Morgunblaðið - 21.09.2020, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2020
Bíldshöfða 16 - 110 Reykjavík - 414-8400 - www.batik.is - www.martex.is
VINNUFATNAÐUR
MERKINGAR
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Ofbeldisbrotum í miðborg
Reykjavíkur hefur fækkað veru-
lega að undanförnu, á sama tíma
og skemmtistaðir á svæðinu hafa
að miklu leyti verið lokaðir vegna
kórónuveirunnar. Slíkt gefur til-
efni til skoða að veirutímanum
liðnum hvort endurskoða eigi af-
greiðslutíma; að stöðum verði
hugsanlega lokað fyrr á kvöldin
eða aðrar breytingar gerðar.
Þetta segir Halla Bergþóra
Björnsdóttir, lögreglustjóri Lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
„Sú var tíðin að skemmti-
stöðum á miðborgarsvæðinu var
lokað klukkan þrjú á nóttunni.
Mikill mannfjöldi var þá til dæmis
í Kvosinni fram undir morgun
svo oft urðu úr pústrar og þaðan
af alvarlegri atburðir,“ segir
Halla Bergþóra. „Fyrir nokkrum
árum var afgreiðslutíminn gefinn
frjáls sem breytti ástandi klár-
lega til hins betra. Í ljósi reynsl-
unnar ættum við nú að taka um-
ræðu um hvort t.d. stytta eigi
tímann, geti slíkt dregið úr of-
beldisbrotum.“
Verndari og beitir valdi
Halla Berþóra kom til starfa
á höfuðborgarsvæðinu sl. vor en
hún á að baki langan starfsferli
við löggæslu og réttarvörslu.
„Starf lögreglumanna er ein-
stakt. Lögreglan er verndari, sál-
gætir, beitir fólk valdi, er með
inngrip í líf fólks og bjargar því.
Lögreglumenn eru oft með fólki
á bestu og verstu stundum lífs
þeirra. Starfið nær yfir allt
mannlegt,“ útskýrir Halla Berg-
þóra þegar Morgunblaðið heim-
sækir hana á lögreglustöðinni í
Reykjavík. Þar er hún með á
skrifstofu á þriðju hæð, með gott
úsýni til norðurs og vesturs.
„Ég er enn að koma mér fyr-
ir og ýmsu hér í húsi er verið að
breyta og laga,“ segir Halla
Bergþóra sem kemur jafnan til
starfa á áttunda tímanum á
morgnana. Daginn byrjar hún
gjarnan á samtölum við yfirlög-
regluþjóna og fær þannig upplýs-
ingar um aðstæður og verkefni
dagsins. Helstu stjórnendur emb-
ættisins hittast síðan daglega og
fara yfir stöðu mála. „Reglulegir
fundir eru nauðsyn svo fólk sé á
sömu blaðsíðu. Fundum verður
þó að halda í hófi svo fólk nái að
halda dagskrárvaldi í eigin lífi. Í
svona starfi er auðvelt að
drukkna í fundum.“
Starfinu lögreglustjóra segir
Halla Bergþóra að fylgi að jafnan
vera til taks: síminn hringi og
skilaboð berist á öllum tímum
samanber að lögreglan sefur
aldrei. Embættið er líka stórt;
starfsmenn eru vel á fjórða
hundraðið og þar af eru um 180
manns í löggæslu úti á götunni.
Sjálf segist lögreglustjórinn enn
vera að læra á innviði og starf-
semi embættisins. Einnig eigi hún
eftir að hitta og kynnast öllu
starfsfólkinu sem sér þyki nauð-
synlegt.
Hraði í borgarsamfélagi
„Verkefni lögreglunnar eru
svipuð hver staðurinn sé. Klár-
lega er þó meiri hraði á öllu í
borgarsamfélaginu en úti á landi.
Ofbeldismál eru í forgangi hér
enda eru það þau brot sem valda
mestum skaða. Samfélaginu er
orðið ljóst hve alvarlegt heimilis-
ofbeldi getur verið, svo sem sál-
rænar afleiðingar. Því skiptir
meginmáli að geta gripið inn í at-
burðarásina fljótt og brotið upp
vítahringinn. Ofbeldi getur til
dæmis verið andlegt, líkamlegt
eða kynferðislegt. Meginmálið er
að veita þolandanum skjól og
stöðva gerandann, segir Halla
Bergþóra.
Að mati lögreglustjóra næst
vel að sinna almennri löggæslu á
höfuðborgarsvæðinu, það er eft-
irliti, viðbragði og hjálpar-
beiðnum. Flestir lögreglumenn
séu á vakt á Hverfisgötunni og
svo áhafnir á tveimur lög-
reglubílum á stöðvunum í Hafn-
arfirði, Kópavogi og í Grafar-
holti. „En vissulega þyrftum við
fleiri lögreglumenn; svo sem til
að sinna ýmsu fyrirbyggjandi
starfi í grasrótinni. Samskipti við
til dæmis börn og ungmenni
koma aldrei í staðinn fyrir eftir-
litmyndavélar eða stafræn sam-
skipti,“ segir Halla Bergþóra sem
viðurkennir að margt sem hún
sjái og kynnist í starfi sé átak-
anlegt.
Einföld útköll
verða erfið verkefni
„Ég trúi þó alltaf á hið góða í
manninum. Þó verð ég oft veru-
lega hugsi til dæmis yfir ofbeldi
gagnvart börnum, fötluðu fólki
eða öðrum í viðkvæmum hópum.
Að vera almennur lögreglumaður
á götunni er krefjandi; útkall sem
virðist einfalt getur á augnabliki
snúist í erfitt verkefni. Best væri
því að almenna lögreglan væri
vel blönduð af lögreglumönnum
með reynslu og svo yngra fólki,“
segir Halla Bergþóra og bætir við
að lögreglumenn séu ekki að
brenna út í stórum stíl, langt frá
því.
„Eftir erfið atvik eru haldnir
viðrunarfundir, þá er félaga-
stuðningur mikilvægur og einnig
býðst lögreglumönnum sálfræði-
þjónusta. Allt þetta er mikilvægt
til að takast á við álagið í starfinu
og mæta því.“
Vernd, valdbeiting og sálgæsla í einstöku starfi lögreglunnar
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Lögreglustjóri Ég trúi alltaf á hið góða í manninum, segir Halla Bergþóra um starf sitt og verkefnin þar.
Ofbeldi skaðar mest
Halla Bergþóra Björnsdóttir
er fædd 1969, frá Laxamýri í S-
Þingeyjarsýslu. Lögfræðingur
frá HÍ og með LLM-gráðu í Evr-
ópurétti frá Stokkhólmi.
Byrjaði í lögreglunni við
sumarafleysingar á Húsavík,
starfaði lengi í dómsmálaráðu-
neytinu. Sýslumaður á Akra-
nesi 2009 til 2015.
Lögreglustjóri á Norðurlandi
eystra 2015 til 2020 og kom til
starfa á höfuðborgarsvæðinu
11. maí á þessu ári.
Hver er hún?
Hjá Framkvæmdsýslu ríkisins er nú unnið að því að koma allri starf-
semi lögreglu og annarrar neyðarþjónustu í Reykjavík undir eitt þak.
Nýlega var auglýst eftir 30 þúsund fermetra lóð eða húsnæði undir
sameiginlega starfsemi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, Land-
helgisgæslunnar, Neyðarlínunnar, Tollstjóra, Ríkislögreglustjóra,
Slysavarnafélagsins Landsbjargar og slökkviliðs höfuðborgarsvæð-
isins. Er nú verið að vinna úr ýmsum gögnum sem borist hafa. Marg-
víslegur ávinningur er talinn nást verði starfsemi þessara aðila á
sama stað, sem stefnan er að verði eftir fimm ár.
„Við höfum lagt áherslu á það að höfuðstöðvarnar verði áfram
tengdar lögreglustöðinni við Hverfisgötu í Reykjavík. Byggingu þar
sem eðlislíkar stofnanir verða á einum stað með starfsemi sína
þyrfti að velja stað í samræmi við þau sjónarmið okkar,“ segir Halla
Bergþóra.
Vilja áfram Hverfisgötu
NEYÐARÞJÓNUSTA OG LÖGREGLA VERÐI UNDIR SAMA ÞAKI
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Það hefur ekkert bæst við, frekar
að þetta sé að fara í hina áttina.
Maður vonar bara að ástandið lag-
ist og að það finnist bóluefni gegn
veirunni sem fyrst. Þá lagast
þetta,“ sagði Sigþór Kristinn Skúla-
son, forstjóri Airport Associates á
Keflavíkurflugvelli. Félagið af-
greiðir nú flugvélar tveggja er-
lendra flugfélaga, Wizz Air frá
Ungverjalandi og breska flugfélags-
ins EasyJet. Sigþór segir að flug-
umferðin sé í algjöru lágmarki og
aðeins brot af því sem félögin höfðu
ætlað sér miðað við eðlilegar að-
stæður.
Þegar umsvifin voru mest störf-
uðu rúmlega 700 manns hjá Airport
Associates. Fjölda starfsmanna var
sagt upp eftir fall WOW air og áhrif
heimsfaraldurs kórónuveirunnar á
millilandaflug urðu ekki til að bæta
úr skák. Nú eru stöðugildin hjá Air-
port Associates rétt rúmlega 100 og
gegna þeim um 130 starfsmenn.
Mötuneytið er öllum opið
Meðan allt lék í lyndi var útbúin
starfsmannaaðstaða fyrir um 700
manns með glæsilegu mötuneyti.
„Þessi aðstaða er öll í notkun. Það
eru bara færri sem nota hana,“
sagði Sigþór. „Mötuneytið er opið
virka daga fyrir starfsmenn okkar
og aðra sem vilja notfæra sér það.
Þeirra á meðal eru verktakar,
starfsmenn bílaleiga, lögreglunnar,
tollsins, UPS og fleiri. Viðskiptavin-
irnir eru ekki margir. Það er svo
lítil starfsemi á Keflavíkurflugvelli
að starfsmannafjöldinn er bara lítið
brot af því sem hann var.“
Starfsemin er
svipur hjá sjón
Nota mötuneyti Airport Associates
Ljósmynd/Aðsend
Keflavíkurflugvöllur Starfsmaður
Airport Associates að störfum.