Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.09.2020, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.9. 2020
LÍFSSTÍLL
Við vorum að opna tíunda júlí, envið mamma höfðum oft veriðað grínast með að við vildum
opna veitingastað,“ segir Halla Sif
Guðmundsdóttir, einn eigenda Mat-
hússins milli fjöru & fjalla á Grenivík.
„Ég fór að hugsa þetta fyrir alvöru
í janúar, en ég er sjúkraþjálfari og
starfa við það á Akureyri og er það
mín aðalvinna. En svo þurfti að loka
stofunni í vor í covid og þá bara dreif
ég í þessu,“ segir Halla og hlær.
„Hér var áður veitingastaður en við
fórum í miklar útlitsbreytingar.
Markmiðið með staðnum er að búa til
stemningu sem þú ert tilbúin til að
keyra fyrir. Hér verða líka flottustu
jólahlaðborð á Eyjafjarðarsvæðinu,“
segir hún en aðrir eigendur eru
Ágúst Logi Guðmundsson, bróðir
Höllu, og Einar Rafn Stefánsson.
Beint frá býli
„Við stofnuðum heimavinnslufyrirtæki
í Fagrabæ fyrir þremur árum síðan.
ar er Seltjarnarnes og Garðabær en
fyrirtækið heitir Milli fjöru og fjalla og
því heitir staðurinn Mathús milli fjöru
og fjalla,“ segir hún.
„Mathúsið byggir á heimavinnsl-
unni okkar í Fagrabæ. Matseðillinn
okkar er einfaldur; kjöt beint úr
kjötvinnslunni okkar í Fagrabæ,“
segir hún og segir þau leggja mikla
áherslu á að versla úr héraði annað
hráefni sem þau framleiða ekki sjálf,
eins og fisk, egg og kartöflur.
Fjölskyldan saman í rekstri
Mathúsið leggur ríka áherslu á að ná
til allra aldurshópa að sögn Höllu og
segir hún þau strax vera komin með
góðan kúnnahóp. Vill hún gjarnan að
veitingastaðurinn verði einskonar
miðstöð menningar og tónlistarlífs í
Grýtubakkahreppi.
„Íslendingar hafa verið duglegir að
koma hingað í sumar og kvöldin hafa
verið tví- og þrísetin. Meira að segja
á mánudögum! Uppskriftir koma
mikið úr vinnslunni okkar, en í eld-
húsinu er Vopnfirðingurinn Alfred
Pétur sem er lærður matreiðslu-
maður. Og bróðir minn, Ágúst Logi,
vinnur mikið með honum, en hann er
kjötiðnaðarmaður. Svo skipti ég mér
mikið af,“ segir Halla og brosir.
„Það er öll fjölskyldan í þessu. Vet-
urinn leggst bara vel í okkur og nú er
að koma sláturtíð þannig það er brjál-
að að gera fram að áramótum. Við er-
um líka með veisluþjónustu og erum
með í bígerð að bjóða upp á sætaferð-
ir frá Akureyri. Sem veitingaaðili er
auðvitað erfitt að vera með uppá-
komur vegna kórónuveirunnar, en ég
er með alls konar hugmyndir að
skemmtilegum þemakvöldum. Það er
allt hægt; við erum með frábæran
kokk og geggjað hráefni.“
Á Grenivík má finna
nýjan veitingastað
Fagrabæjarfjölskyld-
unnar sem ber nafnið
Mathús milli fjöru &
fjalla. Þar er boðið upp
á mat beint úr héraði;
kjöt, fisk og grænmeti.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Morgunblaðið/Ásdís
Ferskur matur úr héraði
Súkklaðidöðlukaka
með rjóma er góð
með kaffinu.
Á Mathúsinu er lambið eld-
að á ýmsan máta. Hér er
sótt í austurlensk áhrif.
Lambakjöt frá Fagra-
bæ klikkar ekki með
góðu meðlæti.
Halla Sif Guðmundsdóttir lét verða að
því að opna veitingastað á Grenivík. Þar
er borinn fram matur frá fjölskyldubýl-
inu Fagrabæ en þar er sauðfjárbú.
Grafið ærkjöt
er lostæti í
forrétt.
Við erum með sauðfjárbú og erum að
framleiða okkar vörur þar og seljum
tilbúnar pakkningar sem þú setur
beint á pönnuna. Það sem er hér á
matseðlinum er allt úr okkar vinnslu.
Þetta snýst um að vera með ferskan
mat úr héraði. Stærsti markaður okk-
DÖÐLUKAKA
1 dl sykur
150 gr smjör við stofu-
hita
3 egg
100 g hveiti eða spelt-
hveiti
200 g döðlur
1 tsk. matarsódi
½ tsk. salt
½ tsk. vanilla
2 tsk. lyftiduft
(ef vill rabarbari)
Setjið döðlurnar í pott
með smá vatni og hitið
upp að suðu. Látið
standa og stappið svo
döðlurnar til með
gaffli. Blandið matar-
sódanum saman við
maukið. Þeytið saman
smjör og sykur þangað
til létt og ljóst, bætið
eggjunum koll af kolli í
meðan verið er að
þeyta. Setjið þurrefnin
rólega saman við og að
lokum döðlumaukinu.
Smyrjið og setjið í
form. Mjög gott er að
setja nýbrytjaðan
rabarbara ofan á kök-
una líka, sem búið er
að velta upp úr kanel.
Bakið við 180°C.
Stingið prjóni í til
að vita hvort hún er
tilbúin, má klessast
smá á prjóninn.
Þegar kakan hefur
kólnað þá set ég kara-
mellukrem yfir.
KARAMELLUKREM
110 g smjör
1,5 dl rjómi
100 g púðursykur
Hitið allt í potti þar til
karamellan er farin að
sjóða, hrærið þá var-
lega í pottinum þar til
þykknar.
Berið fram með ís
eða rjóma.
Bankastræti 12 | Sími 551 4007 | skartgripirogur.is
Demantar
í úrvali fyrir ástina þína