Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.09.2020, Side 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.09.2020, Side 2
Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.9. 2020 Ég hef lengi verið hugsi yfir tómlæti íslenskra fjölmiðla í garð þess miklakappa Einars þambarskelfis. Þess vegna þóttist ég hafa himin hönd-um tekið hérna á ritstjórn blaðsins á dögunum þegar gamalreyndur blaðamaður (hermt er að hann hafi fyrst komið hér inn sem lærlingur sum- arið 1947) dustaði í óspurðum fréttum af honum rykið. Einar Eindriðason þambarskelfir var frægur norskur vígamaður um alda- mótin þúsund og ber mönnum ekki saman um hvort hið svipmikla viðurnefni merki sá „sem ístran hristist á“, eða bogaskytta, „sá sem lætur bogastreng- inn skjálfa“, en eins og við þekkjum er þömb annað orð yfir bogastreng. Ein- ar var svo skotfastur, að hann skaut bakkakólfi (ör með hnúð fyrir odd) gegn- um hráblauta uxahúð, líkt og Gísli heitinn Jónsson menntaskólakennari rifjaði upp í Lesbók Morgunblaðsins fyrir bráðum aldarfjórðungi. Sjálfur átta ég mig illa á því hvers vegna menn gera þennan ágreining enda ómögulegt að sjá kappa á borð við Einar þambarskelfi fyrir sér með skjálfandi ístru, ekkert frekar en Ása-Þór, Herkúles eða Rambó. Og hvers vegna þá skelfir? Er skjálf- andi ístra eitthvað til að skelfast? Varla fer slíkur kappi hratt yfir en auðvitað er hægt að verða óheppinn og lenda undir honum miðjum sem er örugglega ekkert ofboðslega spennandi, þegar hugsað er um það. Í víðfrægri orrustu við eyna Svoldur var Einar þambarskelfir á merku skipi Ólafs Noregskonungs Tryggvasonar, Orminum langa, aftur í krappa- rúmi. Hann skaut af boga og var allra manna harðskeytastur. Einar skaut að Eiríki Hlaðajarli Hákonarsyni og laust í stýrishnakkann fyrir ofan höfuð jarli og gekk allt upp á reyrböndin. Jarl leit til og spurði ef þeir vissu hver þar skaut en jafnskjótt kom önnur ör svo nær jarli að flaug milli síðunnar og handarinnar og svo aftur í höfðafjölina að langt stóð út broddurinn. Finnur nokkur (sumir segja að hann hafi hreint ekki heitið Finnur, heldur verið finnskur að uppruna) svaraði að beiðni jarls og hæfði boga Einars sem við það brast í tvo hluti. Þá mælti Ólafur konungur: „Hvað brast þar svo hátt?“ Einar svaraði: „Noregur úr hendi þér konungur.“ „Eigi mun svo mikill brestur orðinn,“ sagði konungur, „tak boga minn og skjót af,“ og kastaði boganum til hans. Einar tók bogann og dró þegar fyrir odd örvarinnar og mælti: „Of veikur, of veikur allvalds bogi“ og kastaði aftur boganum, tók þá skjöld sinn og sverð og barðist. Orrustunni lauk með sigri Eiríks jarls og bandamanna hans og féll Ólafur konungur en Einari þambarskelfi voru grið gefin. Boginn eða ístran Pistill Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is ’Og hvers vegna þáskelfir? Er skjálfandiístra eitthvað til að skelfast? Manúel Hrafn Egilsson Nei. Mig langar ekki að fara. SPURNING DAGSINS Ferðu í berjamó? Eva Rumba Já, ég fór í Svínadalinn og tíndi fimm lítra af bláberjum. Árni Jakobsson Ég hef ekki farið í ár en systir mín fór og það er búið að sulta aðalbláber. Sigurveig Lúðvíksdóttir Ég leitaði á Þingvöllum en fann ekkert. Morgunblaðið/Eggert Uppistandarinn og sjónvarpsmaðurinn Björn Bragi Arnarsson sér um spurn- ingaþáttinn Kviss sem hefst á Stöð 2 laugardaginn 5. september klukkan 19. BJÖRN BRAGI ARNARSSON SITUR FYRIR SVÖRUM Keppnisskap í Kviss Hvað er Kviss? Kviss er spurningaþáttur þar sem við fáum þekkta Íslendinga til að keppa fyrir hönd íþróttafélaga sinna. Það mæta sextán lið til leiks í útsláttarkeppni og í lokin munum við krýna Íslandsmeistara í spurningakeppni. Er þetta íþróttaþáttur? Nei, okkur fannst bara skemmtileg hugmynd að láta fólk keppa fyrir hönd íþróttafélaga sem það hefur taugar til og styður. Fæstir af keppendunum hafa gert það gott í íþróttum og það er lítið um íþróttaspurningar. Um hvað verður spurt? Spurningarnar koma úr öllum áttum og eiga fyrst og fremst að vera skemmtilegar. Þátturinn er lauslega byggður á spilinu Pöbbkviss sem ég gaf út í sumar. Þetta eru ekki endilega spurningar fyrir mestu spurninga- nördana. Áhorfendur heima í stofu, bæði yngri og eldri, munu geta svarað með. Hverjir eru keppendurnir? Í fyrsta þættinum keppa Herra Hnetusmjör og Eva Ruza fyrir hönd Breiðabliks á móti FH sem eru Jón Jónsson og Björg Magnúsdóttir. Svo verða þarna Birgitta Haukdal, Ari Eldjárn, Helgi Seljan, Anna Svava, Steindi og fleiri góðir. Í heildina eru þetta 32 keppendur og hver öðrum skemmtilegri. Hefur eitthvað komið á óvart ? Ég hef sérstaklega gaman af því að sjá hversu mikið keppnisskap fólk er með. Enda ekki hægt annað þegar þú ert að keppa fyrir félagið þitt. Svo kom á óvart að sjá hversu góðir margir þarna eru. Herra Hnetusmjör svaraði hraðaspurningum eins og hann hefði aldrei gert annað. Varðveittu minningarnar áður en þær glatast Bergvík ehf - Nethyl 2D - Sími 577 1777 - www.bergvik.is Forsíðumyndin sýnir kórónuveiruna og er frá fréttaveitunni AFP Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Prentun Landsprent ehf. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal kbl@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.