Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.09.2020, Qupperneq 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.09.2020, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.9. 2020 LÍFSSTÍLL Dýrmæt reynsla Vala segist aldrei hafa tekið að sér að þjálfa, en hefur nú gaman af því að fylgjast með dætr- unum Emmu og Klöru, níu og sjö ára, í íþrótt- um. Þær hafa valið sér körfubolta. Hvað finnst dætrunum um að móðir þeirra hafi unnið Ólympíubrons? „Ég held þeim finnist það ekkert sérstak- lega merkilegt,“ segir hún og hlær. „Þær eru mest hissa á þessari stuttu Völu Flosa-klippingu. En að sjálfsögðu eru þær og öll fjölskyldan mín mjög stolt af mínum íþróttaafrekum.“ Núna eru liðin tuttugu ár frá því að þú stóðst á palli í Sydney. Hvað stendur upp úr þegar þú hugsar til baka? „Þetta var auðvitað ótrúlega dýrmæt reynsla, að hafa fengið að taka þátt í Ólympíu- leikum. Ég man ég horfði á Ólympíuleika sem lítil stelpa. Þetta var draumur sem rættist; að fá að standa þar á palli. Það var hreint ótrúlegt og það tók mig smá tíma að meðtaka að þetta væri að gerast.“ Ætlar þú að halda upp á tímamótin? „Ég mun að sjálfsögðu minnast þess vel og þá líka hversu mikinn stuðning ég fann allan minn feril frá Íslendingum, þótt ég byggi alltaf hér í Svíþjóð. Ég á svo hlýjar og góðar minn- ingar um það. Þegar við fórum til Sydney var svo mikil samheldni í hópnum og þetta var svo skemmtilegur tími. Það er svo dýrmætt og ég vona að börnin mín og öll börn fái að upplifa að fylgja sínum draumum, hverjir sem þeir eru. Og hafa gaman af. Það er svo mikilvægt að fá tækifæri til að gera það sem manni þykir skemmtilegt og finna stuðning; ekki pressu, heldur stuðning.“ Vala, þú getur þetta! Þegar þú fórst til Sydney, bjóstu við að vinna til verðlauna? „Nei, ég get ekki sagt það. Það hafði verið mjög strembið tímabil á undan, um sumarið. Þetta var seint á tímabilinu en það gekk ótrú- lega vel á æfingunum í Ástralíu fram að leik- unum. Ég var með gott sjálfstraust og var dugleg að peppa sjálfa mig. Ég hafði lesið ein- hverja vísindagrein um að ef maður brosti við erfiða tilhugsun, þá gæti maður talið heilanum trú um að allt væri í lagi, þetta væri jákvætt. Þannig ég heilaþvoði sjálfa mig með því að brosa endalaust,“ segir hún og hlær. Ég las í gömlum blaðagreinum að þú hafi þulið upp: Vala, þú getur þetta! Er það rétt? „Já, ég talaði mikið við sjálfa mig fyrir hvert stökk allan minn keppnisferil. Ég sagði þá: „þú getur þetta, þú getur þetta!“ Hefurðu notað þetta í öðru sem þú hefur gert í lífinu? „Já, þetta hefur síðan þá alltaf verið hluti af sjálfseflingu minni og hefur nýst mér vel í námi, kennslu og starfi. Líka bara í daglegu lífi. Ég segi þetta samt kannski ekki jafn upphátt leng- ur, heldur meira í hljóði með sjálfri mér.“ Hvenær fórstu síðast í stangarstökk? „Já, það er góð spurning. Ég get hreinlega ekki svarað því, það er svo langt síðan. Stang- arstökk er erfið grein að grípa í ef maður æfir hana ekki að staðaldri. Í dag æfi ég einungis mér til heilsubótar og reyni að leggja mesta áherslu á þol, styrk- og liðleika. Ég finn strax fyrir því ef ég hreyfi mig of lítið og þarf þess vegna að halda mér vel við. Ég er núna komin yfir fertugt og var einmitt að fá mér lesgler- augu í gær,“ segir Vala og hlær. Vala Flosadóttir sveipaði um sig íslenska fánanum eftir að hafa unnið brons- verðlaun á Ólympíuleikunum í Sydney, fyrst og ein íslenskra kvenna. Morgunblaðið/Sverrir Frjálsíþróttakonan Vala Flosa- dóttir var þriðji Íslendingurinn til að vinna til verðlauna á Ólympíuleikum. Á myndinnni má sjá verðlaunastökkið, en Vala stökk yfir 4,50 metra. ’Ég hafði lesið einhverjavísindagrein um að ef maðurbrosti við erfiða tilhugsun, þá gætimaður talið heilanum trú um að allt væri í lagi, þetta væri jákvætt. Þannig ég heilaþvoði sjálfa mig með því að brosa endalaust. Morgunblaðið/Sverrir „Í raun og veru áttaði ég mig ekki alveg á því hvað mér hafði tekist fyrr en ég stóð á verðlaunapallinum,“ sagði Vala í viðtali við Ívar Benediktsson, blaða- mann á Morgunblaðinu, sem flutti frétt- ir frá Sydney haustið 2000. „Þegar keppninni lauk og ég var stödd úti á vellinum gerði ég mér ekki alveg grein fyrir því hvað hafði gerst. Ég þurfti að líta hvað eftir annað á töfluna með úrslitunum til þess að trúa því sem hafði gerst. Einnig spurði ég Danann, Marie Bagger Ramsussen, hvort það væri rétt eða hvort ég væri að sjá ofsjónir. Þetta var hreinlega yndislegt og kvöldið í heild var stórkostlegt. Ég naut þess svo inni- lega að vera úti á vellinum, innan um þennan gríðarlega fjölda áhorfenda, sjá ólympíueldinn loga fyrir ofan okkur, og vera í þeim tilgangi að keppa og skemmta mér um leið. Ég á aldrei eftir að gleyma þessari stund á vellinum, þetta er það stórkostlegasta sem ég hef upplifað til þessa á ævinni,“ sagði Vala. Ívar spyr Völu: Hvað tekur við á morgun? „Hvíld. Ég ætla aðeins að reyna að slappa af í kinnunum, ætli ég verði ekki með harðsperrur í kinnunum þegar ég vakna. Annars held ég að það verði bara hreinlega yndislegt að vakna og taka móti nýjum degi.“ Rættist draumur þinn í kvöld? „Svo sannarlega, hvern hefur ekki dreymt um að komast á verðlaunapall á Ólympíuleikum? Þetta hefur verið stór- kostlegt kvöld sem líður mér aldrei úr minni. Þessi stund var og verður alveg sérstök í huga mér alla ævi.“ Er ég að sjá ofsjónir? Vala grætur af gleði við öxl þjálfara síns, Morgunblaðið/Sverrir Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com, kajaorganic@gmail.com Sölustaðir: Hagkaup, Fjarðarkaup, Melabúðin, Nettó, Heilsuhúsin, Vegan búðin, Fiskkompaní, Frú Lauga, Brauðhúsið og Matarbúr Kaju á Akranesi með súkkulaðibragði

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.