað skoðað hana eftir
að slakað hefur verið á reglum um
fjöldatakmarkanir og aðgengi.
Framsæknir listamenn
sýna í Landakotsskóla
Ljósmynd/Gundega Skela
Í skólanum Rýnt í nýtt verk Loja
Höskuldssonar, Stafróf lífs míns.
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
Magnaður nýr spennuþriller
með Russell Crowe í aðalhlutverki.
SÝND MEÐ ÍSLENSKU
OG ENSKU TALI
AÐRAR MYNDIR Í
SÝNINGU:
* Tröll 2 (ísl. tal)
* Hvolpasveitin (ísl. tal)
* My Spy
* The Postcard
Killings
* The Secret : Dare to
dream
FYRSTA STÓRMYND ÁRSINS
Nýjasta Meistaraverk
Christopher Nolan
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
Frábær ný teiknimynd fyrir
alla fjölskylduna.★★★★★
★★★★★
★★★★★
The Guardian
The Times
The Telegraph