Morgunblaðið - 07.09.2020, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 07.09.2020, Blaðsíða 26
ÍSLAND – ENGLAND 0:1 0:1 Raheem Sterling (víti) 90. MM Guðlaugur Victor Pálsson Kári Árnason M Hörður Björgvin Magnússon Sverrir Ingi Ingason Hjörtur Hermannsson Albert Guðmundsson Rautt spjald: Kyle Walker 70., Sverrir Ingi Ingason 90. Dómari: Srdan Jovanovic, Serbíu. Lið Íslands: (4-4-2) Mark: Hannes Þór Halldórsson. Vörn: Hjörtur Her- mannsson, Sverrir Ingi Ingason, Kári Árnason, Hörður Björgvin Magnús- son. Miðja: Arnór Ingvi Traustason (Emil Hallfreðsson 76), Birkir Bjarna- son, Guðlaugur Victor Pálsson, Jón Dagur Þorsteinsson (Arnór Sigurðs- son 65). Sókn: Albert Guðmundsson, Jón Daði Böðvarsson (Hólmbert Aron Friðjónsson 90). Lið Englands: (4-3-3) Mark: Jordan Pickford. Vörn: Kyle Walker, Joe Gomez, Eric Dier, Kieran Trippier. Miðja: James Ward-Prowse, Declan Rice, Phil Foden (Danny Ings 68). Sókn: Jadon Sancho (Trent Alexander- Arnold 73), Harry Kane (Mason Greenwood 78), Raheem Sterling 26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2020 Þjóðadeild UEFA A-deild: 2. riðill: Ísland – England ...................................... 0:1 Danmörk – Belgía .................................... 0:2 Pepsi Max-deild karla Fjölnir – Breiðablik.................................. 1:4 Staðan: Valur 12 9 1 2 28:12 28 Breiðablik 12 7 2 3 28:18 23 Fylkir 13 7 1 5 21:18 22 Stjarnan 11 5 6 0 18:9 21 KR 11 6 2 3 22:15 20 FH 11 6 2 3 22:16 20 Víkingur R. 11 3 5 3 19:18 14 ÍA 12 4 2 6 27:29 14 HK 13 4 2 7 21:28 14 KA 12 1 8 3 9:14 11 Grótta 13 1 3 9 10:27 6 Fjölnir 13 0 4 9 11:32 4 Pepsi Max-deild kvenna Selfoss – Stjarnan .................................... 2:3 Fylkir – Þór/KA........................................ 4:2 Valur – ÍBV............................................... 4:0 FH – KR.................................................... 4:2 Þróttur R. – Breiðablik............................ 0:4 Staðan: Valur 12 10 1 1 31:9 31 Breiðablik 11 10 0 1 47:2 30 Fylkir 11 5 4 2 18:16 19 Selfoss 11 5 1 5 15:13 16 ÍBV 12 5 1 6 13:23 16 Stjarnan 12 4 2 6 21:27 14 Þór/KA 12 3 2 7 16:28 11 Þróttur R. 12 2 4 6 17:30 10 FH 12 3 0 9 10:29 9 KR 9 2 1 6 11:22 7 Lengjudeild karla Þróttur R. – Vestri ................................... 2:1 Leiknir F. – Afturelding .......................... 1:3 Leiknir R. – Fram .................................... 0:1 Víkingur Ó. – Magni................................. 3:2 Staðan: Fram 14 9 4 1 33:19 31 Leiknir R. 14 8 2 4 33:19 26 Keflavík 12 7 3 2 38:19 24 ÍBV 13 6 6 1 24:15 24 Grindavík 12 5 5 2 26:22 20 Þór 13 6 2 5 25:22 20 Vestri 14 5 4 5 19:20 19 Afturelding 14 4 3 7 28:23 15 Víkingur Ó. 14 4 3 7 19:32 15 Þróttur R. 14 3 2 9 11:27 11 Leiknir F. 14 3 2 9 15:32 11 Magni 14 2 2 10 15:36 8 2. deild karla Þróttur V. – Völsungur ............................ 3:0 KF – Njarðvík........................................... 2:4 Víðir – Dalvík/Reynir............................... 2:2 Fjarðabyggð – Selfoss ............................. 4:2 ÍR – Kári ................................................... 1:2 Kórdrengir – Haukar............................... 2:1 Staðan: Kórdrengir 14 9 4 1 28:10 31 Selfoss 14 10 1 3 22:13 31 Njarðvík 14 8 3 3 27:18 27 Þróttur V. 14 7 4 3 23:15 25 Haukar 14 8 0 6 27:20 24 KF 14 7 1 6 27:27 22 Fjarðabyggð 14 6 3 5 22:18 21 Kári 14 5 4 5 22:18 19 ÍR 14 4 1 9 23:27 13 Víðir 15 4 1 10 18:37 13 Dalvík/Reynir 14 2 3 9 17:31 9 Völsungur 15 2 1 12 17:39 7 Lengjudeild kvenna Tindastóll – Grótta ................................... 4:0 Afturelding – Völsungur.......................... 1:0 ÍA – Keflavík............................................. 0:1 Fjölnir – Augnablik.................................. 2:1 Staðan: Tindastóll 12 10 1 1 34:5 31 Keflavík 12 8 3 1 32:12 27 Haukar 10 6 2 2 18:9 20 Grótta 12 5 4 3 15:16 19 Afturelding 11 5 3 3 15:13 18 Augnablik 11 3 3 5 15:25 12 ÍA 11 1 6 4 16:19 9 Víkingur R. 11 2 3 6 13:22 9 Fjölnir 12 2 1 9 7:24 7 Völsungur 10 1 0 9 5:25 3  Meistarakeppni karla Valur – ÍBV........................................... 24:26 Meistarakeppni kvenna Fram – KA/Þór..................................... 23:30   Knattspyrna Lengjudeild karla: Þórsvöllur: Þór – Keflavík ................... 17:30 Grindavíkurvöllur: Grindavík – ÍBV .. 17:30 Lengjudeild kvenna: Víkingsvöllur: Víkingur R. – Haukar 19:15 3. deild karla: Fylkisvöllur: Elliði – Ægir ....................... 20 Samsung-völlurinn: KFG – Augnablik.... 20 2. deild kvenna: Kórinn: HK – Álftanes......................... 19:15 4. deild karla A: Versalavöllur: Ýmir – GG .................... 17:30 Í KVÖLD! Í LAUGARDAL Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Ísland var grátlega nálægt því að ná í stig gegn Englandi er landslið þjóðanna leiddu saman hesta sína á Laugardalsvelli í Þjóðadeild karla í fótbolta á laugardag. Skoraði Ra- heem Sterling sigurmark úr víti á lokamínútunni. Wayne Rooney skoraði úr víti gegn Íslandi á EM í Frakklandi 2016, en Ísland jafnaði jafnóðum og skoraði sigurmark skömmu síðar. Aftur svaraði Ísland um leið, fékk víti strax í næstu sókn, en Birkir Bjarnason hitti ekki markið og þar við sat. Án sjö lykilmanna Ísland var án sjö lykilmanna í leiknum og því engin skömm að tapa naumlega fyrir gríðarlega sterku ensku liði, en að tapa leikn- um á þennan hátt var sérstaklega svekkjandi. Leikplan Eriks Hamr- éns og Freys Alexanderssonar var hársbreidd frá því að ganga full- komlega upp. Íslenska liðið leyfði þeim ensku að vera með boltann og stillti upp þéttri vörn sem Englend- ingar áttu í erfiðleikum með að brjóta niður. Átti að treysta á hrað- ar sóknir og föst leikatriði, svo sem ekkert nýtt. Svipað upplegg skilaði okkur inn á tvö stórmót. Liðið sem komst á og spilaði á stórmótunum tveimur var hins vegar mun sterk- ara vegna fjarveru lykilmanna á laugardag. Það var vitað mál að ef Ísland ætlaði að spila blússandi sóknar- bolta gæti farið afar illa. Sterkara íslenskt lið tapaði t.a.m. 0:6 fyrir Sviss á útivelli í sömu keppni fyrir tveimur árum. Ef litið er á tölfræð- ina lítur hún ekki sérstaklega vel út. Ísland var 22 prósent með bolt- ann gegn 78, átti tvö skot gegn þrettán, fékk eina hornspyrnu gegn sjö og gaf 212 sendingar á móti 770 hjá enska liðinu. Miðað við aðstæður var hins veg- ar lítið annað í stöðunni en að fara þessa leið gegn liði sem er með betri leikmenn í hverri einustu stöðu. Það verður að spila á styrk- leikunum og sérstaklega þegar sterkir póstar eru fjarverandi. Guðlaugur nýtti tækifærið Það kemur maður í manns stað og nokkrir leikmenn nýttu tækifær- ið vel. Guðlaugur Victor Pálsson fékk það erfiða hlutverk að fylla skarðið sem landsliðsfyrirliðinn sjálfur Aron Einar Gunnarsson skildi eftir sig á miðjunni og gerði það gríðarlega vel. Hvað eftir ann- að stöðvaði hann hættulegar sóknir, var réttur maður á réttum stað og lét leikmenn Englendinga finna fyrir því. Guðlaugur átti stórgott tímabil í Þýskalandi með Darm- stadt og er greinilega með sjálfs- traustið í botni. Aldrei hefur hann spilað eins vel. Þá er ekki annað hægt en að hrósa hinum 37 ára gamla Kára Árnasyni sem bar fyr- irliðabandið í fjarveru Arons. Kári hafði hvað eftir annað betur í bar- áttu við Harry Kane og ekki í fyrsta skipti. Sverrir Ingi Ingason átti fínan leik við hliðina á honum en var óheppinn að fá dæmda á sig vítaspyrnu og í leiðinni fá sitt ann- að gula spjald. Bakverðirnir Hjörtur Her- mannsson og Hörður Björgvin Magnússon stóðu fyrir sínu. Hörð- ur hélt Jadon Sancho, einum efni- legasta leikmanni Evrópu, algjör- lega niðri og Hjörtur gerði ágæt- lega á móti Raheem Sterling. Var um fyrsta keppnisleik Hjartar að ræða síðan hann átti afleitan leik gegn Albaníu í undankeppni EM fyrir ári og hann sýndi hvað í hon- um býr. Jón Dagur Þorsteinsson var í byrjunarliði í fyrsta skipti í keppnisleik og átti erfiðan dag, eins og öll sóknarlína Íslands sem fékk fá færi. Enn snúnara í Belgíu Verkefnið sem bíður annað kvöld er enn snúnara en Ísland mætir Belgíu ytra klukkan 18:45. Belgía hefur aðeins tapað tveimur leikjum síðan 2016 og var annar þeirra í undanúrslitum HM gegn Frökkum 2018. Belgía er með sitt allra sterk- asta lið og sat Eden Hazard allan tímann á bekknum í 2:0-sigrinum á Dönum á Parken á laugardag. Ís- land verður án Hannesar Þórs Halldórssonar, Kára Árnasonar, Kolbeins Sigþórssonar og Sverris Ingasonar og því ljóst að þjálfara- teymið stillir upp nýjum markverði og miðvörðum. Það verður spenn- andi að sjá hvort Ögmundur Krist- insson eða Rúnar Alex Rúnarsson stendur á milli stanganna í Belgíu, en það verður væntanlega nóg að gera hjá þeim sem verður fyrir val- inu. Það má búast við að uppleggið verði svipað; Belgía verður með boltann og leitar leiða framhjá þéttri íslenskri vörn. Þá verður treyst á skyndisóknir og föst leik- atriði eins og oft áður. Vonandi gengur það eins vel og gegn Eng- landi, en þetta skiptið verði það stöngin inn en ekki út. Grátlega nálægt stiginu  Hársbreidd frá jafntefli gegn Englandi  Sterling skoraði en Birkir klikkaði Morgunblaðið/Eggert Tilfinningar Raheem Sterling var öllu kátari en Íslendingarnir eftir víti Birkis Bjarnasonar í blálokin. Sterling skoraði sjálfur úr víti stuttu áður. Birkir og Arnór Sigurðsson trúa vart sínum eigin augum en Sterling hlær. Framarar styrktu stöðu sína á toppi fyrstu deildar karla í knattspyrnu, Lengjudeildarinnar, með 1:0-sigri á Leikni úr Reykjavík í uppgjöri toppliðanna í 16. umferðinni í gær. Alexander Már Þorláksson skoraði sigurmark Framara sem nú eru með 31 stig á toppnum, fimm stig- um á undan Leikni og sjö á undan Keflavík sem á tvo leiki til góða. Þróttur R. komst upp úr fallsæti með 2:1-heimasigri gegn Vestra. Víkingur vann 3:2-sigur á Magna í Ólafsvík og Afturelding vann 3:1 úti gegn Leikni í Fáskrúðsfirði. Fram vann toppslaginn Morgunblaðið/Eggert Toppslagur Sólon Breki Leifsson og Albert Hafsteinsson í leiknum. Ísland dróst í riðil með Portúgal, Alsír og Marokkó á HM karla í handbolta sem fram fer í Egypta- landi í byrjun næsta árs. Eru liðin í F-riðli. Ísland var í þriðja styrk- leikaflokki og slapp nokkuð vel með riðil. Ísland mætti Portúgal á EM í byrjun árs og hafði þá betur, 28:25. Þrjú efstu lið hvers riðils fara áfram í milliriðla og fari ís- lenska liðið áfram mætir það and- stæðingum úr E-riðli en þar eru Noregur, Austurríki og Frakkland. Svo bætist við lið úr undankeppni Norður-Ameríku og Karíbahafs. Ísland heppið með HM-riðil Ljósmynd/Einar Ragnar Haraldsson HM Elvar Örn Jónsson í baráttu gegn Portúgal á EM í janúar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.