Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.09.2020, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.9. 2020
LESBÓK
STAÐBUNDIN Patti Smith þurfti að slá á frest tónleika-
ferð sinni um heiminn út af kórónuveirunni og minna varð
úr upplestrum úr bók hennar, Year of the Monkey, en hún
hefði viljað. Hún kveðst í viðtali við Sunday Times sakna
ferðalaganna og vildi helst vera stöðugt á faraldsfæti.
Hún er 73 ára og býr á Manhattan. Hún segir að það sé
sér erfitt að vera bundin við einn og sama staðinn.
Hún hafi aldrei ætlað að verða tónlistamaður, en ferill-
inn hafi gert sér kleift að kynnast heiminum. Rokkferillinn
hafi hafist fyrir mistök og hún hafi ekki faglegt vald á tón-
listinni: „Ég get samið lag upp úr nokkrum hljómum, en ég
er alls ekki tónlistarmaður – ég hef enga menntun, enga
hæfileika.“ Henni hefur þó vegnað ágætlega og eru eignir
hennar metnar á tvo milljarða króna.
Saknar ferðalaga
Patti Smith þolir illa
að geta ekki ferðast.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
BEIRÚT Tónleikar voru haldnir á sunnudag
fyrir viku til að minnast fórnarlambanna í
sprengingunni við höfnina í Beirút 4. ágúst.
190 manns létu lífið í sprengingunni, þús-
undir slösuðust og fjöldi bygginga um alla
borg skemmdist eða gereyðilagðst.
Tónleikarnir fóru fram við höllina Sur-
sock, sem skemmdist í sprengingunni. Engir
áhorfendur voru á staðnum, en tónleikunum
var sjónvarpað og streymt á netinu. Á staðn-
um voru myndir af fórnarlömbum sprenging-
arinnar og loguðu kerti fyrir neðan þær.
Meðal flytjenda var söngkonan Fadia Tomb
El-Hage.
Minningartónleikar í Beirút
Fadia Tomb El-Hage syngur á tónleikunum.
AFP
Anthony Hopkins.
Lofa Hopkins
KVIKMYND Anthony Hopkins þyk-
ir sýna stórleik í myndinni Faðirinn
(The Father) og er talið líklegt að
hann verði tilnefndur til Óskars-
verðlauna fyrir frammistöðu sína.
Yrði það hans sjötta tilnefning.
Franski rithöfundurinn Florian
Zeller gerði myndina eftir eigin leik-
riti. Hann breytti nafni og aldri aðal-
persónunnar til að laga hlutverkið
að leikaranum. „Ég skrifaði hand-
ritið fyrir hann,“ sagði Zeller við
AFP og hrósaði happi að hafa fengið
Hopkins til að leika í sinni fyrstu
mynd.
Faðirinn er blanda af spennu- og
hryllingsmynd og fjallar um mann
sem er að missa minnið og tök á
veruleikanum.
Ný plata með tónlistarmann-inum Bruce Springsteen ervæntanleg 23. október. Á
plötunni tekur hann aftur saman við
hljómsveitina E Street Band, sem
hefur fylgt honum frá 1972. Greint
var frá útkomu plötunnar, sem á að
heita Letter To You, og til að gefa
forsmekkinn var titillag plötunnar
gefið út um leið.
Í fréttum hefur komið fram að
platan sé dæmigerð fyrir samstarf
Springsteen og E Street band þar
sem gítarar og trommur séu í aðal-
hlutverki. Letter To You er 20. plata
Springsteens og fylgir í kjölfar sóló-
plötu hans Western Stars, sem kom
út í fyrra.
„Ég elska tilfinningalega hlið
Letter To You,“ sagði Springsteen í
yfirlýsingu. „Ég elska líka að heyra
E Street Band spila eins og á sviði í
stúdíóinu með hætti sem við höfum
aldrei gert áður án þess að bæta
neinu við eftirá.“
Tekin upp á fjórum dögum
Sagði hann að þeir hefðu tekið frá
fimm daga til að taka upp plötuna í
hljóðverinu á heimili hans í New
Jersey. Upptökurnar hefðu hins
vegar aðeins tekið fjóra daga. Sá
fimmti hefði farið í að hlusta á þær.
Í viðtali sem birtist við Spring-
steen í tímaritinu Rolling Stone
skrifar blaðamaðurinn að platan
hljómi eins og hún sé tekin upp á
tónleikum þannig að hann finni til
„sektarkenndar við að hlusta á hana,
líkt og maður sé að rjúfa sóttkví“.
Á plötunni eru níu lög sem
Springsteen samdi fyrir skömmu.
Þar eru einnig nýjar útgáfur af
þremur lögum sem hann samdi á átt-
unda áratugnum en voru aldrei gefin
út. Á Letter To You kveður við ann-
an tón en á plötunni Western Stars.
Losnaði um stífluna
Springsteen sagði í fyrra í viðtali við
leikstjórann Martin Scorsese að
hann byggist við að snúa aftur til rót-
anna og upphafs ferils síns á næstu
plötu. Kom þar fram að hann hefði
átt í vandræðum með að semja fyrir
E Street Band, en skyndilega hefði
losnað um stífluna.
„Ég skrifaði efni á næstum heila
Leitar í
upprunann
Allt frá því að hin kraftmikla plata Born To Run
kom út fyrir rúmum fjórum áratugum hefur
Bruce Springsteen haldið athygli heimsins.
Nú er von á nýrri plötu í anda tónlistarinnar
sem kom honum á heimskortið.
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Clarence Clemons heit-
inn og Bruce Spring-
steen í ham á sviðinu.
AFP
HLJÓÐMOGGI
BÝÐUR GÓÐAN DAG