Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.09.2020, Side 29
sem þessi þróun hefur átt sér stað í
áratugi í nágrannalöndum okkar,
bæði Danmörku og einnig Svíþjóð á
allra seinustu árum. Við Eiríkur
munum fara vítt og breitt yfir það
svið en popúlistar hafa verið að
styrkja stöðu sína víða á und-
anförnum árum og forvitnilegt að
velta fyrir sér hvaða áhrif það hefur á
okkur.“
Hlustun er að breytast
Þröstur tók við starfi dagskrárstjóra
Rásar 1 fyrir rúmum sex árum og
segir tímann í Efstaleitinu hafa verið
mjög skemmtilegan. „Viðtökur hafa
verið mjög góðar og hlustunin aukist
um meira en 20% sem er ánægjulegt.
Rás 1 er ekkert frábrugðin öðrum út-
varpsstöðvum að því leyti að hún
dansar með í því sem hefur verið að
gerast í útvarpi á síðustu árum og
misserum en miklar breytingar hafa
átt sér stað eftir að hlaðvarpið tók við
sér af alvöru. Hlustun er að breytast;
fólk neytir útvarps með öðrum hætti
en það gerði. Það þýðir að um leið og
við höldum áfram að rækta línulegt
útvarp þá þurfum við að horfa í aukn-
um mæli til ólínulegrar dagskrár.
Það er óhjákvæmileg þróun. Það er
mjög mikilvægt að fylgjast með því
hvernig fólk notar útvarp.“
– Samkvæmt rafrænni ljós-
vakamælingu Gallup stendur Rás 1
vel að vígi í aldurshópnum 50 til 80
ára en útkoman er mun lakari í ald-
urshópnum 12 til 49 ára. Er þetta
áhyggjuefni?
„Ekki endilega. Það hefur aldrei
truflað mig að hlustendur okkar séu
fyrst og fremst eldra fólk; margt af
því efni sem við bjóðum upp á höfðar
frekar til eldra fólks en yngra. Að því
sögðu þá langar okkur að sjálfsögðu
að ná betur til yngra fólksins og ég er
ekki í minnsta vafa um að ólínulega
dagskráin eigi eftir að skila okkur
aukinni hlustun meðal yngra fólks
sem hefur mikinn og vaxandi áhuga á
hlaðvarpi. Nú er það bara okkar að
vera með efni fyrir þann hóp sem tal-
ar við þau og kallar til þeirra.“
Hann tekur þó fram að það þurfi
að vera efni í anda Rásar 1 sem
standist þær kröfur sem þar eru
gerðar til dagskrárgerðar. „Þetta
þarf að vera innihaldsríkt og vandað
efni, þar sem talað er gott íslenskt
mál. Ef efnið og efnistökin eru góð þá
ratar það til hlustenda.“
Rás 1 fagnar níræðisafmæli sínu á
þessu ári og að dómi Þrastar ber af-
mælisbarnið aldurinn vel. „Það eru
mikil sóknarfæri í útvarpi, ekki síst
fyrir útvarp sem leggur eins mikla
áherslu á talað mál og Rás 1.“
– Og jafnvel ekkert því til fyr-
irstöðu að Rás 1 eigi önnur níutíu ár
fyrir höndum?
„Nei, það er ekkert því til fyr-
irstöðu að Rás 1 geti spjarað sig í
önnur níutíu ár. Það er alltaf spurn
eftir góðu efni og inntaki. Þetta er
bara gamla góða mantran að freista
hlustenda. Sú staðreynd að þeir sæk-
ist eftir góðu efni og mikilvægum
upplýsingum í útvarpi fellur aldrei úr
gildi. Það á ekki síst við á þessum
tímum falsfrétta og samsæriskenn-
inga sem fara um heimsbyggðina
eins og eldur í sinu.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
6.9. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
Sölustaðir: Flest apótek, heilsuhús og heilsuhillur stórmarkaða Nánar á artasan.is
Hair Volume
– fyrir líflegra hár
Hair Volume inniheldur jurtir og
bætiefni sem sem eru mikilvæg fyrir
hárið og getur gert það
líflegra og fallegra.
Aldrei haft jafn þykkt hár
„Eftir að hafa misst allt hár í krabbameinsmeðferð byrjaði ég að
taka Hair Volume frá New Nordic. Eftir 4-6 vikur fór hárið að vaxa
aftur og ég hef aldrei haft jafnt löng augnhár, þykkar augabrúnir
og þykkt hár eins og núna og það hvarflar ekki að mér að hætta að
taka þetta bætiefni inn.“ Edda Dungal
HROLLUR Hjúkrunarfræðingurinn
alræmdi Mildred Ratched verður í
forgrunni í nýjum framhaldsþáttum
í hrollvekjutryllisstíl sem koma inn á
efnisveituna Netflix 18. þessa mán-
aðar. Þættirnir kallast einfaldlega
Ratched og byggjast á skáldsögunni
Gaukshreiðrinu eftir Ken Kesey frá
árinu 1962. Það var Louise Fletcher
sem gerði Ratched hjúkrunarkonu
ódauðlega í kvikmyndinni frá 1975
en nú er röðin komin að Sarah Paul-
son. Sharon Stone og Cynthia Nixon
koma einnig við sögu.
Hin alræmda Ratched snýr aftur
Sarah Paulson í hlutverki Ratched.
Netflix
BÓKSALA Í ÁGÚST
Tekið saman af Félagi íslenskra bókaútgefenda
1 Sumar í París Sarah Morgan
2 Þorpið Camilla Sten
3 Mitt ófullkomna líf Sophie Kinsella
4
Handbók fyrir ofurhetjur
– fimmti hluti: horfin
Elias og Agnes Våhlund
5 Sjáðu mig falla Mons Kallentoft
6 Vegahandbókin Ýmsir
7 Þín eigin saga – risaeðlur Ævar Þór Benediktsson
8 Fjallaverksmiðja Íslands Kristín Helga Gunnarsdóttir
9 Verstu kennarar í heimi David Walliams
10 Þín eigin saga – knúsípons Ævar Þór Benediktsson
11 Stormboði Maria Adolfsson
12
Stjáni og stríðnispúkarnir 6
– púkar á flækingi
Zanna Davidson
13 Tíbrá Ármann Jakobsson
14
Kennarinn sem hvarf
sporlaust
Bergrún Íris Sævarsdóttir
15 Gegnum vötn, gegnum eld Christian Unge
16 Ertu viss? Thomas Gilovich
17 Þerapistinn Helene Flood
18 Sölvasaga unglings Arnar Már Arngrímsson
19 Þess vegna sofum við Matthew Walker
20 Eyland Sigríður Hagalín Björnsdóttir
Allar bækur
Lestrarefnið þessa dagana
endurspeglar fjölbreytileikann í
lífi mínu um þessar mundir. Lífið
tók snarpa beygju í byrjun árs
þegar ég komst að því að ég á
von á barni og þá sótti ég auðvit-
að í bókmenntirnar til að sækja
styrk og fróðleik.
Aðalbókin núna er því 1000
fyrstu dagarnir – barn verður til
eftir Sæunni Kjartansdóttur. Það
er magnað að
fræðast um
fyrstu árin í lífi
ungbarns, við
erum svo
ósjálfbjarga
fyrst um sinn. Í
raun ætti með-
gangan að vera
12 mánuðir samkvæmt Sæunni
en hröð þróun mannkyns hefur
valdið því að við verðum að
koma fyrr í heiminn – í raun áður
en við erum fyllilega tilbúin.
Auk Sæunnar
hef ég gert að
fylgdarmanni
mínum Brené
Brown, heims-
fræga fé-
lagsfræðinginn
sem hvetur full-
orðið fólk til þess
að varpa skelinni
og leyfa sér að vera viðkvæmur,
opinn og einlægur. Ég er bæði að
lesa Rising Strong, bók sem
fjallar um hvernig við rísum eftir
óhjákvæmileg
föll í lífinu, og
hlusta á hljóð-
bókina The Po-
wer of Vulner-
ability, þar
fjallar hún ein-
mitt mikið um
nauðsyn þess að tala um tilfinn-
ingar við börnin sín og sýna þeim
skilning.
Þegar ég er ekki að búa mig
undir móðurhlutverkið dett ég
inn í súrrelismann hjá Haruki
Murakami í
Kafka á strönd-
inni. Ég og kær-
astinn minn fylgj-
um aðal-
söguhetjunum
Kafka og Nakata
saman og veltum
fyrir okkur frum-
spekilegum
spurningum bók-
arinnar á borð við tengsl forms
og efnis. Murakami er ótrúlegur
höfundur, ég hafði ekki komist í
að lesa neitt eftir hann áður en
honum tekst að draga fram allt
litróf tilfinninga hjá lesandanum
sem þetta skrifar.
Þegar álagið verður of mikið
og ég þarf að hverfa inn í annan
ævintýraheim set
ég upp heyrnar-
tólin og set á
góða Harry
Potter-bók. Nú
síðast kláraði ég
Eldbikarinn í
lestri Stephens
Frys. Bækurnar
hafa heillað mig síðan þær komu
fyrst út og mér finnst áhugavert
að pæla í vináttunni og kærleik-
anum og baráttu góðs og ills.
Það er svo dásamlegt þegar bæk-
ur fylgja manni í gegnum lífið,
með hverjum lestri kemur í ljós
nýtt smáatriði og túlkun á efni
bókarinnar þróast eftir því sem
lesandinn þroskast.
NANNA ELÍSA JAKOBSDÓTTIR ER AÐ LESA
Að sækja styrk og fróðleik
Nanna Elísa
Jakobsdóttir er
viðskiptastjóri
á hugverka-
sviði hjá Sam-
tökum iðn-
aðarins.