Morgunblaðið - 07.09.2020, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2020
Lindex á Íslandi opnaði um helgina
nýja verslun í miðbæ Egilsstaða.
Mikill fjöldi lagði leið sína í versl-
unina fyrsta daginn, eða um helm-
ingur bæjarbúa Egilsstaða og Fella-
bæjar sem telur tæplega 3.000 íbúa.
„Við erum afar glöð og þakklát
fyrir að vera komin austur sem þýðir
að dreifikerfi okkar spannar nú öll
fjögur horn landsins. Verslanir okk-
ar á Vesturlandi, Suðurlandi og
Norðurlandi hafa sýnt okkur þann
meðbyr sem Lindex hefur og eftir að
hafa leitað fanga eftir góðri stað-
setningu á Austurlandi í nokkur ár
er frábært að geta fagnað þessu
svona með þessum frábæru mót-
tökum,“ segir Albert Þór Magn-
ússon, umboðsmaður Lindex á Ís-
landi, í tilkynningu sem félagið sendi
frá sér.
Verslunin á Egilsstöðum er til
húsa við hlið Bónuss í Miðvangi,
verslunarkjarna í miðbænum. Þar
verða þrjár meginvörulínur Lindex í
boði, auk þess sem boðið er upp á
nýjustu tækni við verslunina, m.a. 70
tommu snertiskjái við mátunarklefa.
Lindex hefur einsett sér að 80% af
framleiðslunni verði framleidd með
sjálfbærum og umhverfisvænum
hætti fyrir lok næsta árs. Fyrir-
tækið kynnti einnig nýlega mögu-
leika til að endurnýta fatnað með því
að skila til verslunarinnar og verður
umbunað með inneign í gegnum að-
ild að vildarklúbbi, sem nú býðst
Austfirðingum í fyrsta sinn.
Lindex rekur nú sex verslanir á
Íslandi; í Smáralind, Kringlunni, á
Glerártorgi á Akureyri, miðbæ
Akraness, í Krossmóum í Reykja-
nesbæ ásamt netverslun lindex.is og
nú Miðvangi, Egilsstöðum.
Opnun Albert Þór Magnússon ávarpar gesti við opnun verslunar Lindex á
Egilsstöðum um helgina. Langar biðraðir höfðu þá myndast.
Lindex vel tekið
á Egilsstöðum
Helmingur íbúa mætti við opnun
Við framleiðum lausnir
Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is
UMFERÐAREYJAR
Sérlausnir fyrir sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki
Henta vel til að stýra umferð,
þrengja götur og aðskilja akbrautir
Til eru margar tegundir af skiltum,
skiltabogum og tengistykkjum sem
passa á umferðareyjarnar.
Framkvæmdir standa nú yfir á
Hólmsheiði ofan við Grafarholts-
hverfi í Reykjavík þar sem verið er
að leggja jarðstreng sem leysa á af
hólmi 132 kV loftlínu. Sú liggur um
Hólmsheiði og Úlfarsárdal, frá Geit-
hálsi að tengivirki við Korputorg.
Efni er komið á staðinn og starfs-
menn ÍAV á fullu. Leiðinni er skipt í
sex leggi og er hver þeirra 1.125 m
langur. Byrjað verður á útdrætti
strengja í tvo leggi meðfram Hólms-
heiðarvegi og síðan í legg frá Reyn-
isvatnsási neðan og norðan við
byggðina í Grafarholti að Lambhaga
og verslun Bauhaus. Að lokum
verða lagðir strengir í leggi 1 og 6,
sem eru hvor á sínum endanum.
Eftir það verður loftlínan tekin úr
rekstri og vinna hefst við breytingar
í tengivirkjunum á Geithálsi og
Korpu. Framkvæmdum lýkur í
október nk.
Starfsmenn verktakans tóku til
óspilltra mála strax þegar þeir
mættu á svæðið og settu ofaníburð í
veginn um Hólmsheiðina, sem var
orðinn grófur og holóttur og í raun
illfær. Er nú greið leið milli Graf-
arholts og Suðurlandsvegar; hring-
veginn skammt frá Hólmsá.
sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Rafmagn Kefli með háspennulínum sem verða settar í jörð á næstunni.
Strengir settir í
jörð á Hólmsheiði
Hoffell SU-80 kom til Fáskrúðs-
fjarðar um helgina með fullfermi af
makríl, 1.050 tonn, til vinnslu hjá
Loðnuvinnslunni. Að sögn Sigurðar
Bjarnasonar skipstjóra tók það
áhöfnina um 19 tíma að veiða þenn-
an afla. Miðin hafa færst vestar og
nær færeysku lögsögunni og því
styttri sigling en verið hefur að
undanförnu.
Hefur Hoffellið nú veitt um 8.000
tonn af makríl á vertíðinni.
Hoffellið með
þúsund tonn
af makríl
Morgunblaðið/Albert Kemp
Fullfermi Hoffellið kemur inn Fáskrúðsfjörð um helgina, hlaðið makríl.