Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.09.2020, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.09.2020, Blaðsíða 12
VIÐTAL 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.9. 2020 Þ að var bjartur og fagur sunnudags- morgunn og leiðin lá niður á Skólavörðustíg á hið skrautlega kaffihús Babalú. Bærinn var að rumska og Hallgrímskirkjuklukk- urnar glumdu hátt og snjallt; klukkan var ell- efu og messan að hefjast. Blaðamaður skund- aði inn á kaffihúsið og upp á aðra hæð og fast á hælana kom viðmælandinn, leikarinn Þorvald- ur Davíð Kristjánsson. Hann er önnum kafinn um þessar mundir við tökur á nýrri bíómynd en átti frí á þessum hvíldardegi og gaf sér tíma til spjalls. Með rjúkandi kaffi í bollum komum við okkur fyrir í eldgömlu vínrauðu plastsófa- setti, undir súð sem alsett er gömlum póst- kortum. Það fór vel um okkur innan um gamla muni, útsaumaða púða og ljósmyndir úr fyrnd- inni. Svolítið eins og að vera heima hjá sérvit- urri ömmu. Tólf tíma dagar Spjallið hefst á kvikmyndinni sem Þorvaldur leikur í um þessar mundir, en tökur standa nú sem hæst á Svari við bréfi Helgu, eftir sam- nefndri bók Bergsveins Birgissonar, í leik- stjórn Ásu Helgu Hjörleifsdóttur. Myndin verður vonandi tilbúin að ári. „Við erum búin að vera í mánuð í tökum; hér í Reykjavík, Hvalsnesi en þó aðallega á Ströndum. Ég leik Bjarna bónda og ferlið er búið að vera frábært. Dásamlegt að fá að vinna aftur með Ásu Helgu. Hún er svakalega flink- ur leikstjóri og hefur einstakt lag á okkur leik- urunum. Hera Hilmarsdóttir og Aníta Briem leika meðal annars í myndinni. Aníta leikur líka með mér í Ráðherranum. Við lékum fyrst saman tólf ára í Kardemommubænum og þekkjumst því vel,“ segir hann og brosir. „Við Hera höfum líka oft leikið saman, í Vonarstræti og Andað og svo höfum við gert saman stuttmynd. Það hjálpar til að vinna með góðu fólki sem þú þekkir vel. Það gerir ferlið auðveldara,“ segir hann og segist nýkominn til borgarinnar. „Við vorum að koma af Ströndum og erum núna að taka upp á Suðurnesjum og í Reykja- vík. Þetta eru yfirleitt í kringum ellefu til tólf tíma vinnudagar. Það er krefjandi að vera í tökum svona lengi á daginn. Sérstaklega þegar maður er í burðarhlutverki. Þessir löngu vinnudagar gefa manni þó tækifæri til að hverfa frá hinu daglega amstri og sökkva sér dýpra inn í heim verksins og karkatersköp- unina sem skilar sér svo vonandi á stóra tjald- inu. Sagan sjálf gerist að stærstum hluta í kringum 1940 en það er líka flakkað fram og aftur í tíma,“ segir Þorvaldur og segir það bæði áhugavert og krefjandi að þurfa að leika hlutverk í sama verki á ólíkum æviskeiðum. Er þetta erfitt hlutverk? „Hvert verkefni hefur sínar áskoranir. En þetta verkefni er sennilega eitt mest krefjandi hlutverk sem ég hef tekið að mér í gegnum ár- in. Hlutverkið er stórt og krefst mikils af leik- aranum. Sögusviðið er líka framandi fyrir mér. Sveitalíf á Ströndum, þar sem ég þarf að leika bónda og forðagæslumann. Ég hef reyndar áð- ur leikið vinnumann á bóndabæ og hafði því farið í gegnum ferlið að vera maður í nátt- úrunni, vinnandi maður á bóndabæ. Sú reynsla hefur hjálpað til í vinnuferlinu. Það hefur líka hjálpað til að vera umkringdur hæfileikaríku kvikmyndagerðarfólki og góðum meðleik- urum. Þegar maður er umkringdur svona góðu fólki þá er miklu auðveldara að treysta og gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn. En já, vissu- lega er þetta krefjandi og margt í gangi tilfinn- ingalega hjá persónum sögunnar,“ segir Þor- valdur og segist aðspurður ekki hafa verið í sveit sem barn. „En mamma og pabbi eru hinsvegar utan af landi. Þau ólust upp á Fáskrúðsfirði, sem er af- skaplega fallegur fjörður fyrir austan, og var ég mikið þar sem barn,“ segir hann en móðir hans er Helga Jóna Óðinsdóttir, starfsmaður á verkfræðistofu, og faðir hans Kristján Þor- valdsson blaðamaður, sem nú býr í Danmörku. Þorvaldur er alinn upp einbirni. „Þau áttu mig mjög ung, um tvítugt. Þau skildu svo þegar ég var stúdent. Ég á eina hálfsystur, pabbamegin, þrettán ára. Hún var að fermast um daginn þessi elska.“ Rómantíski fangaklefinn Þorvaldur fór í leiklistarskólann hér heima og kláraði fyrsta árið en fór þá til New York í hinn virta Juilliard-listaskóla þar sem hann lagði stund á leiklist í fjögur ár. „Það var rosalegt ævintýri,“ segir Þorvaldur og segist hafa fengið hlutverk í Hollywood- mynd stuttu eftir útskrift. „Ég lék leigumorðingjann Blue Eyes í Dra- cula Untold; ég átti að drepa Drakúla. Ég var í Belfast í tökum í nokkra mánuði; það var mjög fínn tími,“ segir hann og brosir. Var það draumur hjá þér að slá í gegn í Am- eríku? „Draumur, nei. Mig langaði alltaf að búa í New York og læra þar og hvað kæmi á eftir var opið; hvort ég kæmi heim eða yrði áfram úti. Þegar ég hafði sem mestan áhuga á leiklist snerist þetta um verkefnin. Ég vildi fá krefj- andi verkefni; hvort sem þau væru á Íslandi eða í útlöndum,“ segir hann og segir að lengi hafi blundað í sér að búa í New York. „Sá draumur byrjar strax í æsku; ég horfði mikið á bíómyndir og margar þeirra gerast í New York. Mér fannst ég þekkja borgina. Það var svo frábært að búa þarna, en eftir á að hyggja hefði ég átt að njóta borgarinnar betur, en tíminn fór í námið og svo auðvitað var mað- ur fátækur námsmaður,“ segir hann og lýsir vistarverum sínum í stórborginni. „Ég bjó fyrst inni á heimavist skólans. Her- bergin voru eins og afar litlir fangaklefar, með góðu útsýni yfir New York; það er ekki hægt að kvarta yfir því. Þar deildi ég koju með píanóleikara frá Chicago og einu baðherbergi með átta öðrum strákum úr skólanum.“ Ári síðar flutti hann úr „rómantíska fanga- klefanum“, eins og hann orðar það, yfir í hús fyrir aftan Metropolitan-óperuna. „Þrátt fyrir að vera nálægt óperunni var þessi íbúð í gettói og ég deildi henni með tveimur bekkjarfélögum. Hún var eiginlega verri en heimavistin,“ segir hann og hlær. „Eitt sinn var ráðist á okkur á leiðinni heim. Þetta var um miðnætti og það veittust að okk- ur nokkrir menn, kýldu vin minn og drógu upp hníf. Við náðum svo að tala þá til,“ segir hann. „Svo var það í annað sinn að bíll var sprengdur í loft upp fyrir utan húsið okkar. Ég á nokkrar svona minningar frá New York, sem eru kannski rómantískar í minningunni en voru þá erfiðar og hættulegar.“ Að víkka sjóndeildarhringinn Þorvaldur flutti heim að loknu námi árið 2012, enda kominn með íslenska konu, Hrafntinnu Karlsdóttur. Í dag eiga þau tvær dætur, þriggja og sjö ára. Eftir heimkomuna hefur hann unnið sjálf- stætt og ekki viljað fastráða sig hjá leikhúsum borgarinnar. „Það hefur verið mitt val. Það felst vissulega ákveðið öryggi í því að vera á föstum samningi hjá leikhúsunum og ég skil vel að fólk í okkar stétt sækist eftir því, en mér hefur þótt það hingað til vera bindandi að fastráða mig hjá leikhúsunum. Ég hef verið heppinn með verk- efni og því hefur þessi lausamennska hentað vel. Þá er ég síður bundinn um helgar og get notið þess að vera heima með fjölskyldunni. En það koma oft svona tarnir inn á milli þar sem maður þarf að vera lengi í burtu vegna kvikmyndaverkefna. Undanfarin tvö ár hef ég til að mynda þurft að vera svolítið í burtu vegna vinnu og skólamála,“ segir Þorvaldur, en hann er í MBA-námi við Oxford-háskóla í Englandi. Hann er kominn langt á veg með námið og fer utan í hverjum mánuði, viku í senn. „Þetta er svolítið eins og að vera í Harry Potter-mynd, með allar gömlu byggingarnar. Og borgin er dásamleg. Fyrir utan hvað það er margt klárt fólk þarna sem er gaman að spjalla við. Mig langaði bara að víkka sjón- deildarhringinn; ég held það sé alveg nauðsyn- legt fyrir okkur eyjarskeggja.“ Af hverju datt þér í hug að fá þér MBA- gráðu? „Ég er einfaldlega á þeim tímapunkti í mínu lífi að mig langaði að prófa eitthvað nýtt. Ég er búinn að leika síðan ég var tíu eða ellefu ára og ég var bara orðinn þreyttur á þessu. Mig lang- aði að gera eitthvað annað og eiga möguleika á öðru en leiklist. Fjármál eða rekstrarhagfræði heilla mig kannski ekki, heldur frekar að skapa og hrinda hlutum í framkvæmd. Ég vildi líka kynnast nýju fólki og læra af því. Í bekknum er fólk frá öllum heimshornum og maður lærir svo margt af því og um leið kynnist ég öðrum menn- ingarheimum. Á sama tíma öðlast ég þekkingu á viðskiptatengdum hlutum sem hjálpa manni kannski að búa eitthvað til seinna meir.“ Námið hefur leitt hann alla leið til Indlands, sem hann segir hafa verið mikla og góða reynslu. „Við vorum þar í viku og lærðum hvernig á að stofna fyrirtæki í landi þar sem kerfið er stórt og flókið. Það gerist ekki mikið flóknara en Indand, en þarna skoðuðum við menn- inguna, pólitíkina og söguna, auk þess að skoða indversk fyrirtæki,“ segir hann. „Ég finn það núna þegar ég eldist og sé að fólk er að veikjast í kringum um mig og jafnvel falla frá að það mikilvægasta er að rækta sam- böndin við þá sem manni þykir vænt um sem og rækta sjálfan sig, njóta þess að vera til og prófa eitthvað nýtt. Fólki finnst kannski stundum bratt að taka ákvarðanir eins og að fara út í nám, en maður sér aldrei eftir því að prófa. Stundum þarf maður bara að taka stökkið og sjá hvað gerist.“ Löngunin til að skapa Námið fær aðeins að bíða nú um stund vegna kórónuveirunnar en Þorvaldur hefur í nógu að snúast í leiklistinni. Hann viðurkennir að sá áhugi hafi komið og farið á síðustu árum. „Þetta er upp og niður. Ég byrjaði tíu ára í útvarpsleikshúsi og hef í raun unnið við leiklist á hverju ári síðan. Þetta byrjaði með því að pabbi var að vinna á Ríkisútvarpinu og ég og vinur minn vorum að þvælast á göngunum, í fótbolta. Mér var þá boðin vinna í barna- útvarpinu og þá fór boltinn að rúlla. En fram- kvæmdagleðin í mér byrjaði mjög snemma; tíu, tólf ára,“ segir hann og segist hafa sótt um vinnu á hóteli barnungur. „Ég man að ég var að hjóla í hverfinu mínu og sá að það var verið að byggja hótel þannig að ég bankaði upp á og bað um að hitta eigand- ann,“ segir hann og hlær. „Ég bað hann um vinnu og hann réð mig í að bera töskur og í önnur smáverk. Þetta var fyrsta djobbið, og leikhúsið,“ segir hann. Síðar fór Þorvaldur í Versló og tók þar virk- an þátt í leiklist og félagslífi skólans og var meðal annars í stjórn nemendafélagsins. „Ég var líka í 12:00 vídeónefndinni og við framleiddum alls konar efni. Svo fyrir fjórum árum var ég beðinn um að koma, ásamt góðum hópi fólks, að því að þróa hjá Versló nýja námsbraut; listir og nýsköpun. Það var mjög gaman að koma til baka. Ég held nefnilega að margir sem fara í Versló hafi í sér löngun til að skapa og taka því þátt í nemendamóti, að búa til tímarit, halda söngvakeppnir og svo fram- vegis. Það hefur alltaf verið löngun hjá Versló að vera með námsbraut sem hentar þessum krökkum.“ Kafar djúpt í staðalímynd Við vendum kvæði okkar í kross og hoppum fram í nútímann, því í kvöld frumsýnir RÚV Ráðherrann, nýja íslenska sjónvarpsseríu framleidda af Sagafilm. Þar leikur Ólafur Darri Ólafsson forsætisráðherra og formann Sjálfstæðisflokksins sem greinist með geð- hvörf. Þorvaldur Davíð leikur þar stórt hlut- verk; varaformann Sjálfstæðisflokksins. „Stundum þarf að taka stökkið“ Leikarinn Þorvaldur Davíð Kristjánsson hefur leikið frá tíu ára aldri og vill nú prófa nýja hluti meðfram leiklistinni. Hann stundar MBA-nám við Oxford-háskóla og segir það víkka sjóndeild- arhringinn. Þorvaldur leikur stórt hlutverk í Ráðherranum sem frumsýndur er í kvöld á RÚV. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is ’Herbergin voru eins og afarlitlir fangaklefar, með góðuútsýni yfir New York; það er ekkihægt að kvarta yfir því. Þar deildi ég koju með píanóleikara frá Chicago og sturtuklefa með átta öðrum strákum.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.