Morgunblaðið - 07.09.2020, Síða 20

Morgunblaðið - 07.09.2020, Síða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2020 Páll Sig- urjónsson ✝ Páll Sig-urjónsson fæddist 17. júlí 1944. Hann lést 12. ágúst 2020. Útför Páls fór fram 21. ágúst 2020. Meira: mbl.is/andlat Minningar á mbl.is Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Þorsteinn ólst upp á Austfjörðum og flutti síðan með fjölskyldu sinni á unglingsárunum, fyrst á Eyrar- bakka og síðan til Grindavíkur. Þor- Þorsteinn Þráinn Sigtryggsson Ísfeld ✝ Þorsteinn Þrá-inn Sigtryggs- son Ísfeld fæddist á Stöðvarfirði 21. júní 1959. Hann lést á Landspítalanum 22. júlí 2020. Þor- steinn var sonur hjónanna Sig- tryggs Þorsteins- sonar og Sesselju Anítu Þorsteins- dóttur. Útförin hefur farið fram. steinn átti fimm hjónabönd að baki og lætur eftir sig sex uppkomnar dætur. Hann bjó um árabil í Svíþjóð en flutti aftur til Íslands 2015 og eyddi síðustu árun- um á Selfossi. Ég hef þekkt Steina í rúm- lega 36 ár, eða síðan ég kynntist Hrenna, eiginmanni mínum, sem er bróðir Steina. Þeir bræður hafa alltaf átt einlæga vináttu og bróðurkærleika sín á milli, hvað sem á hefur bjátað í lífinu. Steini hefur verið stór hluti af lífi mínu þótt stundum liði langt á milli þess að fjölskyldurnar hittust. Við fór- um í ógleymanleg ferðalög saman og hann dvaldist einnig hjá okkur í Noregi á tímabili. Það er með sár- um söknuði og þökk fyrir liðin ár að ég kveð Steina. Fyrir mér hefur hann alltaf verið góður vinur. Þrátt fyrir mörg áföll í lífinu var alltaf stutt í brosið og góða skapið og þyrfti maður á hjálp að halda var hann sá fyrsti til að bjóða sig fram. Börnin okkar minnast hans sem skemmtilegs og kærleiksríks föðurbróður og hann skilur eftir stórt skarð í fjölskyldunni. Farðu í friði, kæri mágur og góði vinur. Vinný. Við þökkum auðsýnda samúð og samhug vegna andláts móður okkar, GUÐRÚNAR SÆMUNDSEN. Þá þökkum við starfsfólki Hrafnistu Sléttuvegi innilega fyrir góða umönnun. Evald Sæmundsen Ari Kristján Sæmundsen Grímur Sæmundsen og fjölskyldur ✝ Birna SvavaIngólfsdóttir Vestmann fæddist 13. janúar 1938 á Grímsstöðum á Fjöllum. Hún lést á Dvalarheimilinu Hlíð 27. ágúst 2020. Foreldrar henn- ar voru Ingólfur Kristjánsson bóndi, f. í Víðikeri í Bárð- ardal 8.9. 1889, d. á Akureyri 9.6. 1954, og Katrín María Magnúsdóttir frá Böðv- arsdal í Vopnafirði, f. 13.10. 1895, d. í Reykjavík 17.3. 1978. Systkinin voru 15. Birna giftist hinn 14.9. 1961 Aðalsteini Vestmann frá Akur- eyri, f. 12. ágúst 1932, d. 2020. Foreldrar hans voru Þorvaldur ar eru Eva Dís Guðmundsdóttir, barn Daníel Snær, og Bjarki Þór Guðmundsson, barn Aríana Ísis. 3) Margrét Vestmann, f. 1967, m. Aðalbjörn R. Svan- laugsson, börn þeirra: Aðal- steinn Vestmann, Anita Vest- mann, m. Viðar Einarsson, barn þeirra Amanda Vestmann, Al- mar Vestmann og Axel Vest- mann. 4) Vera Vestmann, f. 1976, d. 1978. 5) Valur Vest- mann, f. 1978, m. Vera W. Vest- mann, börn þeirra: Jóhannes W. Vestmann og Símon W. Vest- mann. Útför Birnu fer fram í kyrr- þey í Akureyrarkirkju hinn 7. september 2020 klukkan 13.30. Hægt verður að fylgjast með at- höfninni á heimasíðu Akureyr- arkirkju. Vestmann Jónsson bankagjaldkeri á Akureyri, f. 1896 í Kanada, d. 1940, og Margrét Aðal- steinsdóttir hús- freyja, f. 1898 á Skeiði í Svarfaðar- dal, d. 1982. Börn Birnu og Aðalsteins eru: 1) Inga Katrín Vest- mann, f. 1958, m. Kristján Þ. Kristinsson, börn þeirra: Vera Kristín, m. Kári Jó- hannesson, börn þeirra eru Kristján Logi, Róbert Bragi og Karen Emilía, Bjarki Þór Al- bertsson Vestmann og Kristinn Þráinn, m. Þórey Kara. 2) Þor- valdur Vestmann, f. 1963, m. Þórdís Þórólfsdóttir, börn henn- Nú er mamma farin á eftir ástvini sínum og lífsförunaut í blíðu og stríðu, hún gaf honum nokkrar vikur til að gera allt klárt og svo dreif hún sig líka. Hún var fædd á Grímsstöðum á Fjöllum og ólst upp á Víðirhóli í sömu sveit, þar sem víðernin ráða ríkjum í bláfjallasal og drottningin sjálf Herðubreið blasir við. Ég var svo heppinn að fara með mömmu á þessar æsku- stöðvar til að litast um og rifja upp gamla daga, mér fannst staðurinn óskaplega afskekktur og úr leið og nefndi það: Þú ætl- ar ekki að segja mér að það hafi verið gott að búa hérna lengst inni á öræfum? „Gott? Það var yndislegt!“ og gamla dreif sig út úr bílnum og skeiðaði til fjalls þannig að ferðafélagarnir áttu fullt í fangi með að fylgja henni eftir: „Þarna var geitakofinn og þarna fjárhúsin.“ Hún hafði yngst um 20 ár við það að kom- ast til fjallanna sinna þar sem hún ólst upp í hópi 15 systkina. Mamma var lágvaxin fíngerð kona sem hafði yndi af því að eiga falleg föt og vera vel til fara, „alger óþarfi að vera ekki vel til fara og snyrtilegur“ sagði hún og pakkaði niður strau- járninu þegar þau hjónin fóru til Spánar um jól. Mamma var nefnilega þannig að hún vílaði ekkert fyrir sér. Ef eitthvað virtist ætla að verða snúið þá fór hún á námskeið: Þegar hún eignaðist nýja forláta saumavél; saumanámskeið, það kom örbylgjuofn á heimilið, ný- móðins apparat og mikið þing; hún á námskeið, þegar þau hjón lögðu leið sína til Spánar; spænskunámskeið. Hún hafði líka áhuga á and- legum málefnum, var reikimeist- ari og lærði svæðanudd auk þess að vera í Sálarrannsókna- félaginu þar sem hún starfaði mikið við umsýslu og var lengi í bænahring, bað fyrir þeim sem þurftu á góðum straumum að halda. Hún var líka gefin fyrir hreyfingu og stundaði sund dag- lega meðan hún gat og dreif pabba í gönguferðir sem þau stunduðu meðan heilsan leyfði og höfðu bæði ánægju af. Kvikmyndir voru líka áhuga- mál og þar var mamma á heima- velli, þekkti leikstjóra og leikara og gat rætt málin af ótrúlegri innsýn og kunnáttu sem var magnað að upplifa, ásamt því að heyra meitlaðar skoðanir sem ég get ekki haft eftir, en man t.d. ennþá hvað henni fannst um Woody Allen. Ljóð voru mömmu hugleikin og góð ferskeytla hressti alltaf, ég tala nú ekki um ef hún var ekki á neinni tæpitungu og efn- istök hressileg þar sem ekkert er dregið undan. Annars var mágur hennar Matthías Johann- essen hennar maður í skáldskap enda sá maður svo vel giftur að þaðan gat bara gott eitt komið. Ég man samt best eftir hvað mamma var margfróð og með góðan húmor sem bar kannski ekki mikið á, en hún skaut gjarnan fram setningum og at- hugasemdum sem settu hlutina í annað og fyndnara ljós. Ég veit að ef það er þannig að fólk hittist aftur í sumarland- inu þá er mamma þar og nú hafa orðið fagnaðarfundir þegar hún hitti alla sem fóru á undan, börnin sín, eiginmann og líka alla hina, systkinin öll, foreldra og þar frameftir götunum. Á Hólsfjöllum: Herðubreið birtist úr þokunni eins og þokað sé frá lokunni lindin mín ljúf og blíð á Víðirhóli. (Matthías Johannessen) Elsku mamma, takk fyrir allt og allt. Kveðja, Þorvaldur (Brói). Minning um móður Í hjarta mínu er lítið ljós, sem logar svo skært og rótt. Í gegnum torleiði tíma og rúms Það tindrar þar hverja nótt. Það ljósið kveiktir þú, móðir mín, af mildi, sem hljóðlát var. Það hefur lifað í öll þessi ár, þótt annað slokknaði þar. Og þó þú sért horfin héðan burt og hönd þín sé dauðakyrr, í ljósi þessu er líf þitt geymt, – það logar þar eins og fyrr. Í skini þess sífellt sé ég þig þá sömu og þú forðum varst, er eins og ljósið hvern lífsins kross með ljúfu geði þú barst. Af fátækt þinni þú gafst það glöð, þess geislar vermdu mig strax og fátækt minni það litla ljós mun lýsa til hinsta dags. (Jóhannes úr Kötlum) Elsku mamma, takk fyrir allt. Þín börn, Inga, Magga og Valur. Elsku amma Birna. Nú er öll- um þínum verkefnum lokið, með glæsibrag og rúmlega það; nú hefurðu tekið saman pjönkur þínar og ert farin yfir til afa og allra hinna sem hafa beðið eftir þér – og ég efast ekki um að það hafi orðið fagnaðarfundir. Þó svo að það hafi ekki liðið langur tími milli ykkar hjóna hefur það glatt afa að fá þig loksins til sín. Samband ykkar tveggja var allt- af fallegt og sterkt, jafnvel þeg- ar heilsunni fór að hraka og þú fórst að missa lit – þá voruð þið alltaf samstiga og milli ykkar órjúfanleg tengsl. Ég sakna þess að koma með Amöndu í heimsókn til lang- ömmu sinnar en er um leið gíf- urlega þakklát fyrir að þú hafir fengið að kynnast henni. Þakk- lát fyrir að þú hafir alltaf þekkt þitt nánasta fólk. Brosi með sjálfri mér þegar ég hugsa til ykkar afa og ykkar venja, eins og þess að hafa alltaf öll ljós slökkt nema þau nauð- synlegustu og þurfa að sann- færa Vidda um að þið væruð víst heima – það væri bara ekki kveikt frammi að óþörfu! Þú varst hörkudugleg, ákveð- in en líka hlý og falleg sál. Takk fyrir allt, amma mín. Sjáumst í sumarlandinu. Þín Aníta. Kveðja Þú kenndir mér að hlusta, í kærleika og trú, kvistina mína græddir, þeir grænir standa nú. Þú alla vildir styðja sem allslags báru sár, þín eðlislæga hlýja, gat þerrað margra tár. Og nú – þegar þú ert komin upp á Astralsviðið, og yfirlítur tímabilið sem nú er liðið. Þá koma til þín gullkornin í glæstum ljóma sínum, og geisla frá sér kærleika á nýjum vegi þínum. Kveðja, Ingibjörg frá Gnúpafelli. Birna Svava Ingólfsdóttir Vestmann ✝ GuðbjörgKristín Har- aldsdóttir fæddist á Flateyri við Önund- arfjörð 3. júlí 1955. Hún varð bráð- kvödd á heimili sínu í Hafnarfirði 2. ágúst 2020. Foreldrar henn- ar voru Haraldur Jónsson f. 30. sept- ember 1924, d. 20. október 1988 og Gróa Guð- munda Björnsdóttir f. 27. des- ember 1926. Guðbjörg var næst- elst sex systkina, en þau eru Guðmundur Björn, f. 26. desem- ber 1953, d. 28. maí 1995, Jóna Guðrún, f. 22. nóvember 1956, 8. maí 1987, trúlofuð Hilmari Guðlaugssyni, f. 28. júlí 1980. Á Flateyri gekk Guðbjörg í barnaskóla og fór síðar til náms við Héraðsskólann í Reykjanesi við Ísafjarðardjúp. Guðbjörg var í sveit mörg sumur sem barn á Kirkjubóli í Bjarnardal. Guðbjörg vann ýmis störf um dagana. Hún vann í fiski og í sláturhúsi, hún vann í Kaup- félaginu og var eitt sumar til sjós á Sóleyju ÍS. Einnig starfaði hún á dvalarheimili aldraðra á Flateyri, á pósthúsinu þar í bæ og í Sparisjóði Önfirðinga. Þá var Guðbjörg lengi virk í starfi Kiwanisklúbbsins Þorfinns. Eftir að Hjálmar veiktist af völdum heilablóðfalls árið 2002 hætti Guðbjörg að vinna svo hún gæti annast hann heima, sem hún gerði síðan af einstakri um- hyggju og natni. Útför Guðbjargar fór fram í kyrrþey í Víðistaðakirkju þann 19. ágúst 2020. Gunnhildur Halla, f. 29. mars 1958, d. 19. ágúst 2011, Gróa Guðmunda, f. 25. ágúst 1961, og Hinrik Rúnar, f. 19. ágúst 1966, d. 9. apríl 2016. Eiginmaður Guð- bjargar er Hjálmar Sigurðsson, f. 3. maí 1945. Börn þeirra eru: 1) and- vana stúlka, f. 16. júní 1978. 2) Sigurður Jóhann, f. 7. júlí 1979, trúlofaður Tiffany Gedalanga, f. 2. apríl 1978. Dóttir þeirra er Ísabella Von, f. 1. október 2019. 3) Haraldur, f. 28. nóvember 1980. 4) Ragnheiður Karítas, f. Elsku systir mín, hún Gugga Stína, kvaddi þennan heim allt of snemma, aðeins 65 ára. Gugga var sex árum eldri en ég og tók strax stórusysturhlut- verkið alvarlega. Hún sá oft um og hafði gaman af að punta litlu systur sína fyrir t.d. jólaböllin í samkomuhúsinu, þá setti hún rúllur í hárið á mér og lét mig vera með þær í ein- hvern tíma, á meðan valdi hún fötin sem ég átti að vera í. Tók síðan rúllurnar úr hárinu og greiddi mér með mikilli um- hyggju og vandvirkni og þegar hún var orðin ánægð með verk sitt fylgdi hún mér í samkomu- húsið á jólaballið. Gugga var líka sú sem fylgdi mér fyrsta daginn minn í skól- ann heima á Flateyri, ég sex ára og hún 12 ára. Leiddi mig móðurlega upp Fremstugötuna en þegar við vorum komnar að húsi Píu og Einars vildi ég ekki fá fylgd lengra og bað hana að fara, ég vissi þó alltaf að stóra systir fylgdist með mér í fjarska til að vera viss um að ég kæmist ein og óstudd seinustu metrana í skól- ann. Þegar ég fór 14 ára í Héraðs- skólann á Laugarvatni var ég ekki búin að vera í marga daga þegar fyrsti pakkinn kom með póstinum en þá var stóra systir búin að velja alls konar gúmmel- aði og senda mér og árið eftir er ég var á Núpi þótti minni nú gaman að senda mér stóra pakka með mjólkurbílnum. Svona var Gugga, alltaf hug- ulsöm og góð. Gugga elskaði svo sannarlega börnin sín og svo þegar hún varð amma á síðasta ári var það eitt það besta sem hún hafði upplifað og einmitt þess vegna ákvað hún að flytja frá Ísafirði til Reykja- víkur þar sem börnin hennar og litla Bella ömmugullið búa, til að vera nær þeim. Einnig tókst henni að fá inni fyrir Hjalla sinn á Hrafnistu þar sem hann nú býr. Já Gugga hugsaði alltaf fyrir öllu og vildi að hlutirnir gengju hratt fyrir sig og einmitt þess vegna voru þau bæði komin suð- ur, svo allir gætu verið saman. Lífið er hverfullt og dauðinn oft ósanngjarn. Ég mun alltaf sakna elsku Guggu Stínu minnar og geyma allar góðu minningarnar sem ég á, því þær eru margar í gegnum árin okkar saman. Elsku Hjalli hefur nú misst klett sinn úr lífinu og votta ég honum mína dýpstu samúð. Elsku börnin hennar Guggu hafa einnig misst mikið, tengda- börnin og Bella litla og bið ég alla góða vætti að vaka yfir þeim. Elsku mamma hefur enn og aftur misst barn sitt og finn ég mikið til í hjartanu með henni. Hvíl í friði elsku Gugga mín. Ég sakna þín. Þín systir, Gróa (Gógó). Elsku Gugga mín, takk fyrir allar góðu stundirnar okkar saman. Það er svo gott að staldra við og rifja upp dýrmæt augnablik hjá okkur mágkonun- um, þá sérstaklega þegar við bjuggum báðar á Flateyri. Þau skipti sem þú og Ragnheiður komuð til okkar Hinna á kvöldin. Það var mikið spjallað og mikið hlegið. Ég fjárfesti í Senseo- kaffivél fyrir það eitt að geta gefið þér kaffi meðan Hinni okk- ar var á sjónum. Þú komst oft við og varst að taka út breytingar sem höfðu átt sér stað í garð- inum okkar. Eitt skiptið er mér svo minnisstætt þegar Hinni hafði lofað ykkur grilli á pallin- um á sumardaginn fyrsta ef snjórinn væri farinn. Þann dag var snjór upp yfir þakið á bíl- skúrnum, þú hlóst að litla bróður en hann var fljótur að moka all- an snjóinn burt af pallinum og hringja í þig til að tilkynna að enginn væri snjórinn og matar- boðið stæði. Einnig komuð þið Hjalli alltaf reglulega í skötu í bílskúrnum hjá okkur. Hinni minn leit upp til þín og talaði svo fallega um þig, kallaði þig Guggu bestu systur enda gafstu honum allt Tinna-safnið og nýtt hjól þegar þið voruð yngri. Alveg eins og það var svo erfitt að segja þér að Hinni minn væri dáinn þá voru fréttirnar um andlát þitt þungbærar fyrir okk- ur öll. Lífið getur verið svo ósanngjarnt, Gróa móðir þín, tengdamamma mín, er nú að jarða sitt fjórða barn, það á eng- inn að þurfa að lifa barnið sitt. Þú verður jarðsett á afmælisdag Hinna okkar heitins, Gunnhildur systir þín dó á þessum degi, það er gott að þið systkinin deilið fal- legum síðsumarsdegi saman. Ég sendi mínar dýpstu sam- úðarkveðjur til Hjalla, Sigga, Halla, Ragnheiðar og Ísabellu litlu ásamt tengdabörnum á þessum erfiðu tímum. Minning- ar ylja! Elínbjörg (Ella) og börn. Guðbjörg Kristín Haraldsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.