Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.09.2020, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.9. 2020
LÍFSSTÍLL
Við sem eldri erum gleymum ekki þeirristund þegar hin 22 ára gamla ValaFlosadóttir afrekaði næstum því hið
ómögulega; að vinna til verðlauna á sjálfum
Ólympíuleikunum, fyrst og ein íslenskra
kvenna. Í grein í Morgunblaðinu 26. septem-
ber, árið 2000, segist Vala að vonum vera
ánægð.
„Svo sannarlega, hvern hefur ekki dreymt
um að komast á verðlaunapall á Ólympíuleik-
um? Þetta hefur verið stórkostlegt kvöld sem
líður mér aldrei úr minni. Þessi stund var og
verður alveg sérstök í huga mér alla ævi.“
Frelsið á Íslandi
En hvar er Vala nú, tveimur áratugum síðar?
Blaðamaður hafði uppi á henni símleiðis, en
hún býr í Lundi í Svíþjóð ásamt manni sínum
Magnúsi Hallgrímssyni og dætrunum Emmu
og Klöru. Vala hefur búið meirihluta ævinnar í
Svíþjóð, en þangað flutti hún með foreldrum
sínum og yngri systur á unglingsaldri.
Vala hefur í nógu að snúast en gaf sér tíma
til spjalls til að segja frá því hvað hún sé að
gera í dag og rifja upp daginn eftirminnilega;
daginn sem hún beit í bronsið og brosti hring-
inn.
„Ég var að skutlast með börnin á körfu-
boltaæfingar og er sest út í bíl. Nú hef ég smá
stund aflögu til að spjalla,“ segir Vala á óað-
finnalegri íslensku.
Vala, sem er fædd í Reykjavík og ættuð frá
Egilsstöðum og Vestfjörðum, bjó sex ár á
Bíldudal áður en hún flutti til Svíþjóðar og
segist eiga góðar minningar úr æskunni.
„Þetta var litla Ísland og litla fiskiþorpið þar
sem allir þekkja alla. Þarna var svo mikið
frelsi sem börnin mín hafa ekki á sama hátt í
dag. Við gátum hlaupið upp á fjöll og þrætt
fjörur á milli fjarða. Ég æfði mikið íþróttir sem
barn og fylgdi árstíðunum. Á sumrin voru það
frjálsar og fótbolti og á veturna skíði og skaut-
ar. Ég var í öllu. Ég var heppin að ég virtist
vera tiltæk í hvaða íþrótt sem er.“
Alltaf Íslendingur í hjarta mínu
„Ég flutti út þegar ég var fjórtán ára, en ég er
alltaf Íslendingur í hjarta mínu. Auðvitað hef
ég aðlagast sænsku samfélagi en ég er gift ís-
lenskum manni og það er töluð íslenska á
heimilinu,“ segir Vala og segist hafa kynnst
manni sínum ung.
„Ég fann hann í Svíþjóð í gegnum íþróttirnar
en hann flutti út aðeins á eftir mér. Hann var
einmitt líka á sömu Ólympíuleikum, árið 2000, og
keppti í kringlukasti. Við eigum þessa sameigin-
legu reynslu, að hafa keppt á Ólympíuleikunum
árið 2000,“ segir Vala og segir þau hafa verið far-
in að rugla saman reytum um það leyti.
Kemurðu oft til Íslands?
„Við reynum að koma eins oft og mögulegt
er, en það hefur núna frestast um frekar langt
bil vegna covid. En á óbreyttum tímum er fjöl-
skyldan heima líka mjög dugleg að koma til
okkar.“
Ertu enn íslenskur ríkisborgari?
„Já, ég er reyndar með tvöfalt ríkisfang og
við öll. Ástæðan er að okkur finnst mikilvægt
að geta verið virkir og fullgildir þáttakendur í
því samfélagi sem við búum í hérna í Svíþjóð,
eins og að geta tekið þátt í þingkosningum.“
Næstum fimm háskólagráður
Hvað gerir þú í dag?
„Ég vinn sem bókaútgefandi og sé um útgáfu
og þróun á námsefni fyrir háskólanám á heilsu-
og heilbrigðissviði. Ég er sjúkraþjálfari að mennt
og tók svo master í „sport medicine“ svo ég sletti
nú ensku. Ég er svo með doktorsgráðu í „medical
sciences“, sem gæti heitið heilbrigðisvísindi. Ég
er næstum með fimm háskólagráður,“ segir Vala
og hlær og vitnar þar í Georg Bjarnfreðarson,
sem Jón Gnarr lék svo eftirminnilega um árið.
„Ég er rosalega þakklát fyrir að hafa fengið
að njóta þess að hafa átt tvo ferla. Fyrst
íþróttalífið og þann heim og svo fékk ég tæki-
færi til að mennta mig á öðru sviði eftir það.
Ég hef fengið að njóta þess besta úr báðum
þessum heimum.“
„Þetta var
draumur
sem
rættist“
Þann 25. september síðastliðinn voru
tuttugu ár liðin frá einu merkasta afreki
íslenskrar íþróttasögu. Þann dag stóð Vala
Flosadóttir á verðlaunapalli í Sydney,
Ástralíu, með bronsverðlaun um hálsinn
fyrir stangarstökk. Og þjóðin fagnaði.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Vala og eiginmaður hennar,
Magnús Hallgrímsson, búa í
Lundi ásamt dætrunum Klöru,
sjö ára og Emmu, níu ára.
Morgunblaðið/Sverrir
Vala brosti hringinn þegar
hún stóð á pallinum með
bronsið um hálsinn.
á heimasíðu Hreyfils:
hreyfill.is
eða í App Store
og Google Play
SÆKTU APPIÐ
Sæktu appið frítt á AppStore
eða Google Play
Hreyfils appið
Pantaðu leigubíl á einfaldan
og þægilegan hátt
Þú pantar bíl1
3 og færð SMS skilaboðað bíllinn sé kominn.
2 fylgist með bílnum í appinu