Morgunblaðið - 01.09.2020, Side 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 2020
Draghálsi 14 -16 · Sími 4 12 12 00 · www.isleifur.is
Þú finnur
gæðin!
Skoðaðu úrvalið
í netverslun
isleifur.is
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Landsframleiðslan dróst saman um
9,3% að raungildi á öðrum ársfjórð-
ungi, borið saman við sama tímabil
fyrra árs. Aldrei, frá því að mælingar
hófust 1995, hefur annar eins sam-
dráttur mælst en á fjórða fjórðungi
ársins 2009 mældist samdrátturinn
8,7%.
Höggið sem hagkerfið varð fyrir á
fjórðungnum reyndist þó nokkuð
minna en Seðlabanki Íslands hafði
gert ráð fyrir en nýverið spáði hann
því að samdrátturinn yrði 11%.
Kraftar sem togast á
Gríðarlegur samdráttur í útflutn-
ingi, sem einkum má rekja til hruns
ferðaþjónustunnar, er meginástæða
þess hve hagkerfið skrapp saman á
fjórðungnum. Þannig var framlag út-
flutningsins til hagvaxtar neikvætt
um 15,5%.
Á móti vó hins vegar mikill sam-
dráttur innflutnings en framlag hans
til hagvaxtar var jákvætt um 12,2%.
Ræður þar miklu að þörf fyrir aðföng
ferðaþjónustustarfsemi þornaði nær
alfarið upp og þá stöðvuðust fólks-
flutningar héðan að mestu, rétt eins
og ferðalög útlendinga til Íslands. Þá
var framlag einkaneyslu einnig nei-
kvætt um 4,4% og framlag fjármuna-
myndunar var einnig neikvætt um
3,6%. Framlag samneyslunnar var
hins vegar jákvætt um 0,6%. Í niður-
brotnum tölum Hagstofunnar kemur
fram að þótt einkaneyslan hafi í
heildina dregist saman þá hafi hún
aukist á afmörkuðum sviðum, m.a. í
neyslu lyfja og annarra lækninga-
vara, rafrænni þjónustu og áfengi.
Aðrir liðir vógu þó þyngra, m.a. bíla-
kaup sem drógust saman um 35% að
raungildi miðað við sama tímabil í
fyrra.
Í samantekt Hagstofunnar er m.a.
bent á að heildarfjöldi vinnustunda
hafi dregist saman um 11,3% á tíma-
bilinu. Segir stofnunin að mælingar á
vinnumagni gefi „sterka vísbendingu
um framleitt magn vöru og þjónustu
til endanlegra nota“.
Atvinnuvegafjárfesting dróst sam-
an um 17,8% á tímabilinu og fjár-
munamyndun í íbúðarhúsnæði dróst
saman um 21,3% sem er mesti sam-
dráttur sem mælst hefur síðan á 2.
ársfjórðungi 2010. Þrátt fyrir sam-
dráttinn er umfang byggingarfram-
kvæmda vegna íbúðarhúsnæðis enn
mikið í sögulegu samhengi, eða sem
nemur 5,2% af landsframleiðslu árs-
fjórðungsins. Vöruskiptajöfnuður var
neikvæður um 9,2 milljarða króna á
2. ársfjórðungi. Vöruútflutningur
nam 149,2 milljörðum króna og vöru-
innflutningur nam 158,4 milljörðum.
Þjónustujöfnuður var jákvæður um
3,7 milljarða en á tímabilinu nam út-
flutningur á þjónustu 66,4 milljörðum
og innflutningur 62,6 milljörðum.
Þannig var samanlagður halli af
vöru- og þjónustuviðskiptum 5,4
milljarðar á fjórðungnum, samanbor-
ið við 8,7 milljarða króna jákvæðan
jöfnuð yfir sama tímabil 2019.
Samdráttur á mann 2019
Samhliða nýjum tölum þjóðhags-
reikninga fyrir annan ársfjórðung
hefur Hagstofan einnig birt tölur sem
sýna að landsframleiðsla á mann
dróst saman á síðsta ári. Nemur sam-
drátturinn 0,3%. Landsframleiðslan
jókst að raungildi um 1,9% í fyrra,
samanborið við 3,9% 2018. Að teknu
tilliti til mannfjölgunar, sem nam
2,2%, reyndist samdráttur eins og að
ofan greinir.
Mesti mældi samdráttur
Breyting á landsframleiðslu á 2. ársfj. 2020
Hlutfallsleg raunbreyting m.v. 2 ársfj. 2019 (árstíðaleiðrétt)*
0% 5% 10% 15% 20%
Bretland
Spánn
Portúgal
Frakkland
Íítalía
ESB-meðaltal
Austurríki
Þýskaland
Bandaríkin
Ísland
Pólland
Svíþjóð
Lettland
Danmörk
Litháen
Noregur
Finnland
-20,4%
-18,5%
-13,8%
-11,7%
-9,3%
-8,3%
-7,4%
-5,1%
-4,5%
* Fyrstu bráðabirgðatölur sem hagstofur
viðkomandi ríkja hafa birt á undan-
förnum vikum og eru settar fram með
fyrirvara um aukna óvissu í niðurstöðum.
Heimild: Hagstofa Íslands.
Landsframleiðslan dróst saman um 9,3% á öðrum ársfjórðungi Minni sam-
dráttur en Seðlabankinn spáði nýverið Útflutningur dróst saman um 15,5%
sökum kórónuveirunnar hafi auk-
ið smásölu á vörum þess í Bret-
landi og á Írlandi. Hins vegar
hafi sala til veitingastaða og ann-
arra sem selji tilbúnar máltíðir
orðið fyrir miklum áhrifum
vegna lokana frá miðjum mars-
mánuði og fram til loka maímán-
aðar. Hins vegar sé sala til þess-
ara aðila jafnt og þétt að taka við
sér.
Bjarni Ármannsson, forstjóri
fyrirtækisins, segir að sala hafi
tekið við sér á þriðja ársfjórð-
ungi. Hins vegar hefur fyrirtækið
ákveðið að lækka efri vikmörk
afkomuspár sinnar um 1 milljón
evra og er nú gert ráð fyrir að
hagnaður þess fyrir skatta muni
liggja á bilinu 6 til 8 milljónir
evra fyrir árið, jafnvirði 1 til 1,3
milljarða króna.
Sölutekjur Iceland Seafood Inter-
national námu 183,2 milljónum
evra á fyrri helmingi ársins, jafn-
virði 30,2 milljarða króna, saman-
borið við 232,1 milljón evra, jafn-
virði 38,3 milljarða króna, yfir
sama tímabil í fyrra. Nemur sam-
drátturinn því 21%.
Hagnaður félagsins eftir skatta
nam rúmlega 1,6 milljónum evra,
jafnvirði 253 milljóna króna, og
dróst saman um 64% frá fyrra ári
þegar hann reyndist rúmlega 4,2
milljónir evra.
Segir í tilkynningu frá félaginu
að breytingar á neysluvenjum
Sala Iceland Seafood minnkar um 21%
Hagnaðurinn dregst saman um 64%
frá fyrra ári og nemur 253 milljónum
Morgunblaðið/Hari
Uppgjör Iceland Seafood International skilar hagnaði þrátt fyrir skakkaföll
á árinu og erfiðar markaðsaðstæður. Bjarni Ármannsson er forstjóri þess.
1. september 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 137.42
Sterlingspund 182.61
Kanadadalur 105.13
Dönsk króna 21.965
Norsk króna 15.623
Sænsk króna 15.909
Svissn. franki 152.03
Japanskt jen 1.3027
SDR 194.84
Evra 163.5
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 193.0041
Hrávöruverð
Gull 1955.85 ($/únsa)
Ál 1762.0 ($/tonn) LME
Hráolía 45.1 ($/fatið) Brent
Viðskipti
● Fjármálaeftirlitið
veitti í gær Kviku
banka heimild til
þess að sameina
eigna- og sjóða-
stýringarstarfsemi
Kviku í Júpíter
rekstrarfélagi.
Byggist sam-
þykktin á beiðni
Kviku og Júpíters
sem send var til
stofnunarinnar 13.
nóvember 2019. Þá sótti Júpíter um
heimild til FME þann 11. júní síðastliðinn
til að fá starfsleyfi sem rekstraraðili
sérhæfðra sjóða.
Nú þegar heimildin hefur fengist hef-
ur verið ákveðið að breyta nafni Júpí-
ters rekstrarfélags í Kviku eignastýr-
ingu. Þeir starfsmenn sem störfuðu hjá
Kviku við eignastýringu munu flytjast
yfir til Kviku eignastýringar sem og þau
verkefni sem mynduðu starfsemi eigna-
stýringar Kviku. Í kjölfar þessara breyt-
inga verður Kvika eignastýring eitt
stærsta eigna- og sjóðastýringar-
fyrirtæki landsins. Segir í tilkynningu í
tengslum við þessar vendingar að hið
sameinaða félag muni leggja áherslu á
að veita viðskiptavinum breitt þjón-
ustuframboð til þess að fjárfesta inn-
anlands sem og á erlendum mörk-
uðum. Þá verði lögð áhersla á að vera
leiðandi í eigna- og sjóðastýringu með
langtímahagsmuni viðskiptavina að
leiðarljósi.
Hannes Frímann Hrólfsson er fram-
kvæmdastjóri Júpíters rekstrarfélags.
Kvika verður Júpíter
sem aftur verður Kvika
Hannes Frímann
Hrólfsson
● Útgerðarfélag Reykjavíkur, stærsti
hluthafi Brims hf., hélt lokað útboð á
víxlum í tveimur flokkum síðastliðinn
föstudag. Alls bárust tilboð fyrir ríflega
þrjá milljarða króna frá 15 þátttakendum
og ákvað félagið að taka tiboðum fyrir
2.520 milljónir króna. Voru vaxtakjörin
í tilboðunum að meðaltali 3,82%.
Segir í tilkynningu frá fyrirtækinu að
aðstandendur útboðsins séu sérlega
ánægðir með þær undirtektir sem félag-
ið hafi fengið, ekki síst vegna þeirrar
óvissu sem er uppi í alþjóðlegu efna-
hagslífi og þess að lítið hafi verið um út-
gáfu rekstrarfélaga á óveðtryggðum
verðbréfum á síðustu árum. Arctica
Finance annaðist útgáfuna fyrir hönd
ÚR.
Útgerðarfélag Reykjavíkur er ekki að-
eins þátttakandi í sjávarútvegi hér á
landi heldur einnig í Grænlandi og eru
eignir þess metnar á um 440 milljónir
evra. Forstjóri þess er Runólfur V. Guð-
mundsson en langstærsti hluthafi þess
er Guðmundur Kristjánsson.
Útgerðarfélag Reykja-
víkur sækir fjármögnun