Morgunblaðið - 21.09.2020, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 2 1. S E P T E M B E R 2 0 2 0
Stofnað 1913 221. tölublað 108. árgangur
SALAN JÓKST
UM 30 ÞÚSUND
PRÓSENT BÆTA VARNARGARÐA
SETTI NÝTT
ÍSLANDSMET
Í LAUSUM SKÓM
BRIM YFIR EIÐSGRANDA 4 HLYNUR 26OMNOM 4
Omeprazol
Actavis 20mg14 og 28 stk.
Magasýruþolin hylki sem innihalda 20 mg af virka
efninu Omeprazol og eru ætluð fullorðnum til
skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis
(t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu
lagi með hálfu glasi af vatni með mat eða á fast-
andi maga. Kynnið ykkur notkunarleiðbeiningar,
varnaðarorð og frábendingar áður en lyfið er notað.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgi-
seðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða
lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um
áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar
um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
Markaðsleyfishafi:
Actavis Group PTC ehf.
T
ev
a
0
2
8
0
6
2
Lægstu launin hafa hækkað mest
í kjarasamningalotunni 2019-2020,
samkvæmt greiningu á þróun
grunnlauna liðlega tíu þúsund laun-
þega innan vébanda ASÍ. Sam-
kvæmt rannsókninni, sem gerð var
af Kjaratölfræðinefnd, hafa mark-
mið lífskjarasamninganna svo-
nefndu því gengið eftir hvað launa-
kjörin áhrærir. Af gögnunum má
ráða að hinir lægstlaunuðu hafi
flestir fengið launahækkun á bilinu
11-21%. Hækkun fólks á hærri laun-
um var almennt talsvert lægri. »14
Lægstlaunaðir
hækkuðu mest
Sonja Sif Þórólfsdóttir
sonja@mbl.is
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis-
ráðherra hefur staðfest tillögur Þór-
ólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis um
að framlengja lokun skemmtistaða
og kráa á höfuðborgarsvæðinu til 27.
september. Svandís staðfesti tillög-
una athugasemdalaust.
Á ríkisstjórnarfundi á morgun,
þriðjudag, mun hún leggja fram
minnisblað til upplýsingar fyrir
ríkisstjórnina. „Þetta er ekki af slíku
umfangi að það komi nokkrum á
óvart að við erum í raun bara að
leikritið Oleönnu, og segir Brynhild-
ur Guðjónsdóttir leikhússtjóri að
frumsýningin hafi gengið vel. Alls
voru sýndar þrjár sýningar um
helgina en boðið var upp á grímur
endurgjaldslaust á laugardag og
sunnudag. Hún segir að skerpt hafi
verið á sóttvörnum innanhúss í
Borgarleikhúsinu en ekki sé vitað
hvernig framhaldið verður. Bryn-
hildur segir að á sýningum helgar-
innar hafi barinn ekki verið opinn, en
veitingasalan var opin fyrir sýningu
og í hléi.
„Við vitum ekki neitt hvað er í far-
vatninu. Ég veit ekkert um fram-
haldið, frekar en nokkur annar. Við
öndum öll rólega. Þetta snýst bara
um að hver og einn sinni sínum per-
sónulegu sóttvörnum, því ef við ger-
um þetta ekki saman þá gerist ekki
neitt og núna ríður á að gera það.“
Önnur bylgja faraldursins er í
miklum vexti víða um heim, en fjöldi
látinna nálgast nú milljón á heims-
vísu og aukinna smita hefur orðið
vart í 73 löndum heims. Þrátt fyrir
það vonast margir til þess að önnur
bylgja veirunnar verði vægari. Enn
sem komið er bendir margt til þess.
framlengja aðgerðir,“ segir Svandís í
samtali við Morgunblaðið.
Hún segist ekki telja þörf á harð-
ari aðgerðum sem stendur vegna
þess hve markvisst smitrakningu og
sóttkví er beitt. „Um leið brýnum við
það fyrir öllum að beita þessum ein-
staklingsbundnu sóttvörnum, þvo
hendur og spritta, gæta að fjarlægð,
vinna í fjarvinnu, þeir sem það geta,
og reyna aðeins að draga úr manna-
mótum. Ég held að það sé verkefnið
á meðan við reynum að ná utan um
þetta,“ segir ráðherrann.
Borgarleikhúsið frumsýndi á
föstudag fyrstu sýningu vetrarins,
Hertra aðgerða ekki þörf
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Frumsýning Borgarleikhúsið ýtti úr vör nýju leikári með frumsýningu Oleönnu um helgina. Salurinn var þó ekki fullskipaður sökum fjöldatakmarkana.
Ráðherra segist ekki telja þörf á að herða aðgerðir til sóttvarna Framlengir
lokun öldurhúsa á höfuðborgarsvæðinu til sunnudags Heimsfaraldur í vexti
M 1.290 manns í sóttkví … »2
Verkefnum lögreglu vegna afbrota í
miðborg Reykjavíkur að næturlagi
hefur fækkað mikið að undanförnu,
það er á sama tíma og færri eru á
ferð vegna samkomubanns og
fjöldatakmarkana sem leiða af kór-
ónuveirunni. Samkvæmt tölum lög-
reglu eru afbrot og verkefni sem
sinna hefur þurft að nóttu frá ára-
mótum fram í síðustu viku – það er
frá miðnætti til klukkan 6 – alls
2.389; 880 á virkum dögum og 1.509
um helgar. Á sama tímabili í fyrra
voru verkefnin 3.974 talsins.
Halla Bergþóra Björnsdóttir, lög-
reglustjóri á höfuðborgarsvæðinu,
segir þessa staðreynd gefa tilefni til
umræðu um skemmri afgreiðslutíma
skemmtistaða í miðborginni þegar
eðlilegar aðstæður í samfélaginu
skapast að nýju. »11
Morgunblaðið/Freyja Gylfa
Mannfjöldi Skemmtanalíf hefur
breyst, hugsanlega til frambúðar.
Geti haft
opið skemur
Lögreglustjóri vill
skemmtistaði í skoðun
Í dag hefst aðalmeðferð í máli hér-
aðssaksóknara Finnmerkur og
Troms í Noregi gegn Gunnari Jó-
hanni Gunnarssyni, sem auk ann-
arra ákæruliða er gefið að sök
manndráp af ásetningi með því að
hafa komið á heimili hálfbróður síns,
Gísla Þórs Þórarinssonar, í Mehamn,
vopnaður haglabyssu, að morgni 27.
apríl í fyrra þar sem til átaka hafi
komið milli þeirra hálfbræðra með
þeim afleiðingum að Gísli Þór varð
fyrir haglaskoti sem varð honum að
bana.
Verjandi Gunnars Jóhanns sagðist
í samtali við mbl.is mjög ósáttur við
að ákært væri fyrir ásetningsbrot
þar sem ákærði hefði aðeins ætlað
að skjóta hálfbróður sínum skelk í
bringu. Gert er ráð fyrir að mál-
flutningur standi í sjö daga. »13
Réttarhöld hefjast
í Mehamn-málinu
Samkeppni er mjög virk á öllum
mörkuðum sem íslensk sjávar-
útvegsfyrirtæki starfa á, hér á
landi sem erlendis. Þetta er niður-
staða í tölfræðilegri úttekt sem
verðbréfafyrirtækið Arev vann
fyrir Brim, en þar var beitt sömu
aðferðum og Samkeppniseftirlitið
(SKE) notar til þess að mæla
virkni og samþjöppun á mörk-
uðum.
Hins vegar er aðra sögu að
segja um ýmsa markaði aðra, en til
samanburðar var mæld sam-
þjöppun á matvörumarkaði og í
bankaþjónustu. Skemmst er frá
því að segja að þar er samþjöppun
langt yfir viðmiðunarmörkum,
bæði SKE og Evrópusambandsins,
sem þó er eilítið umburðarlyndara.
Í athugun Arev, sem unnin var í
framhaldi af ákvörðun Samkeppn-
iseftirlitsins vegna viðskipta með
eignarhluti í Brimi, og unnin var
úr opinberum gögnum, kom einnig
á daginn að samkeppni er mikil
með botnfisk almennt, en einnig
þegar litið er til einstakra fiskteg-
unda, þó þar á milli sé nokkur
munur. Hið sama á við hvað varðar
markað með aflamark eða leigu-
kvóta. Þar á sér stað veruleg til-
færsla milli útgerða og skipa á ári
hverju. » 6
Virk samkeppni í sjávarútvegi
Tölfræðiathugun sýnir litla samþjöppun í sjávarútvegi
Raunin allt önnur á matvörumarkaði og í bankaþjónustu
Morgunblaðið/Agnes Bragadóttir
Veiði Gögn sýna mikla samkeppni á
mörkuðum helstu fisktegunda.