Morgunblaðið - 01.09.2020, Side 2

Morgunblaðið - 01.09.2020, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 2020 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins vilja að Strætó ráðist í tilraunaverk- efni með sjálfkeyrandi strætisvagna. Í tillögu sem þeir flytja um málið á fundi borgarstjórnar í dag er lagt til að skorað verði á stjórn Strætó að ráðast í verkefnið. „Rekstur Strætó er þungur og tíðni ferða er lítil. Það blasir við að hægt er að fara betur með fjármuni með því að hefja sjálfkeyrslu, hægt er að auka tíðni ferða án þess að það kosti meira,“ segir Eyþór Laxdal Arnalds, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn. Hann vekur athygli á því að mikil þróun sé í sjálfkeyrandi bílum og borgir í nágrannalöndunum séu að gera tilraunir með notkun þeirra í almenningssamgöngum. „Við Ís- lendingar erum framarlega í tækninni á ýmsum sviðum. Við eig- um ekki að vera eftirbátar annarra varðandi samgöngur,“ segir Eyþór og getur þess að allar líkur séu á að sjálfkeyrandi bílar auki öryggi óvar- inna vegfarenda. Segir Eyþór að fyrsta skrefið yrði að fá Strætó til að velja leið til að gera slíka tilraun. Þá þurfi merk- ingar á götum að vera í lagi. Bendir hann á að allir bílar sem nú eru flutt- ir inn séu hálfsjálfvirkir og þurfi merkingar ávallt að vera í lagi. Getur nýst öllum Spurður hvort tillagan sé mót- leikur gegn fyrirhugaðri borgarlínu segir Eyþór að borgarlína sé í und- irbúningsferli og margt óljóst um kostnað. Aðrar borgir telji hægt að nota tækni sem ekki kallar á tuga milljarða króna fjárfestingu. Í stað þess að bíða eftir borgarlínu sé sjálf- keyrslan leið sem geti nýst öllum. Tilraun verði gerð með sjálfkeyrandi strætó  Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins lögð fram í dag Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Íslandshótel, sem eru stærsta hótel- keðja landsins, töpuðu ríflega einum milljarði króna á fyrstu sex mán- uðum ársins. Þetta má lesa úr árshlutareikningi fyrirtækisins sem sendur var til Kauphallar Íslands í gær. Fyrirtækið er með skráð skuldabréf á markaði þar. Í fyrra nam tap félagsins 183,6 milljónum króna yfir sama tímabil. Sala á gistingu og veitingum dróst saman um rúma 2,5 milljarða og nam 2,1 milljarði króna á tíma- bilinu. Aðrar tekjur drógust einnig verulega saman. Námu 120 millj- ónum en voru 214 milljónir á fyrstu sex mánuðum ársins 2019. Rekstrarkostnaður dróst einnig verulega saman. Vörunotkun nam tæpum 332 milljónum og dróst sam- an um 52%. Laun og launatengd gjöld námu 1,3 milljörðum og dróg- ust saman um tæp 47% og annar rekstrarkostnaður nam 576 milljón- um og dróst saman um tæp 26%. Fjármagnsgjöld jukust á tímabilinu og námu 695 milljónum en voru 629 milljónir yfir samanburðartímabilið í fyrra. Skuldabréf lenti í uppnámi Í skýrslu sem Deloitte gerði og er dagsett í gær er fjallað um hvort Ís- landshótel rísi undir þeim fjárhags- legu kvöðum sem á fyrirtækinu hvíla vegna fyrrgreindra skráðra skuldabréfa. Þar kemur fram að lánaþekja fyrirtækisins sé orðin of þunn miðað við kvaðirnar, þ.e. að vaxtaberandi skuldir þess séu orðn- ar meira en sjöfaldur rekstrarhagn- aður eða EBITDA, sem miðað var við í skráningarlýsingu skuldabréf- anna. Hlutfallið, samkvæmt Deloitte, er komið í 7,9. Við þessu varð að bregðast og í skýrslu endurskoðunarfyrirtækisins kemur fram að síðastliðinn föstu- dag, 28. ágúst, hafi skuldabréfa- eigendur samþykkt breytingar á skilmálum bréfanna er lúta að þess- um fjárhagslegu skilyrðum. Sam- komulagið felur í sér að þeir muni ekki krefjast gjaldfellingar eða grípa til annarra samningsbundinna úrræða gagnvart Íslandshótelum vegna brota á skilmálunum fram til 30. júní á næsta ári. Íþaka situr við sinn keip Íslandshótel hafa ekki greitt húsaleigu af Fosshótel Reykjavík, sem er stærsta hótel landsins, frá því í apríl síðastliðnum en þá var hótelinu lokað. Þetta kemur fram í athugasemdum við ársreikning fé- lagsins. Segir þar enn fremur að viðræður við leigusala, sem er fé- lagið Íþaka, sem er í eigu félagsins Mókolls sem aftur er í eigu Péturs Guðmundssonar sem oftast er kenndur við byggingafélagið Eykt, um lækkun húsaleigu hafi ekki skil- að árangri. Líkt og fram kom í Morgunblaðinu í ágúst gerði leigu- félagið tilraun til þess að ganga á bankaábyrgð Íslandshótela vegna vanefnda á leigusamningnum en hótelkeðjan fékk sett á lögbann á útgreiðslu bankaábyrgðarinnar þann 23. júní. Hefur fyrirtækið að eigin sögn lagt fram réttarstefnu fyrir dómi til þess að fá lögbannið staðfest og til lækkunar á leigu- greiðslum á meðan lokun hótelsins varir. Íslandshótel tapa milljarði á hálfu ári  Hafa enn ekki náð samkomulagi um lækkun húsaleigu á Fosshótel Reykjavík Morgunblaðið/Baldur Arnarson Hótelturn Íslandshótel reka stærsta hótel landsins í turninum. Ekkert nýtt innanlandssmit kórónu- veirunnar greindist við skimun í fyrradag. Er það í fyrsta sinn í þrjár vikur sem ekkert nýtt smit finnst inn- anlands. Beðið var eftir niðurstöðum úr mótefnamælingu úr tveimur sýn- um sem tekin voru á landamærum Ís- lands. Virk smit eru nú rúmlega 100 tals- ins og hafa flestir hinna smituðu verið í sóttkví við greiningu. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir þetta benda til þess að við séum að ná utan um þann faraldur sem er í gangi hér innanlands. Þórólfur sagði í gær á upplýs- ingafundi almannavarna að hann vænti þess að hægt yrði að slaka á takmörkunum vegna kórónu- veirunnar innanlands bráðlega. Hins vegar væri mikilvægt að skima áfram á landamærunum með einhverju móti. Í máli Þórólfs kom fram að unnið væri að gerð nýrra tillagna til heil- brigðisráðherra, en núverandi auglýs- ing ráðherra vegna sóttvarnaaðgerða rennur út í næstu viku. Hann sagðist ekki telja rétt að fara of geyst í að aflétta þeim takmörk- unum sem í gildi eru á landamærum Íslands á meðan aðrar þjóðir séu að herða reglur. Svo kunni vel að vera að samfélagið sé tilbúið að fara í svipað ástand og var í byrjun sumars, en brýnt sé að fara ekki of hratt í aflétt- ingu aðgerða. Þá sagði Þórólfur að í framhaldi af tilslökunum innanlands væri hægt að skoða tilslakanir á aðgerðum við landamærin. Þar væri allt til skoð- unar, meðal annars að annað fyrir- komulag yrði fyrir erlenda ferðamenn en þá sem hafa hér ríkisfang. 14 greinst við seinni skimun Fjórtán manns hafa greinst með kórónuveiruna við seinni skimun eftir komuna til landsins. Þar af hafa þrír greinst með veiruna við seinni sýna- töku eftir að nýjar reglur tóku gildi 19. ágúst. Alls hafa um 90 manns reynst smitaðir á landamærunum frá upphafi skimunar 15. júní. Sagði Þórólfur á fundinum í gær að við gætum verið ánægð með þann ár- angur sem hefur náðst og að þær að- gerðir sem gripið hefur verið til skil- uðu árangri. Þær væru síður en svo harðari en í mörgum öðrum löndum, sagði Þórólfur. Ljósmynd/Almannavarnir Upplýsingafundur almannavarna Þórólfur Guðnason og Páll Þórhallsson voru meðal þeirra sem sáu um fundinn. Bráðlega hægt að slaka á takmörkunum  Ekkert nýtt smit greindist innanlands í fyrradag Opnað var fyrir netspjall á upp- lýsingasíðu stjórnvalda um kór- ónuveirufaraldurinn, covid.is, í gær, en þeirri nýjung er ætlað að straumlínulaga upplýsinga- flæði yfirvalda til almennings. Þetta kom fram í máli Rögn- valds Ólafssonar, aðstoðaryfir- lögregluþjóns almannavarna- deildar ríkislögreglustjóra, á upplýsingafundi almannavarna í gær, en hann sagði að mikið væri um fyrirspurnir frá ýmsum aðilum sem bærust í gegnum tölvupóst, Facebook og fleiri samskiptaleiðir. Netspjallinu hefði verið komið upp til að samræma upplýsingagjöf, en það verður opið milli kl. 9 og 17 alla virka daga. Netspjall tek- ið í notkun NÝJUNG Á COVID.IS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.