Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.09.2020, Qupperneq 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.09.2020, Qupperneq 4
FRÉTTIR VIKUNNAR 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.9. 2020 Svandís Svavarsdóttir heil-brigðisráðherra staðfesti ásunnudag tillögur Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis um að framlengja lokun öldurhúsa á höfuð- borgarsvæðinu um viku og fyrirskipa menntaskólanemum að bera grímu, en að herða sóttvarnaaðgerðir ekki að öðru leyti þó að smit hefði aukist verulega og á annað þúsund manns í sóttkví. Tölfræðigreining, sem Jón Sch. Thorsteinsson hjá verðbréfafyrir- tækinu Arev gerði fyrir Brim, leiðir í ljós að þrátt fyrir viðtekna skoðun sé samþjöppun í íslenskum sjávarútvegi alls ekki mikil og samkeppni raunar mjög virk. Hins vegar kom á daginn að samþjöppun á matvörumarkaði og í bankaþjónustu er langt yfir hættu- mörkum Samkeppniseftirlitsins. Sjálfstæðismenn unnu stórsigur í nýju sameinuðu sveitarfélagi á Aust- urlandi. Gauti Jóhannesson oddviti þeirra sagði fyrsta verkefnið (eftir meirihlutamyndun með Framsókn) það að ákveða nafn á sveitarfélagið. Um það hafa komið fram ýmsar til- lögur, allt frá mikilfenglegri Dreka- þinghá til flatneskjulegs Múlaþings, sem óhjákvæmilega yrði borið fram Fúlaþing annars staðar á landinu. Salan á Omnom-súkkulaði jókst um 30.000% eftir að fjallað var um það í heimildarþætti á Netflix. 30.000% er önnur leið til þess að segja að hún hafi 300-faldast. Grjóti, þara og grastorfum skolaði yfir hjólreiðastíg og götu við Eiðs- granda í Reykjavík í miklum sjó- gangi, sem þar gerði, og gekk brimið langt upp á land. Stórstreymt var og stormur, en við þær aðstæður og í til- tekinni átt getur þetta gerst. Þótt sú hafi verið raunin í um 14 milljónir ára er það nú fyrst sem ráðast á í að gera þar sjóvarnargarð. Kjaratölfræðinefnd gaf út þá niður- stöðu sína að markmið lífskjara- samninganna svonefndu um launa- hækkanir hefðu gengið eftir, þar sem hinir lægstlaunuðu hefðu hækk- að hlutfallslega mest.    Aðalmeðferð í máli Gunnars Jó- hanns Gunnarssonar, sem gefið er að sök að hafa banað hálfbróður sín- um í fyrra, hófst í Noregi. Kjaratölfræðinefnd skýrði frá því að kórónukreppan væri frábrugðin fyrri kreppum að því leyti að kaup- máttur hefði haldist enn sem komið væri. Hagkerfið stæði þó ekki undir því til lengdar án nýrrar verðmæta- sköpunar. Aðgerðir til þess að vernda og byggja upp bleikjustofninn í Mývatni hafa staðið yfir undanfarin ár og er gert ráð fyrir að auknar veiðar verði leyfðar þar á næsta ári, öllum áhuga- mönnum um Mývatnsreyð til mik- illar gleði. Góa-Linda finnur ekki mikið fyrir heimsfaraldrinum því nammi selst sem fyrr, líkt og fram kom í ársreikn- ingum. Góa hefur enda ekki nýtt pláguúrræði stjórnvalda til fyrir- tækja, en Helgi í Góu hefur birt aug- lýsingar í blöðunum þar sem stungið er upp á tímabundinni lækkun mót- framlags atvinnurekenda í lífeyris- sjóði til þess að verja störf.    Bæjarfulltrúar á Akureyri gáfust upp á lýðræðinu og ákváðu að starfa allir saman, án minnihluta og meiri- hluta, svo aðhald með störfum bæj- arstjórnar kemur í hlut ótínds al- múgans. Yfirvofandi tekjufalli vegna plágunnar var kennt um, þótt meiri- hluti Samfylkingar, Framsóknar og L-listans hafi raunar verið búinn að koma fjárhagnum í steik löngu áður en veiran kom til. Fjárhagsstaða fjögurra stærstu sveitarfélaga hefur versnað til muna á árinu, skuldirnar aukist, útgjöldin sömuleiðis og tekjufallið mikið, sem þau gráta mikið, en tala minna um útsvarsgreiðendur. Hið sigursæla landslið kvenna í fót- bolta náði 1-1-jafntefli við Svía á Laugardalsvelli, en þeir hrepptu bronsið í síðustu heimsmeistara- keppni. 320 nemendur voru í sóttkví á þriðjudag, en deginum áður greind- ust 38 ný smit. Þrír þingmenn voru þá einnig í sóttkví. Kórónuveiran hefur einnig sín áhrif í háloftunum, en flugumferð um flug- stjórnarsvæði Íslands er innan við þriðjungur af því sem hún var á sama tíma í fyrra. Drjúgur hluti flugs yfir Atlantshaf fer fram um svæðið. Verkalýðsrekendur komu saman á fund á þriðjudag til þess að ráða ráð- um sínum um hvort forsendur lífs- kjarasamninganna hefðu staðist, þrátt fyrir efnahagsleg áhrif heims- faraldursins. Þeir héldu það nú og útilokuðu að hróflað yrði við nýlegum launahækkunum. Vinnuveitendur hugleiddu hins vegar að segja samn- ingunum upp, forsendur þeirra hefðu verið aukinn hagvöxtur en ekki kröpp niðursveifla, sem ógnaði bæði störfum og fyrirtækjum.    Segja má að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokks- ins, hafi opnað kosningabaráttuna fyrir alþingiskosningarnar að ári í viðtali við Morgunblaðið. Þar kynnti hann hugmyndir um Leiðréttinguna 2.0, en hann vill að skuldir ferðaþjón- ustunnar verði leiðréttar, eigi hún að rétta úr kútnum eftir að veiran er gengin hjá. Umferðargreining Þórarins Hjalta- sonar umferðarverkfræðings bendir til þess að borgarlínan breyti sára- litlu um umferð um Ártúnsbrekku eftir að nýtt hverfi rís við Keldur. Hins vegar myndi Sundabraut breyta þar töluverðu um. Ástæðan fyrir frestun borgaryfirvalda á efnd- um um Keldnahverfið getur því tæp- lega verið biðin eftir borgarlínu, eins og sagt var. Uppbygging nýs íbúa- hverfis þar er áskilin í lífskjarasamn- ingunum. Fjármálaeftirlit Seðlabankans fylgd- ist grannt með hlutafjárútboði Ice- landair í fyrri viku. Dr. Ásgeir Jóns- son seðlabankastjóri sagði að þar væri ákvarðanataka í stjórnum líf- eyrissjóða um einstakar fjárfest- ingar til sérstakrar skoðunar. Kennsl voru borin á líkið, sem fannst í Breiðholti í liðnum mánuði. Mað- urinn hét Örn Ingólfsson og var 83 ára gamall, en ekki er talið að lát hans hafi borið að með saknæmum hætti. Brotthvarf Rósu Bjarkar Brynjólfs- dóttur úr þingflokki Vinstrihreyf- ingarinnar – græns framboðs hefur ekki haft teljandi áhrif á stjórnmálin, en mun hins vegar hafa áhrif á nefndasæti stjórnarandstöðunnar í fastanefndum þingsins. Allir þing- menn þurfa að sitja í a.m.k. einni nefnd og mun sæti Rósu Bjarkar vera á kostnað stjórnarandstöð- unnar.    Aðilar vinnumarkaðarins verða boð- aðir á fund Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra til þess að fara yfir stöðuna, en ASÍ og SA eru á önd- verðum meiði um hvort lífskjara- samningarnir haldi eða séu brostnir í ljósi efnahagslegra boðafalla kór- ónuveirunnar. Samherji sendi frá sér tilkynningu um að samanburður á samningum um aflaheimildir í Namibíu leiddi í ljós að útgerðin hefði greitt mark- aðsverð fyrir kvóta, sem félagið leigði þar syðra. Björgólfur Jó- hannsson forstjóri segir það sýna fram á að ásakanir um mútur og arð- rán, sem fram hafi komið í sjón- varpsþættinum Kveik á Ríkisútvarp- inu og Stundinni, eigi ekki við nein rök að styðjast. Michele Roosevelt Edwards, Mich- ele Ballarin eða hvað hún kallar sig þessa vikuna hyggst kanna réttar- stöðu sína eftir að Icelandair hafnaði sjö milljarða króna tilboði hennar í hlutafjárútboðinu í liðinni viku. Bakarí Jóa Fel voru úrskurðuð gjald- þrota. Egypska fjölskyldan, sem fór í felur frekar en sæta brottvísun úr landi, fékk óvænt dvalarleyfi á grundvelli mannréttindasjónarmiða. Fundvísi Magnúsar D. Norðdahls, lögmanns fjölskyldunnar, vakti almenna að- dáun. Hann hafði sagst ekkert vita um hvar hún væri niðurkomin, en fann hana svo eins og skot til að segja góðu fréttirnar. Brim og boðaföll Hnattræn hlýnun lét ekki að sér hæða frekar en endranær í köldum og hvítfyssandi næðingi við Eiðsgranda. Ljósmynd/Regína Ásvaldsdóttir 20.9.-25.9. Andrés Magnússon andres@mbl.is arionbanki.is Þægilegri bankaþjónusta Arion banka Þú getur framkvæmt flestalla bankaþjónustu í Arion appinu. Á arionbanki.is/appkennsla finnur þú kennslumyndbönd sem sýna helstu aðgerðir. Léttu þér lífið með Arion appinu. Einfaldari og þægilegri bankaþjónusta. Lærðu að nota Arion appið

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.