Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.09.2020, Page 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.09.2020, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.9. 2020 SMARTLANDS BLAÐIÐ Fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 2. október Í Smartlandsblaðinu verður fjallað um tísku, förðun, snyrtingu, heilsu, fatnað, umhirðu húðarinnar og fleira. SÉRBLAÐ PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til kl. 16 mánudagsins 28. september NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is –– Meira fyrir lesendur 08.00 Strumparnir 08.20 Blíða og Blær 08.45 Dóra og vinir 09.05 Mæja býfluga 09.20 Adda klóka 09.45 Zigby 09.55 Mia og ég 10.20 Lína langsokkur 10.45 Latibær 11.05 Lukku láki 11.30 Ævintýri Tinna 12.00 Nágrannar 13.40 Impractical Jokers 14.05 Supernanny 14.50 Kviss 15.35 Quiz 16.35 60 Minutes 17.40 Víglínan 18.26 Veður 18.30 Fréttir Stöðvar 2 18.40 Sportpakkinn 18.50 Ísland í dag 19.05 Eurogarðurinn 20.05 Who Wants to Be a Millionaire 20.55 April Jones: The Int- errogation Tapes 22.05 The Salisbury Poison- ings 22.55 Wentworth 23.45 Shameless ÚTVARP OG SJÓNVARP Sjónvarp Símans RÚV Rás 1 92,4  93,5 Omega N4 Stöð 2 Hringbraut 19:00 Þegar María Björk hittir fólk sem hefur sögu að segja. 19:30 Eitt og annað af hand- verki. Skúli Bragi Geir- dal Endurt. allan sólarhr. 17.00 Times Square Church 18.00 Tónlist 18.30 Ísrael í dag 19.30 Jesús Kristur er svarið 20.00 Blönduð dagskrá 21.00 Blönduð dagskrá 22.30 Gegnumbrot 23.30 Tónlist 20.00 Mannamál – sígildur þáttur (e) 20.30 Suðurnesja-magasín (e) 21.00 Alive í Hljómahöll 22.00 Mannamál (e) 22.30 Suðurnesja magasín (e) 23.00 Alive í Hljómahöll 11.50 Dr. Phil 15.35 Carol’s Second Act 16.00 90210 16.50 The King of Queens 17.10 Everybody Loves Ray- mond 17.35 A Million Little Things 18.20 This Is Us 19.05 Með Loga 20.00 The Block 21.20 The Act 22.15 Billions 23.10 Love Island 01.00 Blue Bloods 01.45 Seal Team 02.30 Condor 04.00 Síminn + Spotify 06.55 Morgunbæn 07.00 Fréttir. 07.03 Hringsól. 08.00 Morgunfréttir. 08.05 Á tónsviðinu. 09.00 Fréttir. 09.03 Svona er þetta. 10.00 Fréttir. 10.05 Veðurfregnir. 10.15 Bók vikunnar. 11.00 Guðsþjónusta í Vídal- ínskirkju. 12.00 Hádegisútvarp. 12.20 Hádegisfréttir. 12.40 Veðurfregnir. 13.00 Sögur af landi. 14.00 Víðsjá. 15.00 Glans. 16.00 Síðdegisfréttir. 16.05 Jazzhátíð Reykjavíkur 30 ára. 17.25 Orð af orði. 18.00 Kvöldfréttir. 18.10 Píanógoðsagnir. 18.50 Veðurfregnir. 18.53 Dánarfregnir. 19.00 Óskastundin. 19.40 Orð um bækur. 20.35 Gestaboð. 21.30 Úr gullkistunni. 22.00 Fréttir. 22.05 Veðurfregnir. 22.10 Á reki með KK. 23.10 Frjálsar hendur. 24.00 Fréttir. 00.05 Næturútvarp Rásar 1. 07.15 KrakkaRÚV 07.16 Tulipop 07.19 Kalli og Lóa 07.30 Klingjur 07.41 Lalli 07.48 Friðþjófur forvitni 08.10 Nellý og Nóra 08.17 Robbi og Skrímsli 08.39 Hæ Sámur 08.46 Unnar og vinur 09.09 Flugskólinn 09.31 Múmínálfarnir 09.53 Millý spyr 10.00 Maxímús bjargar ball- ettinum 11.00 Silfrið 12.10 Örlagasinfónía Beetho- vens 13.15 Gamalt verður nýtt 13.25 Fólkið mitt og fleiri dýr 14.25 Martin Clunes: Eyjar Ástralíu 15.15 Ella kannar Suður- Ítalíu 15.45 Poirot – Ráðgátan um bláu lestina 17.20 Menningin – samantekt 17.50 Táknmálsfréttir 18.00 KrakkaRÚV 18.01 Stundin okkar 18.25 99% norsk 19.00 Fréttir 19.25 Íþróttir 19.35 Veður 19.45 Landinn 20.20 Ráðherrann 21.15 Snilligáfa Einsteins 22.05 Evrópskir bíódagar: Borgman 22.10 Borgman 24.00 Dagskrárlok 12 til 16 Þór Bæring Besta blandan af tónlist á sunnudegi og létt spjall með Þór Bæring. Hækkaðu í gleðinni með K100. 16 til 18 Tónlistinn Topp40 með Dj Dóru Júlíu. Einn vinsælasti plötusnúður landsins kynnir 40 vinsælustu lög landsins á hverjum einasta sunnudegi. Tónlistinn er eini opinberi vinsældalisti landsins. 18 til 00 K100 tónlist Besta tónlistin dunar í allt kvöld. Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir var að gefa út sitt fyrsta lag af væntanlegri plötu. Lagið heitir „Þú munt sjá á eftir mér“ og gaf Þorgerður lagið út á sama tíma og tónlistarmyndbandið. Bróðir hennar, Álfgrímur Að- alsteinsson, tók myndbandið upp en í því má sjá Þor- gerði skutlast frá gamla vesturbænum niður í miðbæ Reykjavíkur á rafmagnshlaupahjóli í einni töku. Mynd- bandið má sjá á K100.is Myndbandið tekið í einni töku Myndlistarmaðurinn Banksy tapaði fyrr í mánuðinum höfundarréttar- máli, sem hann höfðaði vegna notk- unar á mynd eftir sjálfan sig. Ein ástæðan sem hugverkastofnun Evr- ópusambandsins (EUIPO) gaf upp fyrir niðurstöðunni var að hann hefði sjálfur gert lítið úr höfundarréttinum og að auki færi hann huldu höfði. Stofnunin fer með einka- og höfund- arréttarmál og hefur aðsetur á Spáni. „Höfundarréttur er fyrir tapara,“ skrifaði Banksy í bókinni Wall and Piece, sem kom út árið 2005. Þetta viðhorf var ekki meira afgerandi en svo að hann hefur látið skrá nokkur verka sinna sem vörumerki. Þar á meðal er verkið „Flower Thrower“ („Blómavarparinn“) þar sem sjá má grímuklæddan mann í þann mund að kasta blómvendi. Banksy er með umboðsskrifstofu á sínum snærum. Hún nefnist Pest Control Office og vottar meðal ann- ars uppruna verka hans. Fyrir sex árum skráði hún réttinn á myndinni af „Blómavarparanum“ hjá hug- verkastofu Evrópusambandsins og fékk hann viðurkenndan. Í kjölfarið fóru talsmenn Banksys fram á það við fyrirtækið Full Colour Black að það hætti að nota myndir Banksys á póstkortum, sem það prentar og dreifir. Til að verjast þessari notkun á myndum sínum opnaði Banksy sína eigin verslun í hverfinu Croydon í London. Honum hafði verið ráðlagt að bjóða upp á ýmsar vörur með verkum sínum og bent á að það væri besta leiðin til að verja nafn sitt, að því er fram kom í viðtali við hann við Breska ríkisútvarpið, BBC. Þar sagði hann einnig að afstaða sín í höfund- arréttarmálum hefði ekki breyst í grundvallaratriðum þótt hann reyndi að verja listrænan rétt sinn í þessu máli. Hugverkastofa Evrópusambands- ins komst að þeirri niðurstöðu 17. september að rétturinn væri ekki Banksys. Í skýringum stofnunar- innar var það rökstutt með því að Banksy færi dult með hver hann væri og hefði þess utan ítrekað lýst yfir því að hann væri andvígur höfund- arrétti. Árum saman hafi hann látið notk- un annarra á myndum sínum óátalda og sjálfur notað eignir annarra manna án leyfis, til dæmis þegar hann hefði málað á hús eða auglýs- ingaskilti, sagði enn fremur. „Vandinn við rétt Banksys til verksins „Blómavarparinn“ er skýr,“ sagði í niðurstöðunni. „Til að verja réttinn samkvæmt höfundarréttar- lögum þyrfti hann að afsala sér nafn- leysinu, sem myndi grafa undan per- sónu hans. Ekki er hægt að bera kennsl á hann sem ótvíræðan eig- anda slíkra verka því að það er falið hver hann er.“ Myndin af blómavarparanum hef- ur einnig verið nefnd „Love Is in the Air“ (eða „Ástin liggur í loftinu“) og var máluð á vegg í Jerúsalem 2005. Hún sýnir mann í stellingu sem gefur til kynna að hann ætli að varpa sprengju, en í hendi hans er blóm- vöndur. Maðurinn er í svart/hvítu, en blómvöndurinn í lit. Banksy er þekktur friðarsinni og því er nær- tækt að ætla að myndin eigi að gefa til kynna að stilla megi til friðar hversu hatrömm og óleysanleg deila megi virðast. Vitað er að Banksy er frá borginni Bristol á Englandi. Seint á tíunda áratug liðinnar aldar kom hann til London og vakti athygli með verkum, sem hann málaði á veggi á götum úti. Nú vekur heimsathygli þegar hann málar myndir á hús og verk eftir hann seljast fyrir háar upphæðir á uppboðum. Notkun myndarinnar Flower Thrower á póstkortum varð til þess að Banksy höfðaði mál. AFP HÖFUNDARRÉTTUR STRANDAÐI Á NAFNLEYSI Banksy féll á eigin bragði Verkið „Show Me the Monet“ búið til uppboðs hjá Sotheby’s í vikunni. Þar leikur Banksy sér með verk Claudes Monets og hefur sett inn á kyrrláta nátt- úrulífsmynd rusl úr samtímanum. Búist er við að það seljist á 900 milljónir kr. AFP

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.