Morgunblaðið - 05.10.2020, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 05.10.2020, Blaðsíða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 2020 Harmsögur af útbrunnukarríerfólki af öllumkynjum, buguðum ofur-mæðrum og fólki með slétt og öfundsvert yfirborð en kraumandi kvíðann undir. Við þekkjum þær ófáar. Gott ef við er- um ekki orðin smá leið á þeim. Um leið og slíkt fólk er kynnt til sögunnar á prenti, sviði, tjaldi eða skjá vitum við (og bíðum spennt eftir) að sprungurnar komi í ljós og eyðileggjandi óreiðan flæði um allt. Eitt af því sem kætti við lest- ur Kópavogskrónikunnar var hvernig hún sneri þessu þreytta þema á haus: hér höfðum við sí- bernska og óábyrga unga konu sem hafði ekki minnsta áhuga á að pakka sinni óreiðu inn í einhverjar áferðarfallegar umbúðir. Og ekki nóg með það: þrátt fyrir allt kaos- ið og ábyrgðarleysið hafði dóttir hennar komist vellukkuð á legg (það er sennilega réttara svona en að segja að hún hafi „komið barninu á legg“). Þetta er bráðfyndinn texti, og enn betri fyrir þá tilfinningu að á bak við óáreiðanlegan sögumann- inn leynist óáreiðanlegur höfund- ur, sem jafnvel mögulega er að segja sannar sögur. Það er kitl- andi tilhugsun, en jafnvel þó mað- ur ýti henni til hliðar eins og sá vel uppaldi lesandi sem maður er, þá er Kópavogskrónika stór- skemmtileg, óvenjuleg og ögrandi bók. Óvenjulegur og ögrandi íslensk- ur texti á bók kveikir kannski allt- af áhuga einhverra í leikhúsheim- inum á að kanna hvort þar sé efniviður fyrir sviðið, hér í þessu leikgerðalandi. Að ekki sé talað um þegar hann er léttur og fynd- inn í ofanálag. Það sem þennan til- tekna texta skortir á hinn bóginn er dramatískt form eða framvinda og spenna milli sjálfsmyndar sögu- hetjunnar og raunveruleikans og atburðanna. Hvorugt tekst leik- gerð Ilmar Kristjánsdóttur og Silju Hauksdóttur að leggja til eða magna upp. Of lítið og óskýrt ferðalag eða þróun, hvað þá þroski fyrir persónuna í árekstrum henn- ar við samfélagið og mismóttæki- legt samferðafólk. Það sem er nánast útgangspunktur og erindi bókarinnar verður Akkilesarhæll þegar í leikhúsið er komið og fyrir vikið verður sviðsútgáfa Kópa- vogskróniku frekar flöt. Alls ekki leiðinleg samt. Til þess er aðalpersónan of fyndin, of yfirgengileg, of sjarmerandi. Brandararnir streyma frá henni í þéttri bunu, sérstaklega framan af, meðan hún er að teikna bæinn sinn fyrir okkur, frá Hamraborg upp í Smiðjuhverfi, og fara yfir helstu kærasta og/eða drauma- prinsa. Ilmur bætir sínum umtals- verða sviðssjarma við lúmskan þokka söguhetjunnar eins og hann birtist í orðum hennar og heldur athyglinni fanginni þó lítið sé beinlínis að frétta. Það er á henn- ar herðum sem hiti og þungi kvöldsins hvílir. Stundum glitti í kviku og sársauka undir töffara- grímunni og hún skapar sannfær- andi persónu sem við höldum með, þrátt fyrir allt. Mótleikararnir standa líka fyrir sínu. Þórey Birgisdóttir sennilega eftirminnilegust sem ábyrga mamman á foreldrafundinum. Hljómar alveg ótrúlega leiðinleg, séð með augum aðalpersónunnar sem við erum búin að tileinka okk- ur þegar þar kemur sögu, þó flest séum við vafalaust (vonandi) á bandi ábyrgu mömmunnar í okkar eigin lífi og Ilmarpersóna hljómi stundum eins og Óttar Guðmunds- son að predika yfir sínum síðmið- aldra kór. Arnmundur Ernst Backman fær feitari aukabita sem hinir aðskilj- anlegustu elskhugar og gerir þeim fín skil. Sérstaklega var tölvutón- skáldið sérvitra og sérgóða vel formuð og jafnvel frumleg skopfíg- úra. Verðbréfamiðlarinn öllu venjulegri skíthæll, en eftirminni- leg er fínleg nautnin þegar hann tók sér í munn orðin „lögfræðing- ur hjá Capacent“ til að kynna til sögunnar ósigrandi keppinaut um ástir sínar. Einföld umgjörð Sigríðar Sunnu Reynisdóttur þótti mér ekki styðja neitt sérstaklega vel við það sem fram fór. Græna grasþústin sem ríkir yfir rýminu nýttist á köflum ágætlega til sviðsetninga á heim- ilum og skemmtistöðum, sem leik- stjórinn Silja leysir að mestu ágætlega, en dálítið klaufalegt að þurfa líka að sækja leikmuni til að skapa sumar aðstæðurnar, og þá ýmist raunsæislega (sjúkrarúm og hitakassi) eða stílfærða (barstólar fyrir bílsæti). Búningar Sigríðar Sunnu voru sannfærandi í sínum natúralisma og lýsing Jóhanns Bjarna Pálmasonar þénug. Dans- tónlistin í sýningunni er viðeigandi sviplaus, og Auðarlagið sem hljóm- aði meðan áhorfendur gengu út að sýningu lokinni var áheyrilegt þó torvelt væri að tengja það við er- indi sýningarinnar og ástæðulaust að staldra við eftir hneigingar og fagnaðarlæti. Í Kópavogskróniku tekst ekki nægilega vel að flytja óvenjulegan og skemmtilegan texta inn í sviðs- ljósið svo úr verði grípandi og áhrifarík dramatík. Textinn er engu að síður jafn óvenjulegur og skemmtilegur það langt sem hann nær og skemmtir áhorfendum þessa stuttu kvöldstund í prýði- legum flutningi flinkra listamanna. Kamilla er rétt að byrja og er augljóslega hæfileikaríkt ólíkinda- tól sem engin leið er að spá um hvað gerir næst. Bersögli í borginni Ljósmynd/Hörður Sveinsson Þokki „Ilmur bætir sínum umtalsverða sviðssjarma við lúmskan þokka söguhetjunnar eins og hann birtist í orðum hennar og heldur athyglinni fanginni þótt lítið sé beinlínis að frétta,“ segir í leikdómi um Kópavogskróniku. Þjóðleikhúsið Kópavogskrónika bbbnn Eftir Kamillu Einarsdóttur í leikgerð Ilmar Kristjánsdóttur og Silju Hauks- dóttur. Leikstjórn: Silja Hauksdóttir. Leikmynd og búningar: Sigríður Sunna Reynisdóttir. Tónlist: Auður. Lýsing: Jóhann Bjarni Pálmason. Hljóðmynd: Kristján Sigmundur Einarsson. Leik- arar: Ilmur Kristjánsdóttir, Arnmundur Ernst Backman og Þórey Birgisdóttir. Frumsýning í Kassanum í Þjóðleikhús- inu föstudaginn 25. september 2020. ÞORGEIR TRYGGVASON LEIKLIST

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.