Morgunblaðið - 07.09.2020, Page 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2020
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú þarft að skipuleggja starf þitt
mjög vel til þess að þér verði sem mest
úr verki. Annaðhvort líkar þér eitthvað
eða ekki, það gildir líka um fólk.
20. apríl - 20. maí
Naut Oft var þörf en nú nauðsyn að þú
gerir ráðstafanir varðandi framtíðina.
Njóttu þess að vera með þeim sem
skipta þig mestu máli.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er enginn heimsendir þótt
þú fáir ekki allt það út úr samstarfs-
mönnum þínum sem þú vilt. Reyndu að
vera viðbúinn svo að þú getir dregið úr
afleiðingunum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er mikilvægt að einfalda hlut-
ina og taka til í skápum og geymslum.
Láttu ekkert annað trufla þig á meðan.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú hefur mikla löngun til þess að
víkka út heim þinn og læra nýja hluti.
Fáðu þér blund í dag ef unnt er og gakktu
snemma til hvílu í kvöld.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er ástæðulaust að efast svona
um allar þínar ákvarðanir. Reyndu að
finna þér skjól meðan þú meltir málin og
finnur þínar lausnir.
23. sept. - 22. okt.
Vog Ráðleggingar þínar geta komið sér
vel fyrir samstarfsmann þinn. Farðu þér
hægt og berðu alla kosti vandlega saman
áður en þú velur.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú átt eitthvað erfitt með að
einbeita þér þessa dagana. Einbeittu þér
að endurbótum og endurskipulagningu.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Kurteisi kostar ekkert og er
sjálfsögð hvernig sem á stendur og hver
sem í hlut á. Líttu á það sem tækifæri til
að sýna umheiminum hvað í þér býr.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Hamingjan felst í því að gera
greinarmun á því sem maður vill og því
sem maður þarfnast.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú átt fullt í fangi með að
komast yfir allt, sem þú þarft að leysa af
hendi. Samskipti innan fjölskyldunnar
einkennast af hlýju og léttleika.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú vekur líklega á þér athygli í
dag með einhverjum hætti. Komdu skoð-
unum þínum á framfæri á nærgætinn
hátt.
eru árlega fyrir frumsamda bók
fyrir börn og ungmenni.
Sem alþingismaður vann Guðrún
að fjölda mála, sérstaklega á sviði
almanna- og sjúkratryggingamála
Árið 2017 var Guðrún útnefnd
Borgarlistamaður Reykjavíkur og
við það tilefni setti Reykjavíkur-
borg á stofn Barnabókaverðlaun
Guðrúnar Helgadóttur, sem veitt
G
uðrún fæddist í Hafn-
arfirði, elst systk-
inanna tíu á Blómst-
urvöllum við
Jófríðarstaðaveg. Hún
lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík árið 1955.
Hún starfaði sem ritari rektors í
MR í áratug (1957-1967) og var
deildarstjóri félagsmála- og upplýs-
ingadeildar Tryggingastofnunar
ríkisins 1973-1980. Hún sat í stjórn
BSRB 1972-1978, var borgarfulltrúi
Alþýðubandalagsins í Reykjavík
1978-1982 og ritari þess 1977-1983.
Hún var kosin á þing fyrir Alþýðu-
bandalagið frá 1979-1995. Hún var
forseti sameinaðs Alþingis 1988-
1991, fyrst kvenna í heiminum til
að gegna embætti þingforseta, og
var fulltrúi í Norðurlandaráði 1983-
1988.
Guðrún skrifaði fjölmargar bæk-
ur, einkum ætlaðar börnum og
unglingum, og sló í gegn með sinni
fyrstu bók, um uppátækjasömu tví-
burana Jón Odd og Jón Bjarna,
sem kom út árið 1974. Eftir fylgdu
sögur, leikrit og sjónvarpsefni fyrir
börn á öllum aldri, um ástföngnu
tröllskessuna Flumbru í Ástarsögu
úr fjöllunum, sérvitringinn og sam-
félagsrýninn Pál Vilhjálmsson, smá-
vaxið nútímafólk og stórvaxin börn
í leikritinu Óvitum og stríðsárin í
Hafnarfirði í þríleiknum Sitji guðs
englar, auk fjölda annarra verka.
Verk hennar hafa verið þýdd á
fjölda tungumála.
Ritstíll Guðrúnar er meitlaður og
lipur og frásagnarhátturinn ein-
kennist af virðingu fyrir ungum les-
endum, ásamt því að draga fram
spaugilegu hliðarnar á daglegu lífi
og fjalla um bæði einfaldar og
flóknar tilfinningar og kenndir af
miklu næmi. Bækurnar hafa boð-
skap að bera, en Guðrún tekur
umburðarlyndi og nærfærni fram
yfir predikunartón í verkum sínum.
Guðrún hefur hlotið fjölda verð-
launa og viðurkenninga fyrir rit-
störf sín. Þar er helst að nefna
Barnabókaverðlaun fræðsluráðs
Reykjavíkur 1975, Norrænu
barnabókaverðlaunin 1992 og Verð-
laun Jónasar Hallgrímssonar 2005.
og málefna barna, og var m.a.
flutningsmaður frumvarps til laga
um stofnun embættis umboðs-
manns barna.
Auk félagsmála og annarra starfa
tengdra stjórnmálum og ritstörfum
hefur Guðrún alla sína ævi haft sér-
stakt yndi af garðrækt og kýs einn-
ig öðru fremur að eiga samveru-
stundir með afkomendunum.
Fjölskylda
Guðrún var gift Hauki Jóhanns-
syni, f. 25.1. 1935, verkfræðingi.
Þau skildu. Þau áttu soninn Hörð,
f. 14.2. 1957, tölvunarfræðing hjá
Hafrannsóknastofnun. Eiginkona
hans er María Guðfinnsdóttir, sér-
fræðingur í mennta- og menningar-
málaráðuneytinu. Börn þeirra eru
Hrafn, Haukur og Arnar Harðar-
synir. Seinni maður Guðrúnar var
Sverrir Hólmarsson, f. 6.3. 1942, d.
6.9. 2001, kennari og þýðandi. Börn
þeirra eru: 1) Þorvaldur, f. 26.11.
1966, ráðgjafi í Reykjavík. Sam-
býliskona hans er Aðalheiður
Guðrún Helgadóttir rithöfundur og fv. alþingismaður – 85 ára
Ljósmynd úr einkasafni.
Garðrækt Guðrún hefur alla tíð haft sérstakt yndi af garðrækt og samveru með sínum stóra afkomendahópi.
Virðing fyrir ungum lesendum
Ljósmynd úr einkasafni
Lindgren-verðlaunin Guðrún Helgadóttir sést hér með rithöfundinum
Astrid Lindgren en Guðrún var tilnefnd til verðlaunanna árið 2005.
Til hamingju með daginn
SVALALOKANIR
Svalalokanir frá Glerborg eru nýtískulegar
og falla vel að straumum og stefnum
nútímahönnunar.
Lokunin er auðveld í þrifum þar sem hún opnast inná við.
Hægt er að fá brautirnar í hvaða lit sem er.
Svalalokun verndar svalirnar fyrir regni, vindi og ryki og eykur
hljóðeinangrun og breytir notkun svala í heilsársnotkun.
Glerborg
Mörkinni 4
108 Reykjavík
565 0000
glerborg@glerborg.is
www.glerborg.is
2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG
FÁÐU TILBOÐÞÉR AÐKOSTNAÐAR-LAUSU
40 ára Sigrún Ósk
fæddist í Reykjavík en
fluttist ársgömul til
Danmerkur og bjó þar
fram að sjö ára aldri.
Hún býr núna á Akra-
nesi. Sigrún er
dagskrárgerðarmaður
á Stöð 2.
Maki: Jón Þór Hauksson, f. 1978, þjálfari
kvennalandsliðsins í fótbolta.
Synir: Orri Þór, f. 2010, og Haukur
Andri, f. 2013.
Foreldrar: Ingibjörg Erna Óskarsdóttir,
f. 1956, sjúkraþjálfari á Akranesi, og
Kristján Þorgils Sigurðsson, f. 1955,
blikksmiður á Akureyri.
Sigrún Ósk
Kristjánsdóttir
30 ára Eva Kolbrún
ólst upp í Kópavogi og
býr þar enn með fjöl-
skyldunni. Hún vinnur
hjá Kópavogsbæ sem
fulltrúi bæjarlög-
manns. Eva Kolbrún
hefur áhuga á
í́þróttum svo aðeins eitt sé nefnt.
Maki: Beitir Ólafsson, f. 1986, pípulagn-
ingamaður og aðal
markmaður KR í fótbolta.
Börn: Bæron, f. 2015, og Elba, f. 2019.
Foreldrar: Birgir Runólfur Ólafsson, f.
1962, vinnur sem sjálfstæður smiður og
Anna Lind Borgþórsdóttir, f. 1963, flug-
freyja hjá Icelandair.
Eva Kolbrún
Birgisdóttir
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is