Morgunblaðið - 01.09.2020, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 01.09.2020, Blaðsíða 4
Uppsagnir afleiðing tvöfaldrar skimunar Oddur Þórðarson oddurth@mbl.is Hópuppsagnir í ágústmánuði náðu til 285 manns og náðu þær til fjög- urra fyrirtækja, sem öll starfa inn- an ferðaþjónustunnar. Þá hafa önn- ur fyrirtæki í geiranum þurft að draga saman seglin. Stjórn Herjólfs ohf. tilkynnti í gær á starfsmannafundi félagsins að öllum starfsmönnum þess yrði sagt upp eða 68 manns. Sagði í fréttatilkynningu félagsins að þetta væri gert í varúðarskyni þar sem stjórnin teldi óábyrgt að halda út í frekari óvissu með rekstur félags- ins að öllu óbreyttu. Stjórn félags- ins segir ákvörðunina um að segja upp öllu starfsfólki sínu vera sárs- aukafulla. „Áætluð áhrif vegna kórónu- veirunnar eru veruleg og ekki ligg- ur fyrir niðurstaða eða ákvörðun ríkisins um að bæta í núverandi þjónustusamning vegna áhrifa á reksturinn,“ segir í tilkynningunni. Þá standi vinna yfir við endur- skoðun á frekari fjárframlögum til reksturs félagsins þó engin niður- staða liggi fyrir enn, en þeirri vinnu verði hraðað eins og kostur er. Reksturinn nánast legið niðri Þá var 62 starfsmönnum Frí- hafnarinnar sagt upp í gær. Þor- gerður Þráinsdóttir, framkvæmda- stjóri Fríhafnarinnar, sagði í samtali við Morgunblaðið að vegna fækkunar ferðamanna hingað til lands hefði rekstur Fríhafnarinnar nánast legið alfarið niðri. Síðan kórónuveirufaraldurinn hófst hefur starfsemi Fríhafnarinn- ar dregist saman um 75 til 95% miðað við það sem hann var í eðli- legu árferði. Fríhöfnin er dóttur- félag Isavia, en þar var 133 starfs- mönnum sagt upp á föstudag. Aðspurð sagði Þorgerður að ákvörðunin um hópuppsagnir hjá Fríhöfninni væri alfarið tekin af hálfu stjórnar Fríhafnarinnar sjálfrar. Mun færri pantað ferðir Öllum hvalaskoðunarbátum á Akureyri hefur verið lagt fyrir vet- urinn. Þar var þremur starfsmönn- um sagt upp sem annars hefðu haft fullt starf yfir veturinn. Í samtali við Morgunblaðið sagði Rannveig Grétarsdóttir, eigandi hvalaskoðunarfyrirtækisins Hvala- skoðun Akureyri, að eitthvað hefði verið um erlenda gesti í júlí og byrjun ágúst en eftir að tekin var upp tvöföld skimun á landamær- unum um miðjan ágúst hefðu mun færri pantað ferðir. Hún segir að eitthvað hafi verið um að Íslendingar færu í ferðir í byrjun sumars en það hefði minnk- að eftir því sem leið á. Hún segist vonast til þess að hægt verði að ráða aftur það starfsfólk sem sagt var upp þegar starfsemin hefst að nýju næsta vor.  Mikil óvissa ríkir í ferðaþjónustu  Hvalaskoðun hætt í ár Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Hvalaskoðun Allir hvalaskoðunarbátar á Akureyri liggja nú í höfn. 4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 2020 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Um 1.500 félagsmenn í Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur eru nú án atvinnu. Alls eru um 4.200 manns í félaginu og því eru um 35% félags- manna atvinnulausir. „Ástandið er mjög alvarlegt og ég óttast að stað- an muni versna verulega á næstunni. Margir atvinnurekendur hafa sagt upp fólki að undanförnu, meðal ann- ars fyrir þessi mánaðamót, ég óttast að tvenn næstu geti líka orðið mjög erfið að þesssu leyti,“ segir Guð- björg Kristmunsdóttir, formaður VSFK, í samtali við Morgunblaðið. Syrt hefur í álinn Mjög hefur syrt í álinn í atvinnu- málum á Suðurnesjum að und- anförnu. Fall WOW snemma árs í fyrra varð til þess að margir misstu vinnuna og í upphafi þessa árs voru um 400 manns í VSFK án vinnu. Þegar áhrifa kórónuveirunnar fór að gæta varð staðan enn þyngri, svo sem fyrirtæki í flugi og ferðaþjón- ustu sem sögðu upp stórum hópum fólks. „Einnig hafa vinnuveitendur í störfum afleiddum frá ferðaþjónust- unni sagt upp fólki, svo hér eltir hvað annað,“ segir Guðbjörg. Við þetta má bæta að Fríhöfnin ehf., dótturfélag Isavia, sagði upp 62 starfsmönnum í gær. Í tilkynningu segir að undanfarið hafi stöðugildum hjá Fríhöfninni fækkað um tæp 60%. Því miður sé staðan nú þannig að frekari fækkun starfsfólks sé óhjá- kvæmileg. Staðan verði þó endur- metin reglulega en batamerki í augnablikinu séu fá. Óvissan sé áfram ríkjandi og útlitið verra en spáð var þegar veiran vonda fór fyrst að láta á sér kræla. Eftir að fólk hefur skráð sig at- vinnulaust hjá Vinnumálastofnun segir Guðbjörg að margir komi á skrifstofu verkalýðsfélagsins til að kanna stöðu sína og leita ráðgjafar. Reynt sé eftir föngum að vísa fólki veginn, svo sem að afla sér aukinnar þekkingar, en valkostir í þeim efnum hjá fræðslumiðstöðvum og skólum á svæðinu hafi verið styrktir. Úr háflóði í fjöru „Staðan er þröng. Hér var mikið að gera fyrir nokkrum misserum og háflóð ef svo má segja, en nú er fjara,“ segir Kjartan Már Kjart- ansson, bæjarstjóri í Reykjanesbæ. Atvinnuleysi þar mældist um síðustu mánaðamót um 19% og hefur aukist síðan, en stórar uppsagnir í fyrir- tækjum eru í nokkrum tilvikum enn ekki komnar til framkvæmda. Kjart- an segir sveitarfélagið hafa átt í við- ræðum við Vinnumálastofnun um að rýmka reglur sem gerðu fyrir- tækjum kleift að taka í vinnu fólk sem er á atvinnuleysisbótum, þannig að bæturnar renni þá til vinnuveit- andans en fólkið fái laun skv. samn- ingum. Verið sé að skoða þennan möguleika, en ekki sé ljóst hver út- koman úr því starfi verði. „Starfsemi á Keflavíkurflugvelli þarf að hefjast aftur sem fyrst, því þar eru störfin flest. Þegar best læt- ur sogar flugið til sín vinnuaflið. Til framtíðar litið er stóra verkefnið samt að gera atvinnutækifæri á svæðinu fleiri og fjölbreyttari. Þrátt fyrir góða viðleitni og mikið starf eru eggin enn í of fáum körfum,“ segir Kjartan Már. Mikið atvinnuleysi og óttast að staðan versni Guðbjörg Kristmundsdóttir Kjartan Már Kjartansson  35% fólks í VSKF eru án atvinnu  Egg í of fáum körfum UPPSAGNIR Í FERÐAÞJÓNUSTU Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Eftir gott sumar á Hótel Hamri við Borgarnes var rúmlega 20 manns sagt upp í gær. Að auki runnu út um mánaðamótin ráðn- ingarsamningar við nokkra sum- arstarfsmenn. Sigurður Ólafsson, framkvæmdastjóri á Hamri, segir að lítið virðist vera framundan og draga þurfi úr umsvifum næstu mánuði. Sigurður segir að Íslendingar hafi verið hryggjarstykkið í við- skiptum sumarsins. Frá lokum júlí og fram yfir miðjan ágúst hafi út- lendingum fjölgað í hópi viðskipta- vina, en með auknum höftum hafi dregið hratt úr komum þeirra. Samstarf við Icelandair-hótel „Hér var brjálað að gera frá miðjum maí og út ágústmánuð og í kringum helgarnar er vel bókað út septembermánuð,“ segir Sigurður. Viðskiptavinir yfir sumartímann eru að stórum hluta kylfingar, sem koma í Borgarnes til að leika golf og dvelja á golfhótelinu þar. Sig- urður og eiginkona hans, Ragn- heiður Karen Nielsen, eiga hótelið, en eru með samstarfssamning við Icelandair-hótel. Við hótelið er 18 holu golfvöllur, sem nýtur vin- sælda og er hótelið um leið klúbb- hús fyrir völlinn. „Hér hafa verið margir hópar sem að öllu jöfnu hefðu annars verið í golfi í öðru landi, en ég heyri ekki annað en fólki hafi jafn- vel liðið betur hér. Íslendingar hafa síðustu ár dvalið hér í aukn- um mæli og hlutfall þeirra verið stærra en á flestum öðrum Ice- landair-hótelum,“ segir Sigurður. Hann segir að enn sé gert ráð fyrir að taka á móti hópum, ráð- stefnum og fundum næstu mánuði ásamt því að vera með opið um helgar í vetur. Óljóst sé með hvaða hætti almenn opnun verði . Morgunblaðið/Eggert Gisting og golf Hótel Hamar í Borgarnesi er að hluta til rekið sem golfhótel og er myndin tekin á golfvellinum á fallegum sumardegi, af flöt 8. brautar. Yfir 20 sagt upp á Hótel Hamri  Gott sumar að baki  Lítið er fram- undan  Aukin höft drógu úr aðsókn 68 starfsmönnum Herjólfs var sagt upp í gær. 62 starfsmenn Fríhafnarinnar fengu uppsagnarbréf í gær. 133 starfsmönnum Isavia var sagt upp í síðustu viku. ÞUNG MÁNAÐAMÓT »

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.