Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.09.2020, Side 32
SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2020
STAN model 3035
L 170 cm Leður ct. 10 Verð 369.000,-
L 206 cm Leður ct. 10 Verð 399.000,-
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
DUCA model 2959
L 215 cm Áklæði ct. 70 Verð 369.000,-
L 215 cm Leður ct. 10 Verð 529.000,-
ESTRO model 3042
L 198 cm Áklæði ct. 70 Verð 279.000,-
L 198 cm Leður ct. 10 Verð 379.000,-
GOLF model 2945
L 216 cm Áklæði ct. 70 Verð 259.000,-
L 216 cm Leður ct. 10 Verð 399.000,-
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur
(meðVisa / Euro) í allt að 6 mánuði.
AVANA model 2570
L 224 cm Leður ct. 10 Verð 459.000,-
L 244 cm Leður ct. 10 Verð 489.000,-
„Ég hef tengst flóttamönnum heilmikið undanfarin tvö ár; sér-
staklega þeim yngri í gegnum knattspyrnuverkefni og þetta eru
upp til hópa góðir krakkar sem kunna að meta alla aðstoð sem
þeim er boðin,“ segir enski sparkskýrandinn og landsliðs-
miðherjinn fyrrverandi Gary Lineker við breska blaðið Daily
Mirror, en hann hefur boðist til að hýsa flóttamann á heimili
sínu. Fólk frá samtökunum Flóttamenn á heimilum mun í fram-
haldinu taka húsnæði hans út og meta hvort það hentar fyrir
slíkt verkefni. „Börnin mín eru vaxin úr grasi og flutt að heiman,
þannig að ég bý að heilmiklu rými og ef ég get létt undir um
stundarsakir myndi það gleðja mig,“ bætti hann við.
Lineker hefur áður gagnrýnt bresk stjórnvöld fyrir sinnu-
leysi og harðneskju í garð flóttafólks og hyggst hér láta kné
fylgja kviði. Flóttamenn á heimilum hafa fagnað framtaki hans
enda skipti miklu máli að hafa svo áberandi fólk um borð.
Gary Lineker skoraði
á sinni tíð 48 mörk
fyrir enska landsliðið.
AFP
Vill hýsa flóttamann
Lögreglumaður með ungan flóttamann í bænum
Dover eftir að honum var bjargað á Ermarsundi.
AFP
Sparkgoðsögnin Gary Lineker býðst til að
hýsa flóttamann á heimili sínu.
„Fyrir nokkrum árum sá jeg Jón
frá Laug standa sem lög-
regluvörð og verja mönnum inn-
göngu í fundarhús. Dyrnar, sem
hann stóð í, voru talsvert breið-
ar. En hann fylti svo vel út í þær,
að enginn hugsaði til þess að
gera þar áhlaup. Síðan hefir Jón
staðið fyrir mjer sem einn af
máttarstólpum götulögregl-
unnar hjer í Reykjavík.“
Þessi inngangur að viðtali birt-
ist í Morgunblaðinu á þessum
degi fyrir áttatíu árum, 6. sept-
ember 1940. Nafns blaðamanns
er ekki getið en tilefni viðtalsins
var að hann hitti Jón á götu í
Reykjavík og kom þá í ljós að
hann hafði sagt skilið við lögregl-
una og ætlaði að snúa sér að
garðyrkju við hverahita austur
við Geysi. Jón var spurður að því
hvernig honum hefði fallið lög-
reglustarfið.
„Jeg hefi verið í lögregluliðinu
í 7 ár. Þetta getur verið nokkuð
þægilegt starf fyrir þá menn,
sem hafa ekki löngun til að gera
neitt sjerstakt, að skapa sjer
sjálfstæða atvinnu eða sökkva
sjer niður í eitthvað, sem tekur
hug manns.“
– Vinnutíminn?
„Hann er þægilegur. En það
versta er, að þurfa að gera
mönnum óþægindi fyrir smá-
muni. Flest það, sem kemur
götulögreglunni við, er eitthvað
í þá átt, svona „á leiðinlegu hlið-
ina“, sem maður segir. En jeg
geri ráð fyrir, að jeg hafi altaf
verið talinn ljelegur lög-
regluþjónn. Því jeg skrifaði fáar
skýrslur. Mjer fjell altaf best að
geta gert út um málin á staðn-
um, áleit að jeg gerði meira
gagn með því að tala við vegfar-
endur og leiðbeina þeim, heldur
en að skrifa skýrslu til dómara,
sem var fjarri því, sem gerðist.“
GAMLA FRÉTTIN
Féll best að gera út um málin á staðnum
Jón frá Laug var 7 ár í lögreglunni.
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Zooey Deschanel
leikkona.
Helga Guðrún Johnson
rithöfundur.
Arndís Kristjánsdóttir
framkvæmdastjóri Kramhússins.