Morgunblaðið - 05.10.2020, Page 2

Morgunblaðið - 05.10.2020, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 2020 Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - hitataekni.is Sími 588 6070 - hitataekni@hitataekni.is Sjálfvirk pottastýring með snertiskjá og vefviðmóti POTTASTÝRING Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Andrés Magnússon andres@mbl.is Eftirlitsstofnun EFTA (ESA), sem hefur eftirlit með framkvæmd samn- ingsins um Evrópska efnahagssvæð- ið (EES), telur að Íslandi standi ekki við skuldbindingar sínar um fram- kvæmd EES-reglna. ESA telur að íslenska ríkið tryggi ekki að Evrópu- löggjöf, sem innleidd hefur verið á Íslandi, standi framar innlendri lög- gjöf. Guðlaugur Þór Þórðarson utan- ríkisráðherra segir málið til vinnslu en vildi ekki gera of mikið úr því. „Utanríkisráðuneytið hefur á síð- ustu misserum átt í samskiptum við ESA vegna þessa máls en ákvæðið sem um ræðir hefur staðið óbreytt í íslenskum lögum frá því að samning- urinn var lögfestur hér á landi og lengst af án nokkurra athugasemda af hálfu ESA. Við höfum lagt í tals- verða vinnu við að greina þau álita- efni sem á reynir og ég hef haldið ríkisstjórn upplýstri um framvindu málsins,“ segir Guðlaugur Þór í sam- tali við Morgun- blaðið. „Við höf- um nú nokkra mánuði til viðbót- ar til að taka end- anlega afstöðu til sjónarmiða ESA. Ég legg hins veg- ar áherslu á það, eins og við höfum gert í samskipt- um við ESA, að framkvæmd EES-samningsins er síst lakari hér en í hinum aðildarríkjunum.“ Í því samhengi er vert að hafa í huga að fæst ríki Evrópusambands- ins utan Norðurlanda hafa verið mjög upptekin af innleiðingu EES- reglna. Sömuleiðis má benda á ný- legan dóms stjórnlagadómstóls Þýskalands sem fylgir ekki dómi Evrópudómstólsins og neitar bein- línis að beita forgangsáhrifum ESB- réttar. Það breytir þó ekki því að sumir hafa af því áhyggjur að í þessu máli séu neistar, sem geta kveikt í EES-samningnum, eins og mátti sjá af því að sérstök frétt var af því sögð á vef norska Stórþingsins á föstudag. Sigríður Á. Andersen, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, sagði í samtali við blaðið, að mál þetta hefði áður komið til umræðu, þó ekki hefði fengið sérstaka athygli. „Það er enginn vafi í mínum huga að erlend löggjöf gengur ekki framar íslenskri löggjöf. Eitthvert álit frá ESA breytir engu þar um.“ Birgir Ármannsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, tók í sama streng. „Mér finnst það blasa við að kröfugerð ESA samrýmist mjög illa íslenskri stjórnskipan. Því þurfa ís- lensk stjórnvöld að koma skýrt á framfæri.“ Hér er úr vöndu að ráða, því í bók- un 35 með EES-samningnum er sagt að á Evrópska efnahagssvæðinu eigi að gilda sameiginlegar reglur, án þess þó að samningsaðila sé gert að framselja löggjafarvald til stofnana þess og að þeim markmiðum skuli náð með málsmeðferð hvers lands um sig. Á hinn bóginn er þar einnig sagt, að komi til árekstra á milli EES-reglna og annarra settra laga, skuldbindi EFTA-ríkin sig til að setja, ef þörf krefur, lagaákvæði um að EES-reglur gildi. ESA sendir Íslandi lokaviðvörun  Telur Ísland brjóta samninga um framkvæmd EES  Vill að Evrópulöggjöf gangi framar lands- lögum  Utanríkisráðherra segir framkvæmd EES-samningsins síst lakari hér en í öðrum ríkjum Guðlaugur Þór Þórðarson Sigríður Á. Andersen Birgir Ármannsson Tillaga er komin fram í borgarstjórn um að gerð verði úttekt á kynbundn- um mun á námsárangri í leik- og grunnskóla. „Það hafa mörg aðvör- unarljós blikkað í mörg ár, á öllum skólastigum, og við verðum að bregðast við þessu,“ segir Eyþór Arnalds, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn, sem leggja tillöguna fram. Staða drengja í skólakerfinu hefur verið mjög til umræðu undanfarin ár, en minna hefur borið á árangurs- ríkum aðgerðum til þess að sporna við þeirri þróun, sem hefur heldur færst í aukana en hitt. Árið 2011 skil- aði stýrihópur undir stjórn Þor- bjargar Helgu Vigfúsdóttur, þáver- andi borgarfulltrúa, skýrslu um námsárangur drengja og komu þar fram tíu til- lögur til úrbóta, en þær hafa fæst- ar komið til fram- kvæmdar. „Við í borginni þurfum að taka á þessu, Reykjavík er höfuðborgin og á að vera í fremstu röð,“ segir Eyþór, þótt vandinn sé vissulega ekki bundinn við hana eina. Tölfræði um þessi efni er mjög á eina lund, en í grunnskól- unum hefur lestrarkunnáttu hrakað ár frá ári. Nú eiga meira en 30% 14- 15 ára pilta í vandræðum með les- skilning og brottfall pilta úr fram- haldsskólum er sömuleiðis um 30%. Þessi þróun hefur skilað sér áfram menntaveginn, líkt og Lilja Alfreðs- dóttir menntamálaráðherra hefur vakið máls á, en konur eru nú 73% þeirra, sem stunda framhaldsnám við Háskóla Íslands. Hún telur að rekja megi vandann til fyrri skóla- stiga. Í greinargerð með tillögu sjálf- stæðismanna er bent á að um 35-40% drengja kunni ekki að lesa í lok 2. bekkjar grunnskóla, en að hlutfallið ætti að öðru jöfnu að vera í námunda við 10%. Þar sé því verk að vinna, en eins beri að athuga hlutverk og stöðu leikskóla, sem geti haft mikil áhrif á framtíð barna í skólakerfinu. Kynbundinn munur á náms- árangri verði kannaður  Tillaga í borgarstjórn  Vandi drengja í grunnskóla magnast Eyþór Arnalds Kosinn varaforseti hafréttar- dómsins Tómas H. Heiðar var á föstudag kjörinn varafor- seti Alþjóðlega hafréttardómsins til næstu þriggja ára. Albert Hoff- mann frá Suður- Afríku var kjörinn forseti dómsins. Tómas var kjörinn dómari við Alþjóðlega haf- réttardóminn á fundi aðildarríkja hafréttarsamnings Sameinuðu þjóð- anna sumarið 2014 og er kjörtímabil hans níu ár, til haustsins 2023. Und- anfarin þrjú ár hefur Tómas gegnt embætti forseta deildar dómsins fyrir fiskveiðideilur og jafnframt verið for- maður nefndar dómsins sem annast kynningarmál. Hann á sæti í sérdómi Alþjóðlega hafréttardómsins sem fer með deilumál Máritíus gegn Maldív- eyjum er varðar afmörkun hafsvæða milli ríkjanna á Indlandshafi. Tómas er jafnframt forstöðumaður Hafréttarstofnunar Íslands í auka- starfi og á sæti í stjórn Ródos- akademíunnar í hafrétti sem efnir til alþjóðlegs námskeiðs á hverju ári. Hann gegndi áður starfi þjóðrétt- arfræðings utanríkisráðuneytisins í tæp 20 ár. aij@mbl.is Tómas H. Heiðar Karlmaður á sextugsaldri lést eftir að bíll hans fór út af veg- inum við Heydalsveg á Vestur- landi á öðrum tímanum aðfara- nótt sunnudags. Bíll mannsins hafnaði ofan í á og tókst veg- farendum að ná manninum og konu, sem einnig var í bílnum, út úr honum. Endurlífgunartilraunir á mann- inum báru ekki árangur. Konan var orðin mjög köld en með með- vitund og líklega ekki mikið slös- uð. Var hún flutt með sjúkrabíl á sjúkrahúsið á Akranesi. Lögreglan á Vesturlandi rann- sakar slysið og naut aðstoðar tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við vett- vangsrannsókn. Fulltrúi rann- sóknarnefndar samgönguslysa kom einnig á vettvang. Banaslys við Heydalsveg Fyrsta Heiðmerkurhlaupið fór fram á laugardaginn. Tvær vegalengdir voru í boði fyrir þátttakendur, fjög- urra kílómetra skemmtiskokk og hinn vinsæli Ríkis- hringur sem er 12 kílómetrar. Skógræktarfélag Reykjavíkur skipulagði hlaupið í samstarfi við Nátt- úruhlaup og þátttaka var góð. Morgunblaðið/Íris 70 ár síðan Heiðmörk var vígð Góð þátttaka í fyrsta Heiðmerkurhlaupinu um helgina Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn verður lokaður frá og með deginum í dag vegna hertra samkomutak- markana. Vinnu- og lesrými grunn- og meistaranema í Háskóla Íslands verða lokuð sem og Þjóðarbók- hlaðan og háskólasafn Lands- bókasafns Íslands. Grímuskylda verður í öllum strætóum á höfuð- borgarsvæðinu fyrir farþega og bílstjóra. Lokanir víða vegna hertra aðgerða

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.