Morgunblaðið - 07.09.2020, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.09.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2020 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. - síðan 1986 - Skútuvogi 6 104 Reykjavík Sími: 568 67 55 alfaborg.is Demantsleiðin, nýr vegur milli Kelduhverfis og Mývatnsöræfa með tengingu við Dettifoss, Hljóðakletta og fleiri staði, var opnuð formlega í gær. Þrír ráðherrar, þau Þórdís Kolbrún Reyk- fjörð Gylfadóttir, Katrín Jakobsdóttir og Sig- urður Ingi Jóhannsson, klipptu á borða sem markaði táknræna opnun leiðarinnar, sem er um 60 kílómetrar. Vegurinn verður allur bundinn slitlagi og aðeins frágangur er eftir. Miklar vonir eru bundnar við opnun Demants- hringsins, sagði Arnheiður Jóhannsdóttir, fram- kvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands, við at- höfnina í gær. Sú hugmynd að markaðssetja leiðina og kynna hefði fyrst komið fram fyrir 30 árum og margt hefði gerst á þeim tíma. Opnun leiðarinnar nú, á óvenjulegum tímum í ferða- þjónustu, komi sér vel. „Demantshringurinn er fullkominn fyrir hið nýja ferðafólk, könnuði sem munu taka sér góðan tíma til að skoða minna svæði á lengri tíma, öfugt við þá ferðamennsku sem hefur verið ráðandi hér á landi undanfarinn áratug, þar sem fólk hefur keyrt hringveginn á sjö til tíu dögum,“ sagði Arnheiður og bætti við: „Þetta er vegur sem ekki bara opnar leið ferðafólks að mikilfenglegustu náttúruperlum heims heldur er þetta líka leið sem mun tengja samfélög og efla samstöðu.“ sbs@mbl.is Tímamót í samgöngumálum og ferðaþjónustu á Norðurlandi Ljósmynd/Pedromyndir-Axel Þrjú opnuðu Demantsleiðina við Dettifoss Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Flugið til Eyja hefur verið á mark- aðsforsendum svo ríkið getur ekki stigið þarna inn nema með þeim al- mennu ráðstöfunum sem nú eru í undirbúningi,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra. Flugfélagið Ernir fór sl. föstudag sína síðustu áætlunarferð, í bili að minnsta kosti, til Vestmannaeyja. Haft hefur verið eftir Herði Guð- mundssyni, framkvæmdastjóra Ernis, að flug til Eyja hafi ekki bor- ið sig og því hafi verið sjálfhætt. Ráðstafanir flugfélagsins hafa verið ræddar af nokkrum þingmönnum Suðurkjördæmis við bæjaryfirvöld í Eyjum. Fulltrúar þeirra hafa óskað eftir samtali við ríkið um málið. Þrjár ferðir fram og til baka Á næstu dögum verða kynntar niðurgreiðslur ríksins í innanlands- flugi, þar sem íbúar tiltekinna svæða úti á landi fá allt að þrjár ferðir fram og til baka á verulega lægra verði en verið hefur til þessa. Þetta er „skoska leiðin“ svonefnda, sem í ár eru eyrnamerktar 200 millj- ónir króna og ætlaðar 600 milljónir á því næsta. „Ég bind miklar vonir við þessar ráðstafanir í innanlandsfluginu, sem vonandi gera mögulegt að fljúga aft- ur til Eyja. Almennt hljóta sam- göngumál Eyjamanna svo alltaf að vera mikið í deiglunni; ferja og flug eru mikilvægar lífæðar staðarins sem leggur mikið til samfélagsins,“ segir Sigurður Ingi. Öllu starfsfólki Herjólfs ohf., fyrirtækis bæjarins sem stendur að útgerðinni, var sagt upp í síðustu viku. Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Eyjum, hefur sagt að 400 milljónir króna þurfi inn í reksturinn svo end- ar nái saman. Helming þeirrar fjár- hæðar megi rekja til þess að ríkið hafi ekki staðið við sínar skuldbind- ingar í gildandi þjónustusamningi. Hinar 200 milljónirnar sem vanti séu tekjutap vegna kórónuveiru- faraldursins, en farþegaflutningar og aðrir flutningar með ferjunni eru mun minni en var. Þurfa hugsanlega að stokka upp rekstur Herjólfs Um Herjólfsmál segir Sigurður Ingi að mikilvægt sé að Vegagerðin og Vestmannaeyjabær nái sam- komulagi í yfirferð og túlkun þjón- ustusamnings um rekstur Herjólfs. Niðurstaða þess mun liggja fyrir á næstu dögum. Samþykkt var að veita heimild til allt að 260 milljóna króna vegna Covid, um fjórðungur hefur verið greiddur. Næstu greiðslur velti á hve mikill skaðinn af völdum Covid verður. Enda þótt starfsfólki sem við ferj- una starfar hafi verið sagt upp er áætlun hennar óbreytt; sex ferðir fram og til baka á degi hverjum. „Ég veit að fulltrúar Vegagerðar og Vestmannaeyjabæjar hafa að undanförnu átt í viðræðum um Herjólfsmál og væntanlega finnst lausn. Rekstur Herjólfs er á ábyrgð Vestmannaeyjabæjar sem þarf hugsanlega að stokka líka upp í rekstri ferjunnar,“ segir samgöngu- ráðherra. Skoska leiðin auðveldi Eyjaflug  Nýjar ráðstafanir til stuðnings innanlandsflugi verða kynntar í vikunni  Herjólfssamningur er í yfirferð  Mikilvægar lífæðar  Samgöngumál Vestmannaeyja eru alltaf í deiglunni, segir ráðherra Allt virðist í hnút í kjaradeilu milli Norðuráls á Grundartanga og Verkalýðsfélags Akraness og lítið þokar í viðræðum. Vilhjálmur Birg- isson, formaður félagsins, er ómyrk- ur í máli og segir „það munu aldrei gerast“ að félagsmenn samþykki lakari kjarabætur en þær sem lífs- kjarasamningurinn gerir ráð fyrir. Samningar hafa verið lausir í níu mánuði og vinnustöðvun hefur verið boðuð frá 1. desember nk. Í samtali við blaðið segir Vilhjálmur að ágrein- ingurinn snúist um þá skoðun við- semjanda að í núverandi kröfum megi finna kjaratengda liði sem hækki laun starfsmanna umfram það sem almennt hafi verið samið um, en því hafnar Vil- hjálmur með öllu. Þvert á móti full- yrðir hann að til- boð verkalýðs- félagsins sé í einu og öllu sniðið að lífskjarasamn- ingnum sem Sam- tök atvinnulífsins hafi tekið þátt í að móta og sam- þykkja. Aðspurður hvaða ástæður geti legið að baki meintum skorti á samn- ingsvilja segir hann að „svo megi vera að eigendur þessara fyrirtækja horfi á vinnuaflið með öðrum hætti en gert er hér á landi“ og bætir við að tvö fyrirtæki, Norðurál og Rio Tinto, séu ekki tilbúin að fara „þessa línu“. Lokatilboð lagt fram Verkalýðsfélagið hefur gert loka- tilboð og gerir Vilhjálmur ekki ráð fyrir að við því verði hróflað. Næsti fundur hjá sáttasemjara hefur verið boðaður 16. september nk. og verða þeir svo haldnir á hálfsmánaðar- fresti fram að boðuðu verkfalli. Hann segir ágreininginn djúpstæð- an en ekki verði „gefin tomma eftir“ í þessum viðræðum við Norðurál, sem nú hafi boltann í hendi sér. sighvaturb@mbl.is Djúpstæður ágreiningur í deilunni á Grundartanga  Skýlaus krafa VLFA um efndir á lífskjarasamningnum Vilhjálmur Birgisson Í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag upplýsir Jón Baldvin Hanni- balsson, fyrrver- andi utanríkis- ráðherra, að lögmanni sínum hafi borist ákæra frá saksóknara vegna meints kynferðisbrots á heimili sínu gagnvart gestkomandi konu. Sakarefnið segir hann vera að hafa „strokið utan klæða upp og nið- ur eftir rassi“ eins og komist er að orði. Á þetta að hafa gerst í augsýn eiginkonu Jóns og annarra gesta. „Hreinn uppspuni,“ segir Jón Bald- vin í greininni. Bætir við að vitnis- burður móður konunnar sem fyrir þessu á að hafa orðið sé ótrúverð- ugur vegna framburðar hennar í öðru máli af sama toga gegn sér fyr- ir margt löngu. „Þetta er seinasta útspilið í skipu- lagðri aðför að mannorði mínu og Bryndísar,“ segir Jón Baldvin, sem greinir frá því að Bryndís hafi skrif- að bók um fjölskylduharmleik þeirra sem settur sé í samhengi við þjóð- félagslegan veruleika. Bókin er væntanleg á næstu dögum. »16 Ákærður fyrir kyn- ferðisbrot Jón Baldvin Hannibalsson  Hreinn uppspuni, segir Jón Baldvin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.