Morgunblaðið - 07.09.2020, Blaðsíða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2020
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
Magnaður nýr spennuþriller
með Russell Crowe í aðalhlutverki.
SÝND MEÐ ÍSLENSKU
OG ENSKU TALI
AÐRAR MYNDIR Í
SÝNINGU:
* Harry Potter
* Tröll 2 (ísl. tal)
* Hvolpasveitin (ísl. tal)
* The Secret :
Dare to dream
FYRSTA STÓRMYND ÁRSINS
Nýjasta Meistaraverk
Christopher Nolan
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
Frábær ný teiknimynd fyrir
alla fjölskylduna.★★★★★
★★★★★
★★★★★
The Guardian
The Times
The Telegraph
» Íslenska djassrokk-sveitin Gammar hélt
tónleika á Jazzhátíð
Reykjavíkur í ráðhúsinu
fyrir helgi. Gammar
hafa haldið tónleika víða
hér á landi og í Svíþjóð,
Skotlandi og víðar um
Evrópu. Þrír meðlimir
sveitarinnar hafa verið
með frá upphafi, þeir
Björn Thoroddsen gít-
arleikari, Stefán S. Stef-
ánsson saxófónleikari
og Þórir Baldursson pí-
anó- og orgelleikari.
Auk þeirra leika í sveit-
inni Bjarni Sveinbjörns-
son bassaleikari og
trommuleikarinn Sigfús
Óttarsson. Gammar
léku við hvurn sinn fing-
ur og gestir gerðu góð-
an róm að flutningi
djassrokkaranna.
Gammar létu gamminn geisa á Jazzhátíð Reykjavíkur
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Einbeittir Þórir Baldursson lék á flygil og til hliðar við hann má sjá bassaleikarann Bjarna og trymbilinn Sigfús.
Sjóaðir Björn Thoroddsen gítarleikari og Stefán Stefánsson saxófónleikari.
Tónleikagestir Elín Ingimundardóttir og Sædís Eva Örvarsdóttir.
Átta kvikmyndir munu keppa í
Vitranaflokki RIFF, Alþjóðlegrar
kvikmyndahátíðar í Reykjavík, sem
hefst 24. september og er það aðal-
keppnisflokkur hátíðarinnar. Í hon-
um eru sýndar framsæknar kvik-
myndir eftir upprennandi leikstjóra
sem tefla fram sinni fyrstu eða ann-
arri mynd. Í ár hefur dagskrárstjór-
inn Frédéric Boyer valið átta nýjar
myndir í flokkinn.
Einmana klettur/Lonely Rock
Norðurlandafrumsýning á fyrstu
kvikmynd argentínska kvikmynda-
gerðarmannsins Alejandros Telé-
macos Tarrafs í fullri lengd. Í henni
segir frá lamadýrahirði og ferðalagi
hans til að verja lífsviðurværi sitt.
Nótt konunganna/
La Nuit des Rois
Leikstjóri myndarinnar, Philippe
Lacote, ólst upp í Abidjan á Fíla-
beinsströndinni þar sem myndin
gerist en sögusvið hennar er La
Maca-fangelsið þar sem fangar ráða
ríkjum. Segir þar af ungum manni
sem er úthlutað hlutverki sögu-
manns en samkvæmt reglum fang-
elsisins mun hann ekki geta flúið ör-
lög sín en reynir hvað hann getur að
láta söguna endast til morguns.
Skítapleis/Shithouse
Bandaríkjamaðurinn Cooper
Raiff skrifaði, leikstýrði og klippti
myndina sem segir af Alex, einmana
fyrsta árs háskólanema sem ákveður
að fara í teiti í hið alræmda Skíta-
pleis háskólasvæðisins. Þar verður
hann hrifinn af stúlku.
Svig/Slalom
Fyrsta kvikmynd franska leik-
stjórans Charléne Favier segir af
hinni 15 ára gömlu Lyz sem nýlega
hefur hlotið skólavist í eftirsóttum
skíðaskóla með það fyrir augum að
gerast atvinnuskíðakona. Þar mis-
notar einn kennaranna vald sitt
gagnvart henni og þykir myndin
veita óvenjuraunsæja sýn á kynferð-
islegt ofbeldi í keppnisíþróttum.
Þetta er ekki jarðarför, þetta er
upprisa/This is not a burial, it’s a
resurrection
Kvikmynd eftir Lemohang Jere-
miah Mosese sem er handritshöf-
undur, leikstjóri og listamaður frá
Lesótó. Í myndinni segir af áttræðu
ekkjunni Mantoa sem fer að undir-
búa eigin dauðdaga eftir að hafa
misst eina eftirlifandi son sinn.
Áform hennar um friðsæl ævilok
fara á annan veg þegar hún kemst að
því að gera eigi uppistöðulón í þorp-
inu, sem mun færa kirkjugarðinn á
kaf.
Hold og blóð/Wildland
Kvikmynd eftir hina dönsku Jean-
ette Nordahl en í henni er áhorfand-
inn látinn kljást við þá áleitnu spurn-
ingu hverju hann sé tilbúinn að
fórna fyrir fjölskyldu sína.
Síðustu vordagarnir/
Last Days of Spring
Kvikmynd eftir Þjóðverjann Isa-
bel Lamberti. Í henni er sögð saga
fjölskyldu sem býr í hinu ólöglega
La Cañada Real-hverfi í Madríd og
lifir í biðstöðu. Í myndinni er teflt
saman raunverulegu umhverfi og
fólki í anda heimildarmynda.
200 Metres/200 metrar
Kvikmynd eftir palestínska hand-
ritshöfundinn og leikstjórann
Ameen Nayfeh. Í henni segir frá
átakanlegu ferðalagi hins palest-
ínska Mustafa, sem býr á vinstri
bakkanum, til að sameinast syni sín-
um sem liggur á sjúkrahúsi á hægri
bakkanum.
Myndirnar verða sýndar á vefnum
riff.is þar sem hægt verður að kaupa
sér miða og allir landsmenn geta því
notið dagskrárinnar.
Átta kvikmyndir
í Vitrunum RIFF
Aðalkeppnisflokkur hátíðarinnar
Fangi Úr Nótt konunganna.