Morgunblaðið - 01.09.2020, Side 24
Á
sa Ólafsdóttir fæddist 1.
september 1970 í
Reykjavík. Hún bjó
fyrstu árin í Breiðholti
en fluttist svo í Hlíð-
arnar. „Fjölskylda mín ferðaðist
mikið um Ísland og fastir viðkomu-
staðir voru Vatn í Haukadal og Vað
við Skjálfandafljót, auk þess sem
farið var árlega frá 1977 til 1986 til
Danmerkur og dvalið í þrjár til fjór-
ar vikur í Høve á Vestur-Sjálandi.“
Ása gekk fyrst í Austurbæjar-
skóla og síðar Hlíðaskóla. Árið 1990
lauk hún stúdentsprófi frá Versl-
unarskóla Íslands og ári síðar dipl-
ómu í frönsku frá Alliance Francaise
í París. Ása lauk því næst kandidats-
prófi í lögum frá Háskóla Íslands
1996, en hluta námsins var hún í
Kaupmannahafnarháskóla. Hún
lauk meistaraprófi í lögum LL.M frá
Cambridge-háskóla 2000 (Trinity
Hall).
Ása vann ýmis fjölbreytt sumar-
störf, var í sveit, barnapössun og bar
út blöð og seldi. Hún vann við garð-
yrkjustörf, heimilisþrif og
afgreiðslustörf í blómabúðinni Vori
og Íslenskum heimilisiðnaði. „Þá var
ég ,,ruslakarl“ í nokkur sumur og
kenndi börnum íslensku um helgar í
skóla sem var starfræktur í
tengslum við sendiráðið í París þeg-
ar ég bjó þar,“ segir Ása.
Fyrst um sinn eftir útskrift starf-
aði Ása á lögmannsstofu með Jó-
hanni H. Níelssyni hrl., síðar með
Guðjóni Ólafi Jónssyni og Eyvindi
G. Gunnarssyni undir merkjum JP-
lögmanna. Hún fékk málflutnings-
leyfi fyrir Hæstarétti 2005, var ráðin
í hlutastarf sem lektor við lagadeild
Háskóla Íslands 2006 og í fullt starf
2008. Hún hefur verið prófessor við
Lagadeild HÍ frá 2018 og deildar-
forseti frá 1.7. 2020. Hún tók sér smá
hlé frá háskólastarfinu í kjölfar
hrunsins. „Ragna Árnadóttir
hringdi í mig í byrjun febrúar 2009
og spurði hvort ég gæti aðstoðað sig,
en við höfðum áður starfað saman í
kærunefnd jafnréttismála. Úr varð
að ég var aðstoðarmaður hennar á
þessum merkilegu tímum frá byrjun
árs 2009 til september 2010. Það var
ómetanleg reynsla að ganga til liðs
við samhentan og öflugan hóp
starfsmanna dómsmálaráðuneyt-
isins, sem þurfti nær daglega að tak-
ast á við ný og krefjandi verkefni í
kjölfar hrunsins.“
Ása hefur skrifað margar fræði-
greinar og gefið út bækur á sviði lög-
fræði, einkum á sviði fjármunaréttar
og réttarfars. Auk þess er hún for-
maður óbyggðanefndar, ritstjóri og
formaður ritstjórnar Lagasafns, sit-
ur í nefnd um dómarastörf og í rétt-
arfarsnefnd. Þá hefur hún tekið sæti
sem dómari við EFTA-dómstólinn,
Hæstarétt Íslands og var settur
Landsréttardómari á fyrri hluta árs-
ins 2020.
Ása var um nokkurra ára skeið í
stjórn styrktarsjóðsins Þú getur!
sem veitir þunglyndum og þeim sem
þjást af geðröskunum námsstyrki,
hún situr í fulltrúaráði Hjartavernd-
ar og var í stjórn Kraftlyftinga-
sambands Íslands. Hún situr nú í
framkvæmdastjórn Íþrótta- og
ólympíusambands Íslands. „Ég æfði
bæði karate og kraftlyftingar og er
alþjóðlegur dómari í kraftlyftingum.
Þá tekur golfið sinn tíma í góðum fé-
lagsskap. Fjölskyldan hefur svo
ferðast víða, bæði innanlands og
erlendis.“
Fjölskylda
Eiginmaður Ásu er Marteinn
Breki Helgason, f. 20.8. 1973, sér-
fræðingur hjá Arion banka. Þau eru
búsett í Vesturbæ Reykjavíkur.
Foreldrar Marteins eru hjónin Guð-
björg Marteinsdóttir, f. 5.4. 1953, og
Helgi Baldursson, f. 3.10. 1948. Þau
eru búsett í Reykjavík.
Börn Ásu og Marteins eru Hrafn-
hildur María, f. 14.11. 2001, nemi við
Lagadeild Háskóla Íslands, og Helgi
Níels, f. 22.10. 2003, nemi við
Menntaskólann í Reykjavík.
Bróðir Ásu er Lárus M.K. Ólafs-
son, f. 8.2. 1974, lögfræðingur í
Reykjavík.
Foreldrar Ásu eru hjónin Hrafn-
hildur Guðmundsdóttir, f. 18.1. 1947,
fyrrverandi sérfræðingur hjá
Reykjavíkurborg, og Ólafur Lár-
usson, f. 18.3. 1947, fyrrverandi
íþróttakennari hjá Reykjavíkur-
borg. Þau eru búsett í Garðabæ.
Ása Ólafsdóttir, prófessor og deildarforseti lagadeildar Háskóla Íslands – 50 ára
Sinnir félagsstörfum af krafti
Kraftlyftingakonan Ása er alþjóð-
legur dómari í kraftlyftingum.
Í 101-skautbúningi Blæjuna og fald-
inn vantar en sjal er komið í staðinn.
Fjölskyldan Ása, Marteinn og börn stödd í Everglades í Flórída árið 2019.
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 2020
Útivistarskór
SMÁRALIND
www.skornir.is
• Leður
• Vatnsheldir
• Vibram sóli
Verð 24.995
Stærðir 36-47
Netverslun
www.skornir.is
Le Florians
High
60 ára Bubbi er Akur-
eyringur en býr í Kópa-
vogi. Hann er prent-
smiður að mennt og
vinnur í innkaupadeild
hjá Íslenskri erfða-
greiningu. Bubbi var
lengi knattspyrnu-
þjálfari.
Maki: Lára Ósk Heimisdóttir, f. 1963,
bankastarfsmaður.
Börn: Birkir, f. 1981, Heimir, f. 1984, og
tvíburarnir Björk og Laufey, f. 1989.
Barnabörnin eru orðin fjögur.
Foreldrar: Björn Ottó Kristinsson, f.
1918, d. 1992, skólastjóri Vélskólans á
Akureyri, og Halldóra Gunnlaugsdóttir, f.
1926, d. 1998, húsfreyja á Akureyri.
Björn Kristinn Björnsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú átt ekki að vera í neinum vand-
ræðum með að inna af hendi þau verkefni
sem þér hafa verið falin þótt flókin séu. Ekk-
ert má koma þér úr jafnvægi.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú tekur öllu mjög persónulega í dag
og því gæti komið til óvenju harkalegra
deilna á milli þín og þinna nánustu. Farðu
þér því hægt og láttu tímann vinna með
þér.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Hafirðu áhyggjur af fjármálunum
skaltu leita til ráðgjafa. Bara það að hitta
eina manneskju mun opna þér hundrað
tækifæri sem stefna þér á spennandi stað.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú þarft að líta málin raunsæjum
augum þótt margt skemmtilegt geti borið
fyrir þegar ævintýragleraugun eru sett upp.
Komdu einhverju í verk sem þú hefur frest-
að.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Einbeittu þér að þeim verkefnum sem
fyrir liggja áður en þú tekur að þér önnur og
ný. Vertu varfærinn og vitrænn.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú nýtur þess að ræða vonir þínar
og framtíðardrauma við vin þinn. Spurðu
sjálfan þig að því hvort þú sért að gera það
sem þú vilt vera að gera í lífinu.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú skalt alls ekki liggja á skoðunum
þínum ef eftir þeim er leitað. Hafðu þetta í
huga og taktu mark á réttlátri gagnrýni.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ert auðugur sama hvernig
efnahagur þinn er. Leggðu þitt af mörkum
með því að sýna skilning og umburðarlyndi.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Hlustaðu vandlega á það sem
aðrir segja. Maður uppgötvar styrk sinn
ekki síst þegar krappar beygjur verða á lífs-
leiðinni.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú tjáir þig fallega í dag, svo fólk
ætti að sækjast eftir nærveru þinni. Skoð-
aðu hvert mál vandlega áður en þú tekur af-
stöðu.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Heildarsýn er það sem þú þarft
að ná svo enginn misskilningur komi upp
milli þín og þinna. Talaðu tæpitungulaust
við hvern sem er.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þín bíður eitthvað stórt og spenn-
andi. Rómantík er til staðar og samskipti
við annað fólk ganga vel fyrir sig.
Vinkonurnar Katla
María Ómarsdóttir,
Petra Guðríður
Sigurjónsdóttir,
Þóra Kristín Ólafs-
dóttir og Kara
Eiríksdóttir seldu
dót og héldu tom-
bólu til styrktar
Rauða krossinum.
Þær komu með af-
raksturinn þann 20.
ágúst, heilar 18. 400
krónur, og afhentu
Rauða krossi Íslands.
Tombóla
40 ára Dagbjört er
Akureyringur en býr í
Reykjavík. Hún er með
BA-gráðu í félags-
vísindum frá Háskól-
anum á Akureyri og er
í diplóma-námi í
áfengis- og vímuefna-
málum við HÍ. Dagbjört var bæjarfulltrúi
á Akureyri 2016-2019.
Maki: Þórarinn Magnússon, f. 1981,
lagerstjóri hjá Lýsi.
Börn: Margrét Birta, f. 2000, Elín Alma,
f. 2001, Jón Páll, f. 2005, og Hólmfríður
Lilja, f. 2009, Jóhannsbörn.
Foreldrar: Margrét Hólmfríður Pálma-
dóttir, f. 1957, húsmóðir og Páll Jóhann-
esson, f. 1958, vefstjóri hjá Íþróttafélag-
inu Þór. Þau eru búsett á Akureyri.
Dagbjört Elín Pálsdóttir
Til hamingju með daginn