Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.09.2020, Blaðsíða 18
Kærasta mín er hálfíslensk og hálfþýsken við hittumst fyrst í Berlín. Við vor-um í fjarsambandi í eitt ár og heim-
sóttum hvort annað í hverjum mánuði. Ég bjó
í París og hún í Reykjavík. Við skoðuðum
hvað væri best í stöðunni, þar á meðal fyrir
stjúpson minn sem er 12 ára, og ákváðum að
búa á Íslandi,“ segir Maxime um ástæðu þess
að hann ákvað að flytja til Íslands.
Maxime kom með Norrænu til Seyð-
isfjarðar í maí 2018 með fullan bíl af farangri.
„Þetta var ekki einföld ákvörðun og
ég þurfti að byrja upp á nýtt
hér á Íslandi en það er án
efa besta ákvörðun
sem ég hef tekið og
sé ekki eftir því,“
segir Maxime
um þá ákvörð-
un að flytja
til Íslands.
Hann sagði
upp yf-
irmanns-
stöðu hjá
súkku-
laðiframkeið-
andanum
Mars til þess að
elta ástina til Ís-
lands. Hann hefur
þó ekki alveg sagt
skilið við sætindin en
ásamt því að reka netversl-
unina La Boutique Design selur
Maxime franskar makkarónur undir nafninu
Franskarmakkaronur.is.
Maxime er alinn upp við fallega hönnun
heima fyrir og segir að móðir sín sé mjög
áhugasöm um hönnun. Faðir hans rak lítið
fyrirtæki sem seldi frönskum tískuhúsum efni
og aukahluti svo hönnun hefur alltaf verið
hluti af hans lífi.
„Ástríða mín hófst fyrir alvöru þegar ég
flutti að heiman til þess að stunda háskólanám
en ég er með meistaragráðu í viðskiptum og
stjórnun. Ég notaði launin mín til þess að inn-
rétta íbúðina mína smátt og smátt. Ég hef
alltaf kosið að fjárfesta í gæðahlutum og tíma-
lausri hönnun í stað hönnunar sem er ekki
jafn endingargóð en það er eimitt heim-
speki La Boutique Design,“
segir Maxime.
Maxime segir Frakk-
land vera heimili
margra bestu
hönnuða í heimi
en Parísarborg
sé borg ást-
arinnar, ljósa
og flottrar
innanhúss-
hönnunar.
Hann bendir
á að þrátt fyr-
ir að flotti Par-
ísarstíllinn sé
einstakur sé
franski stíllinn fjöl-
breyttur, allt frá töff
íbúðum í París til nota-
legra sveitaheimila í hér-
aðinu Provence. Maxime telur
margbreytileikann vera
styrkleika franskrar hönn-
unar sem hann skilgreinir
sem „klassíska með nútíma-
legu tvisti“.
Vagga frá þýska merkinu
Bermbach Handcrafted.
Hægindastóll frá franska
merkinu Kann Design.
„Ég þurfti að
byrja upp á nýtt
hér á Íslandi“
Frakkinn Maxime Sauvageon hefur búið á Íslandi í tvö ár en
það var ástin sem dró hann upphaflega til landsins. Maxime er
alinn upp við fallega hönnun í Frakklandi og þegar hann flutti
til Íslands ákvað hann að stofna hönnunarverslunina La Bouti-
que Design. Undir nafninu selur hann franskar og alþjóðlegar
hönnunarvörur sem eiga það sameiginlegt að vera vistvænar.
Guðrún Selma Sigurjónsdóttir gudrunselma@mbl.is
Ljós frá GO-
OD&MOJO.
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.9. 2020
LÍFSSTÍLL
Reykjavík
Bíldshöfði 20
Akureyri
Dalsbraut 1
www.husgagnahollin.is
558 1100
Verð og vöruupplýsingar í auglýsingunni eru birtar með
fyrirvara um prentvillur. Yfirstrikað verð sýnir fullt verð vöru.
10 – 18 virka daga
11 – 17 laugardaga
13 – 17 sunnudaga
10 – 18 virka daga
11 – 16 laugardaga
Ísafjörður
Skeiði 1
DANSKIR DAGAR
20% AFSLÁTTUR
AF SMÁVÖRU FRÁ