Morgunblaðið - 01.09.2020, Side 10

Morgunblaðið - 01.09.2020, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 2020 Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - hitataekni.is Sími 588 6070 - hitataekni@hitataekni.is Sjálfvirk pottastýring með snertiskjá og vefviðmóti POTTASTÝRING Þverholti 5 • Mosfellsbæ • Sími 898 1744 • myndo.is Við búum til minningar myndó.isljósmyndastofa NJÓTUMMINNINGANNA BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Sveitarfélög sem eru að kikna undan hallarekstri hjúkrunarheimila fá eng- in efnisleg svör frá ríkinu þegar þau krefjast leiðréttingar á daggjöldum. Að minnsta kosti þrjú sveitarfélög hafa á þessu ári sagt upp samningum við ríkið um þessa þjónustu og fleiri eru að íhuga þá leið. Svo virðist sem sveitarfélögin séu að missa trúna á að ríkið standi við skyldur sínar. Aðstæður til reksturs hjúkrunar- heimila eru misjafnar. Almennt er þó talið að endar nái ekki saman. Það er að minnsta kosti raunin hjá mörgum þeirra heimila sem sveitarfélögin reka. Á það jafnt við um stór sem smá sveitarfélög. Tala um nauðungarsamninga Viðvarandi og vaxandi halli hefur verið á rekstrinum. Ástandið hefur versnað á þessu ári vegna aukins kostnaðar vegna launahækkana og lægri tekna vegna kórónuveiru- faraldursins. Undir lok síðasta árs gerðu samninganefndir Samtaka fyr- irtækja í velferðarþjónustu og Sam- bands íslenskra sveitarfélaga þjón- ustusamning sem liðlega 40 hjúkrunarheimili gengu inn í. Hann gildir til loka næsta árs en er með uppsagnarákvæðum. Samninga- nefndirnar lýstu því raunar yfir að þetta væri nauðungarsamningur þar sem ríkið beitti aflsmun til að ná sínu fram. Því hafi verið lýst yfir að 216 milljóna króna fjárveiting samkvæmt fjárlögum 2019 yrði ekki greidd út nema gengið yrði frá samningum auk þess sem óljóst hafi verið með hækk- anir á árinu 2020. Áður en lengra er haldið er rétt að geta þess að Garðabær sagði fyrir nokkrum árum upp samningum við ríkið um rekstur Ísafoldar en Hrafn- ista tók yfir reksturinn eftir að þjark sveitarfélagsins og ríkisins bar ekki árangur. Þá höfnuðu dómstólar kröfu Garðabæjar um að ríkið greiddi upp- safnaðan halla, meðal annars á þeirri forsendu að ekki var í gildi rekstr- arsamningur sem skyldaði ríkið til þess að greiða árlegan hallarekstur. Þá hafa nokkur sveitarfélög neitað að gera samninga um rekstur ný- byggðra hjúkrunarheimila sem þau höfðu barist fyrir að fá, nema dag- gjöldin nægðu fyrir kostnaði. Ríkið rekur þess vegna sjálft heimili á Sel- tjarnarnesi og Egilsstöðum og víðar. Langar til að reka heimilin Heimilt var að segja upp samning- unum sem gerðir voru í lok síðasta árs sex mánuðum eftir gildistöku og sögðu Akureyrarbær, Hornafjarð- arbær og Vestmannaeyjakaupstaður samningi upp um leið og það var unnt. Hætta þessi sveitarfélög rekstrinum að óbreyttu um áramót eða í lok janúar. Bæði Hornfirðingar og Eyjamenn hafa áhuga á að halda rekstri áfram en þó aðeins gegn því að fá viðbótargreiðslur til að koma í veg fyrir hallarekstur en Akureyr- ingar voru strax ákveðnir að losa sig út úr þessu vonda sambandi við ríkið. Heilbrigðisráðuneytið brást við því með því að tilkynna um yfirtöku Heil- brigðisstofnunar Norðurlands á rekstri öldrunarþjónustu Akureyrar- bæjar. Hin tvö sveitarfélögin og önn- ur sem hafa verið að krefjast leiðrétt- inga hafa fengið þau svör að ekki sé áhugi á viðræðum um málefni heim- ilanna fyrr en niðurstaða fæst í út- tekt á rekstrarfyrirkomulagi hjúkr- unarheimila sem nú mun unnið að. Matthildur Ásmundardóttir, bæj- arstjóri í Sveitarfélaginu Hornafirði, segir að fyrir dyrum standi að hefja viðræður við Sjúkratryggingar Ís- lands um það hvernig standa skuli að yfirfærslu þjónustunnar til ríkisins í lok janúar. Rekstur hjúkrunarheimila er aug- ljóslega hluti af heilbrigðisþjónust- unni í landinu sem ríkinu ber að sjá um. Samt er þetta nærþjónusta við íbúana sem sveitarfélögin vilja gjarna sinna, ef þau geti gert það án þess að nota til þess útsvar íbúanna sem þörf er fyrir í lögbundnum verk- efnum þeirra. „Okkur langar að gera þetta og það er erfitt að skilja við þetta fyrirkomulag en það er ekki hægt nema rekstrarfé til stofnunar- innar verði bætt verulega,“ segir Matthildur. Störfin eru mikilvæg „Heimilið er rekið með miklum halla á hverju ári og hann eykst stöð- ugt. Greiðslur frá ríkinu standa ekki undir kostnaði,“ segir Þorbjörg Gísladóttir, sveitarstjóri Mýrdals- hrepps sem rekur dvalar- og hjúkr- unarheimilið Hjallatún í Vík. Hallinn var 23 milljónir á síðasta ári og stefn- ir í 30 milljónir í ár. Það er stór biti að kyngja fyrir fámennt sveitarfélag. Þorbjörg segir að sveitarstjórn sé að velta fyrir sér möguleikum í stöð- unni. „Við viljum halda heimilinu því það er mikilvægt fyrir okkur. Störfin átján eru verðmæt fyrir okkur og við þurfum að verja þau. Við vitum ekki til hvers það leiðir ef við segjum okk- ur frá rekstrinum,“ segir Þorbjörg og bendir á hversu mikilvæg opinber störf eru í litlu sveitarfélagi þar sem atvinnulífið er einhæft. Margét Ýr Sigurgeirsdóttir, hjúkr- unarforstjóri á hjúkrunarheimilinu Lundi á Hellu, segir að 14 milljónir hafi vantað upp á að endar næðu saman á síðasta ári og nú stefni í enn meiri halla vegna þess að laun og annar kostnaður sé að hækka en dag- gjöldin haldist óbreytt. Hjúkrunar- heimilið er rekið sem sjálfstæð eining þótt sveitarfélögin beri í raun ábyrgð á rekstrinum og hún segir að halla- rekstur leiði til þess að heimilið safni skuldum. Fjarðabyggð rekur tvö hjúkrunarheimili. Halli hefur ver- ið á rekstrinum í sex ár og stefnir í 50 milljóna króna halla í ár. Ragnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri hjúkr- unarheimila Fjarðabyggðar, segir að bæjarstjórn muni væntanlega ákveða í þessum mánuði hvort hún haldi rekstrinum áfram eða segi samningum upp. Hann segir að mikil samstaða hafi verið um starf- semina þar eins og víða annars staðar og sé það erfið pólitísk ákvörðun og viðkvæm að segja sig frá rekstr- inum enda hafi íbúarnir stutt þessa starfsemin með margvíslegum hætti. Það sé þó staðan sem flestöll sveitarfélög standi frammi fyrir. Telur hann líklegt að mörg sveitarfélög muni elta boltann sem Akureyrarbær sparkaði af stað. Erfið pólitísk ákvörðun FJARÐABYGGÐ REKUR TVÖ HJÚKRUNARHEIMILI Ragnar Sigurðsson Eru að missa trúna á ríkið  Viðvarandi og aukinn halli á rekstri hjúkrunarheimila  Þrjú sveitarfélög hafa sagt upp samningum við ríkið og fjölmörg eru að íhuga stöðu sína  Flest sveitarfélögin vilja gjarnan annast þjónustuna Morgunblaðið/Ómar Garðabær Hrafnista tók við rekstri hjúkrunarheimilisins Ísafoldar eftir að Garðabær sagði sig frá samningi við ríkið eftir deilur um kostnað. Aldrei hafa færri talið ríkisstjórn- ina gera hæfilega mikið til að fyr- irbyggja eða bregðast við nei- kvæðum efnahagslegum áhrifum tengdum kórónuveirunni. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýjum þjóðarpúlsi Gall- up, en hringt var í 1.638 manns dagana 13. til 23. ágúst, til að kanna viðhorf almennings til ým- issa þátta sem tengjast faraldr- inum. Samkvæmt könnuninni telja 57,8% svarenda að ríkisstjórnin sé að gera hæfilega mikið, en lægst hafði hlutfallið áður mælst um síðustu mánaðamót, þá 58%. Hæst var hlutfallið í mars, eða 75,1%. Tók það snögga dýfu í byrjun apríl og fór niður í 58,4% áður en það tók að glæðast á ný í sumar og mældist þá hæst 67,5% í kringum mánaðamótin maí-júní. Þeim fækkar sem telja stjórnvöld gera nóg gegn veirunni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.