Morgunblaðið - 21.09.2020, Side 16
16 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2020
Kafli 20 í Annarri
Mósebók skilgreinir
boðorðin tíu. Gyð-
ingar og kristnir telja
þau skipanir en ekki
leiðbeiningar og að
þau séu til allra
manna. Múslímar við-
urkenna Biblíuna og
líta Kóraninn sem
þriðja testamentið,
þeir viðurkenna einn-
ig boðorðin tíu.
Boð má túlka sem tilboð frekar
en fyrirmæli. Þau séu þá tilmæli
sem velja má að taka tillit til eða
sniðganga, það hafi þó afleiðingar.
Ljóst má vera að boðorðin tíu eru
hluti stærri frumspekihjúps.
Sé kaflinn lesinn í þessu ljósi
birtist hjúpur sem ég nefni Guð-
dómlega sáttmálann. Sá sem und-
irgengst hann samþykkir að fylgja
þeim tilmælum sem hann til-
greinir; einungis þeir sem und-
irgangast sáttmála eru háðir til-
boðum hans. Sé allur kaflinn
lesinn sést að boðin eru fleiri og
dýpt þess ellefta birtist.
Íslendingar kusu nær einróma
vorið 1944 að mynda sjálfstætt ríki
og grundvalla það á sáttmála sem
nefnist stjórnarskrá. Samþykktu
þeir að fylgja þeim skilgreiningum
sem sá sáttmáli býður. Þannig
samþykktu þeir tvennt: Annars
vegar að mynda ábyrga ríkis-
smiðju í samræmi við mótaðar
reglur. Hins vegar að móta sam-
félög sín samkvæmt siðferði sem
þar væri tilgreint með beinum og
óbeinum hætti.
Sé stjórnarskráin einnig sam-
félagssáttmáli má vega hvaða sið-
ferðisgildi hann tilgreinir: Tekið er
fram að Lútersk-evangelíska þjóð-
kirkjan skuli varðveita frumspeki-
viðmið hins íslenska þjóðríkis.
Ennfremur að borgarar (og þegn-
ar) ríkisins sem ekki vilja frum-
speki þjóðkirkjunnar hafi frelsi til
að velja efnishyggju, eða frum-
speki annarra trúarsýna og er rík-
inu óheimilt að hamla borgurum
að mynda innri félög, svo fremi
þau virði framangreint siðferði.
Sáttmálinn skilgreinir ekki hvað
sé gott siðferði enda sér fyrr-
greind tilvísun um að
tilgreina það. Siðferði-
leg varsla ríkis og
þjóða(r) þess sé í
höndum kristilegra
frumspekinga en þeir
taki fullt tillit til
frumspekinga annarra
sýna. Þar með sé
tryggð frumspek-
isamræða þeirra sam-
félaga sem að rík-
isfélaginu standa.
Ljóst er að meiri-
hlutakosning getur
sett siðlaus lög séu þau ekki byggð
á fyrrgreindum sáttmála. Þegar
svo er verður til réttlætisrof, því
sáttmálar eru undirstaða réttlæt-
isviðmiða. Sé sáttmálinn hæfur til
grundvöllunar réttlætis, þá ætti
endurskoðun hans eða viðbætur að
vera óþarfi. Sé endurskoðun nauð-
synleg, eða viðbætur, hvernig á að
skilgreina þá samfélagssamræðu
og hver á að skera úr um?
Alþingi lýðveldis hefur sam-
þykkt ýmis lög byggð á sáttmála
sem þing Sameinuðu þjóðanna í
New York nefnir mannréttinda-
yfirlýsingu, einnig hinn svonefnda
Evrópusáttmála. Spyrja má hvort
stjórnarskráin frá 1944 hafi verið
ónóg. Ég tel þessa sáttmála óþarfa
og staðfestingu þeirra afturför en
það er utan efnistaka.
Núverandi leiðtogi íslenska lýð-
veldisins hefur lýst því yfir að vald
sitt sé illa skilgreint og þar með að
hann hafi ekki lesið sáttmálann
eða skilið. Nýverið lýsti forsætis-
ráðherra hans því yfir að hún hefði
vald samkvæmt sáttmálanum til að
koma á þingrofum og kosningu, þó
það komi ekki fram í honum. Hlut-
verk hennar er heldur ekki skil-
greint í honum. Margir hafa rætt
á Íslandi síðustu ár að samkvæmt
bókstafstúlkun á sáttmálanum hafi
allar ríkisstjórnir frá 1944 verið
ólögmætar.
Allt framangreint hef ég rætt ít-
arlega á öðrum vettvangi. Er mér
ljóst að þau skrif og ræður eru
fyrir daufum eyrum. Ennfremur
að hugsanlega sé framangreind
upptalning komin að mörkum birt-
ingarhæfs velsæmis. Það breytir
þó ekki hlutbundinni vegun á hug-
tökum og merkingarfræði.
Saga manneskjunnar er löng og
misbein og svo er einnig um sögu
mannverunnar. Þá má spyrja hvor
er eldri, lengri eða krókóttari. Þá
þarf að skilgreina muninn á mann-
eskju og mannveru. Takist það
getum við skilgreint hvað sé sam-
félag, síðan hvað sé samfélagssátt-
máli og ef við náum svo langt,
hvað sé þjóðar- eða ríkissáttmáli.
Vegunin á hvort sáttmálar skiljist
eða séu haldnir bíður síðari tíma.
Manneskja (human) er lífvera
sem gengur upprétt á tveim fót-
um, hefur tvær hendur, huga og
sál. Hún telur sig andlega veru.
Hún er sjálfsvituð því hún getur
rýnt vitund sína og hún við-
urkennir að aðrar lífverur hafi vit-
und og sumar sjálfsvitund. Mann-
eskja telur uppruna sinn
frumspekilegan og að holdgerving
sé ytra form en mannleg raun-
hyggja sé háð frumspekilegum
greiningum.
Mannvera (human being) er líf-
vera sem gengur upprétt á tveim
fótum, hefur tvær hendur og
heilabú. Hún skilgreinir sjálfsvit-
und en efast um (og hafnar yf-
irleitt) sjálfsvitund annarra líf-
vera. Hún sér sjálfa sig sem
efnislega og að tilvera hennar sé
eingöngu háð efninu, að sál sé
firring og að mannleg rökhyggja
sé æðsta mælanlega greind veru-
leikans.
Báðar verur geta beitt tákn-
merkingu. Manneskjur hafa nú
verið fangar mannvera í rúma
öld, eiga enga virka sáttmála og
geta illa treyst sáttmálum þeirra
síðarnefndu. Standist framan-
greind greining, er ljóst að við
eigum langan veg fyrir höndum.
Loks bið ég lesandann velvirð-
ingar á hortugheitum. Hafi mein-
ingin skilað neikvæðri niðurstöðu
eru mistökin mín.
Sáttmálar og réttlæti
Eftir Guðjón E.
Hreinberg »Hugleiðing um hvað
sé sáttmáli, hvernig
réttlæti sé skilgreint og
munurinn á manneskju
og mannveru.
Guðjón E. Hreinberg
Höfundur er heimspekingur.
gudjonelias@gmail.com
Ástæður þess að
skólakerfið hefur getað
haldið sínu striki stór-
áfallalaust á þessu ári
eru margþættar. Með-
al þeirra er góður að-
búnaður í skólum á Ís-
landi, tæknivæddir og
vel tækjum búnir nem-
endur, „þetta redd-
ast“-hugarfar allra
hlutaðeigandi og ekki
hvað síst vel menntaðir
kennarar. Á stundum hefur verið
agnúast út í það að kennaramenntun
sé langskólanám, háskólanám til
margra ára, og það talið löstur. Að-
stæður síðustu mánaða og farsælar
lyktir síðasta skólaárs færa heim
sanninn fyrir því að það veitir ekki
af, því eins og allir vita sem komið
hafa nærri málaflokknum snúast
nám og kennsla ekki einungis um að
afla sér og miðla þekkingu, heldur
einnig að öðlast og miðla hæfni,
færni og leikni.
COVID-fárið sem helltist yfir í
mars 2020 krafðist lausnarmiðaðra
úrræða og það fyrirvaralaust. Hefð-
ir og venjur voru látnar víkja fyrir
nýjungum, jafnt í skólum sem á
heimilum, meðal kennara og nem-
enda. Einkaheimili
breyttust í atvinnu-
svæði og vinnurými á
einni nóttu. Nám og
kennsla á framhalds-
og háskólastigi tók víð-
ast hvar stakkaskipt-
um. Kennarar lögðu
nótt við nýtan dag,
stokkuðu allt upp, end-
urskilgreindu vinnulag
og pössuðu upp á nem-
endur, samtímis því að
endurmenntast í nýj-
ustu tækni á sviði upp-
lýsingatækni. Þökk sé
ósérhlífni kennara þá lauk skóla-
árinu 2019-2020 án umtalsverðra
áfalla.
Aðlögunarhæfni, fórnfýsi, sköp-
unarkrafti og helgun kennara í
starfi var sums staðar veitt athygli
og umbunað fyrir það. Annars stað-
ar ekki. Við nokkra framhaldsskóla
fengu kennarar eingreiðslur, annars
staðar var greitt fyrir nettengingar
kennara á heimilum sínum í einn til
þrjá mánuði. Víða fengu kennarar
að færa tölvukostinn heim, enda
starfinu sinnt þaðan. Ráðherra
mennta- og menningarmála þakkaði
góð störf og rektor Háskóla Íslands
sendi þakkarskjöl á deildir. Fátt
hefur heyrst um annars konar við-
gjörning, og nú þegar nýtt skólaár
er hafið og sama er upp á ten-
ingnum, er ekki að undra að þungt
hljóð sé í kennurum. Aftur virðist
gengið út frá því að sérþekking
kennara og helgun í starfi séu auð-
lindir sem ganga má í án endur-
gjalds.
Ég nota þetta tækifæri og hvet
yfirvöld menntamála og stjórnendur
skólastofnana til að ígrunda með
hvaða hætti má gangast við því
ómælda vinnuframlagi sem stéttin
hefur lagt fram af ábyrgð og metn-
aði. Skólaárið 2020-2021 er rétt að
byrja og mikilvægt að hvetja fólk til
dáða. Ef ekki þá gæti slaknað á
tauminum og þeir sem síst skyldi
flosnað upp úr námi. Það er mikið
áhyggjuefni, ekki síst ef litið er til
upplýsinga um aukið atvinnuleysi.
Sérþekking og helgun
í starfi eru auðlindir
Eftir Hólmfríði
Garðarsdóttur » Aðlögunarhæfni,
sköpunarkrafti og
helgun kennara í starfi
var sums staðar veitt
athygli og umbunað fyr-
ir það. Annars staðar
ekki.
Hólmfríður
Garðarsdóttir
Höfundur er formaður STÍL –
samtaka tungumálakennara.
holmfr@hi.is
Það er ég hræddur
um að Lúther sem ís-
lenska þjóðkirkjan er
kennd við sé búinn að
snúa sér við í gröfinni
þegar horft er til þess
sem er að gerast innan
kirkjunnar nú og und-
anfarið. Hvað er á
seyði? Eru satanistar
orðnir ráðandi þar? Er
Jesús maður eða kona,
hommi eða lesbía, trans eða hvað
þetta heitir nú allt þetta rugl sem
komið er upp á yfirborðið núna á
tuttugustu öld eftir fæðingu frels-
arans? Biblían (Heilög ritning) segir
okkur að Guð skapaði manninn í
sinni mynd. Er þá Guð og Jesús son-
ur hans þá allt af þessu bulli sem nú
er komið fram hjá þessu fólki sem að
mínu áliti hefur ekki kynnt sér Biblí-
una eða allavega trúir ekki á hana,
heldur trúir á einhver ídól, sjálft sig,
eða sjálfan Satan, sem Biblían segir
að muni reyna allt til að ná fólki til
sín með bellibrögðum og upplausn í
lífi fólks. Biblían sem ég er sann-
færður um að sé skrifuð til okkar
mannanna.
Hvað er að fólki í dag? Er fólk
haldið óstjórnlegri athyglissýki/
sjálfumgleði, eða hefur fólk ekkert
annað þarfara að gera en hanga í
tölvunni eða símanum? Það ræðst
fram á ritvöllinn og í ljósvakamiðla
með allskyns yfirlýsingar og þykist
vita allt best og mest. Manni ofbýður
hvernig það atar auri menn og mál-
efni, er ekki kominn tími til að fara
að hægja á sér og láta ekkert frá sér
fara fyrr en maður hefur kynnt sér
málin?
Ef þið lesið/stúderið Biblíuna get-
ið þið séð að Jesús er maður, ekki
einhver skeggjaður, brjóstmikill
„hán“ með kinnalit, eða svört kona
með downs-heilkenni eins og ein-
hver sagði. Þeir sem setja slíkt fram
ættu að skammast sín. Já, þeir eru
orðnir margir Júdasarnir í heim-
inum í dag. Renniði nú sem snöggv-
ast yfir Jóhannesarguðspjall í kafla
5, vers 31+: Ef ég vitna sjálfur um
mig, er vitnisburður minn ekki gild-
ur. 32 Annar er sá sem vitnar um
mig, og ég veit að sá vitnisburður er
sannur, sem hann ber mér. 33 Þér
hafið sent til Jóhannesar. Hann bar
sannleikanum vitni. 34 Ekki þarf ég
vitnisburð manns, en ég segi þetta
til þess, að þér megið frelsast. Og
7:7: Heimurinn getur ekki hatað yð-
ur. Mig hatar hann, af því ég vitna
um hann, að verk hans eru vond.
Eða 7:49: Þessi almúgi, sem veit
ekkert í lögmálinu, hann er bölv-
aður! 50 Nikódemus, sem kom til
hans fyrrum og var einn af þeim,
segir við þá: 51 Mundi lögmál vort
dæma mann, nema hann sé yf-
irheyrður áður og að því komist,
hvað hann hefur aðhafst?
Í 8k, 37+ segir 37: Ég veit, að þér
eruð niðjar Abrahams. Þó leitist þér
við að lífláta mig, því að orð mitt fær
ekki rúm hjá yður. 38 Ég tala það,
sem ég hef séð hjá föður mínum, og
þér gjörið það, sem þér hafið heyrt
hjá föður yðar. 39 Þeir svöruðu hon-
um: Faðir vor er Abraham. Jesús
segir við þá: Ef þér væruð börn
Abrahams, munduð þér vinna verk
Abrahams. 40 En nú leitist þér við
að lífláta mig, mann sem hefur sagt
yður sannleikann, sem ég heyrði hjá
Guði. Slíkt gjörði Abraham aldrei.
41 Þér vinnið verk föð-
ur yðar. Þeir sögðu við
hann: Vér erum ekki
hórgetnir. Einn föður
eigum vér, Guð. 42 Jes-
ús svaraði: Ef Guð væri
faðir yðar, munduð þér
elska mig, því frá Guði
er ég út genginn og
kominn. Ekki er ég
sendur af sjálfum mér.
Það er hann, sem sendi
mig. 43 Hví skiljið þér
ekki mál mitt? Af því að
þér getið ekki hlustað á
orð mitt. 44 Þér eigið djöfulinn að
föður og viljið gjöra það, sem faðir
yðar girnist. Hann var manndrápari
frá upphafi og aldrei í sannleikanum,
því í honum finnst enginn sann-
leikur. Þegar hann lýgur fer hann að
eðli sínu, því hann er lygari og lyg-
innar faðir.
Þið sem efist um að Jesús sé karl-
maður getið flett upp í leit á Biblan-
.is undir „Sonur“ og séð að hann er á
fjölda staða kallaður sonur.
Ennfremur getið þið séð í Jóh.
6:42: og þeir sögðu: Er þetta ekki
hann Jesús, sonur Jósefs? Vér
þekkjum bæði föður hans og móður.
Og líka þar sem Jesús er á tali við
Móse og Elía í Lúk. 9k 35: Og rödd
kom úr skýinu og sagði: Þessi er
sonur minn, útvalinn, hlýðið á hann
Jóh. 11: Jóh. 11:26 Trúir þú þessu?!
27 Já, herra (mundi hún segja herra
ef hann væri annað en karl?) 28
Meistarinn er hér og vill finna þig.
32 Herra, ef þú hefðir verið hér,
væri bróðir minn ekki dáinn 34:
Herra, kom þú og sjá. Svo að lokum
tilvitnana er í Lúk. 3k 22: og rödd
kom af himni: Þú ert minn elskaði
sonur, á þér hef ég velþóknun. Það
er engin spurning að Jesús er karl-
maður!
Þegar kirkjan breytir gildum sín-
um til að passa við núverandi menn-
ingu fylgir hún ekki lengur Biblí-
unni, heldur fylgir hún þeim sem
týnast. Þess vegna segi ég við þig,
biskup, og ykkur sem stjórnið þjóð-
kirkjunni: Guð er ekki á leiðinni til
að endurskrifa Biblíuna fyrir okkar
kynslóð, hún er skrifuð fyrir allar
kynslóðir. Hættið að reyna að
breyta ritningunum, þegar þær eru
skrifaðar til að breyta þér.
Svo að lokum: Vísindin segja að
það sem við þörfnumst nauðsynlega
séu fjórir grunnþættir til að lifa af:
Vatn, loft, matur, ljós.
Lítum á hvað Biblían segir okkur
um Jesú:
Ég er uppspretta lifandi vatns.
Ég er andardráttur lífsins.
Ég er brauð lífsins.
Ég er ljós heimsins.
Þarna hafa vísindin svo sann-
anlega rétt fyrir sér. Við þörfnumst
Jesú til að lifa.
Lifi lífið í Jesú.
Jesús er karlmaður
Eftir Marías
Sveinsson
Marías Sveinsson
» Guð er ekki á leiðinni
að endurskrifa Biblí-
una fyrir okkar kynslóð,
hún er skrifuð fyrir allar
kynslóðir. Hættið að
reyna að breyta ritning-
unum.
Höfundur er fv.verslunarmaður á eft-
irlaunum og áhugamaður um kristna
trú .
marias@simnet.is
Vantar þig
pípara?
FINNA.is