Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.09.2020, Blaðsíða 19
6.9. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
EVA SOLO POTTUR
Steypujárn 3l
19.192 kr 23.990 kr
NORDAL ÁHÖLD
Í setti – Acacia viður
3.432 kr 4.290 kr
BODUMMELIOR
Kaffikanna 1l
7.992 kr 9.990 kr
Þú finnur bæklinginn
husgagnahollin.is
Reykjavík
Bíldshöfði 20
Akureyri
Dalsbraut 1
Ísafirði
Skeiði 1
DA
NS
KI
R D
AG
AR
AFSLÁTTUR
20%ALLARDANSKAR
VÖRUR*
* Gildir ekki af sérpöntunum og
einungis af völdum vörum frá S
kovby.
Hv
að
er
u m
ar
ga
r m
yn
di
r a
f m
ér
í þ
es
su
m
bæ
kli
ng
i?
Ná
na
r á
bl
s.
2
S
ENDUM FR
ÍT
T
V
E F
V E R S L U N
www.husgagnahollin.is
en hjá Sérefnum er mikið úrval af fallegum litakortum sem við-
skiptavinir geta fengið. Sjálf setti ég saman litakort fyrir Sérefni
síðasta vetur sem heitir Roma, en þar sæki ég innblástur til uppá-
haldshverfa minna í Róm þar sem ég bjó lengi. Sumir þeirra lita
bera keim af litunum okkar í Hveragerði,“ segir hún.
Nú eru mismunandi litatónar eftir íbúðum. Fannst ykkur mik-
ilvægt að hafa það þannig? Velur fólk íbúð eftir lit þegar það
pantar?
„Við vildum skapa fjölbreytni með því að vera ekki með allar
íbúðirnar eins. Fólk gæti komið til okkar oftar en einu sinni og
upplifað mismunandi stemningu eftir því í hvaða íbúð það gisti.
Þegar gisting er bókuð eru gestir alls ekki uppteknir af því hvaða
litur er á íbúðinni, þeir eru meira að skoða hvaða mismunandi
tegundir eru í boði og hvað myndi henta þeim best,“ segir Krist-
inn.
Hvaðan koma húsgögn og aðrir munir?
„Við leituðum víða fanga. Eitthvað áttum við á „lager“ því ég er
alltaf að sanka að mér hlutum eins og lömpum og teppum sem
gæti komið sér vel að eiga síðar í eitthvert hús eða verkefni. Allar
íbúðirnar eru endurnýjaðar nánast frá grunni og grunnskipulagi
eldra hússins er gjörbreytt. Við lögðum nýtt vandað parket frá
Ebson á öll gólf, en það er stór þáttur í að skapa hlýju í íbúð-
unum. Hluti innréttinga og húsgagna er frá IKEA en annað er
ýmist sérsmíðað, keypt í verslunum eins og Húsgagnahöllinni,
Heimili og hugmyndum, Lýsingu og hönnun, Heimahúsinu, Fakó
og Magnolíu svo einhverjar séu nefndar,“ segir Rut.
Hvaða stemningu vilduð þið fanga?
„Við lögðum fyrst og fremst upp með það að skapa notalega
stemningu. Við reyndum að setja okkur í spor ferðamanna sem
kæmu þreyttir og kaldir eftir útiveru dagsins og vildum að þeim
fyndist notalegt að koma heim í íbúðina. Margir eru jafnvel
komnir til Íslands yfir hálfan hnöttinn til að skoða náttúruna, en
komast svo jafnvel ekki út fyrir hússins dyr vegna veðurs. Við
vildum að þessu fólki liði vel og fyndist í það minnsta kósí í íbúð-
inni sem það væri lokað inni í. Við höfðum náttúrlega ekki hug-
myndaflug til að sjá fyrir okkur þá að ferðamenn ættu eftir að
vera í þessum íbúðum hjá okkur í fimm daga sóttkví vegna Covid-
takmarkana,“ segir Kristinn.
Þið hafið væntanlega ætlað að stíla Inni inn á erlenda ferða-
menn. Hvernig hefur veiran haft áhrif á það?
„Við opnuðum Inni vorið 2019 og vorum því búin að vera í
rekstri í um það bil ár þegar Covid skall á. Frá upphafi hefur
reksturinn gengið mjög vel og fyrsta árið voru útlendir ferðamenn
nálægt 99% af gestunum. Frá því í mars á þessu ári hefur þetta að
sjálfsögðu breyst, en sem betur fer hafa Íslendingar verið duglegir
að koma til okkar og þá sérstaklega um helgar. Síðustu mánuðir
hafa reyndar verið betri en við þorðum að vona og við vorum kom-
in með mikið af bókunum fram á haustið þegar svo aftur var skellt
í lás á landamærunum nú um miðjan ágúst,“ segir hann.
Hvernig gestir eru Íslendingar?
„Við erum náttúrlega mjög ánægð með að fá svona marga Ís-
lendinga til okkar í sumar og það er greinilegt að þeir kunna að
meta íbúðirnar og að dvelja í Hveragerði. Reykjadalurinn hefur
mjög mikið aðdráttarafl og margir sem hafa notað tækifærið til
að ganga hann núna þegar færri ferðamenn eru á stjái. Við
myndum auðvitað vilja að Íslendingarnir gæfu sér meiri tíma og
dveldu hjá okkur lengur en eina nótt eins og þeir jafnan gera.
Íslendingar og útlendu ferðamennirnir eru mjög ólíkir gestir.
Þeir íslensku nýta íbúðirnar og útiaðstöðuna okkar betur. Þeir
eru virkilega að hafa það huggulegt og rölta svo út að borða á ein-
hverjum af veitingastöðum bæjarins. Útlendingarnir, sem dvelja
að jafnaði í þrjá til fimm daga, eru hins vegar meira í skoð-
unarferðum á daginn en koma svo „heim“ á kvöldin og elda þá,
bregða sér aðeins í pottinn og fara svo snemma í háttinn.
Það er frábært að fá blöndu af þessum ólíku gestum og von-
andi að Íslendingarnir haldi áfram að láta sjá sig hjá okkur
hvernig sem framhaldið verður á heimsfaraldrinum. Það þarf til
dæmis ekki endilega að vera fyrsti kostur að fara eitthvað til út-
landa í helgarferð. Úr höfuðborginni er ekki nema rétt hálftíma
akstur yfir heiðina í Hveragerði, kolefnissporið er lítið, engar bið-
raðir á flugvöllum og enginn þarf að vakna eldsnemma. Það eru
frábærir gistimöguleikar víðs vegar um landið og veitingahús
sem jafnast á við það besta sem þið finnið í borgarferðum erlend-
is. Ferðumst innanlands í vetur!“
Rut vildi að íbúðirnar væru þann-
ig að þær héldu utan um þreytta
og slæpta ferðalanga. Hér má sjá
flauelsstóla sem fara vel með litn-
um á lofti og veggjum.
Ljósmyndir/Katarzyna Kozanczuk
Ferskjulitaður fer vel með
svartri innréttingu úr
IKEA og opnum hillum.
Hér má sjá eitt horn í
brúnbleiku íbúðinni.