Morgunblaðið - 05.10.2020, Blaðsíða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 2020
Harmsögur af útbrunnukarríerfólki af öllumkynjum, buguðum ofur-mæðrum og fólki með
slétt og öfundsvert yfirborð en
kraumandi kvíðann undir. Við
þekkjum þær ófáar. Gott ef við er-
um ekki orðin smá leið á þeim.
Um leið og slíkt fólk er kynnt til
sögunnar á prenti, sviði, tjaldi eða
skjá vitum við (og bíðum spennt
eftir) að sprungurnar komi í ljós
og eyðileggjandi óreiðan flæði um
allt. Eitt af því sem kætti við lest-
ur Kópavogskrónikunnar var
hvernig hún sneri þessu þreytta
þema á haus: hér höfðum við sí-
bernska og óábyrga unga konu
sem hafði ekki minnsta áhuga á að
pakka sinni óreiðu inn í einhverjar
áferðarfallegar umbúðir. Og ekki
nóg með það: þrátt fyrir allt kaos-
ið og ábyrgðarleysið hafði dóttir
hennar komist vellukkuð á legg
(það er sennilega réttara svona en
að segja að hún hafi „komið
barninu á legg“).
Þetta er bráðfyndinn texti, og
enn betri fyrir þá tilfinningu að á
bak við óáreiðanlegan sögumann-
inn leynist óáreiðanlegur höfund-
ur, sem jafnvel mögulega er að
segja sannar sögur. Það er kitl-
andi tilhugsun, en jafnvel þó mað-
ur ýti henni til hliðar eins og sá
vel uppaldi lesandi sem maður er,
þá er Kópavogskrónika stór-
skemmtileg, óvenjuleg og ögrandi
bók.
Óvenjulegur og ögrandi íslensk-
ur texti á bók kveikir kannski allt-
af áhuga einhverra í leikhúsheim-
inum á að kanna hvort þar sé
efniviður fyrir sviðið, hér í þessu
leikgerðalandi. Að ekki sé talað
um þegar hann er léttur og fynd-
inn í ofanálag. Það sem þennan til-
tekna texta skortir á hinn bóginn
er dramatískt form eða framvinda
og spenna milli sjálfsmyndar sögu-
hetjunnar og raunveruleikans og
atburðanna. Hvorugt tekst leik-
gerð Ilmar Kristjánsdóttur og
Silju Hauksdóttur að leggja til eða
magna upp. Of lítið og óskýrt
ferðalag eða þróun, hvað þá þroski
fyrir persónuna í árekstrum henn-
ar við samfélagið og mismóttæki-
legt samferðafólk. Það sem er
nánast útgangspunktur og erindi
bókarinnar verður Akkilesarhæll
þegar í leikhúsið er komið og fyrir
vikið verður sviðsútgáfa Kópa-
vogskróniku frekar flöt.
Alls ekki leiðinleg samt. Til
þess er aðalpersónan of fyndin, of
yfirgengileg, of sjarmerandi.
Brandararnir streyma frá henni í
þéttri bunu, sérstaklega framan
af, meðan hún er að teikna bæinn
sinn fyrir okkur, frá Hamraborg
upp í Smiðjuhverfi, og fara yfir
helstu kærasta og/eða drauma-
prinsa. Ilmur bætir sínum umtals-
verða sviðssjarma við lúmskan
þokka söguhetjunnar eins og hann
birtist í orðum hennar og heldur
athyglinni fanginni þó lítið sé
beinlínis að frétta. Það er á henn-
ar herðum sem hiti og þungi
kvöldsins hvílir. Stundum glitti í
kviku og sársauka undir töffara-
grímunni og hún skapar sannfær-
andi persónu sem við höldum með,
þrátt fyrir allt.
Mótleikararnir standa líka fyrir
sínu. Þórey Birgisdóttir sennilega
eftirminnilegust sem ábyrga
mamman á foreldrafundinum.
Hljómar alveg ótrúlega leiðinleg,
séð með augum aðalpersónunnar
sem við erum búin að tileinka okk-
ur þegar þar kemur sögu, þó flest
séum við vafalaust (vonandi) á
bandi ábyrgu mömmunnar í okkar
eigin lífi og Ilmarpersóna hljómi
stundum eins og Óttar Guðmunds-
son að predika yfir sínum síðmið-
aldra kór.
Arnmundur Ernst Backman fær
feitari aukabita sem hinir aðskilj-
anlegustu elskhugar og gerir þeim
fín skil. Sérstaklega var tölvutón-
skáldið sérvitra og sérgóða vel
formuð og jafnvel frumleg skopfíg-
úra. Verðbréfamiðlarinn öllu
venjulegri skíthæll, en eftirminni-
leg er fínleg nautnin þegar hann
tók sér í munn orðin „lögfræðing-
ur hjá Capacent“ til að kynna til
sögunnar ósigrandi keppinaut um
ástir sínar.
Einföld umgjörð Sigríðar Sunnu
Reynisdóttur þótti mér ekki styðja
neitt sérstaklega vel við það sem
fram fór. Græna grasþústin sem
ríkir yfir rýminu nýttist á köflum
ágætlega til sviðsetninga á heim-
ilum og skemmtistöðum, sem leik-
stjórinn Silja leysir að mestu
ágætlega, en dálítið klaufalegt að
þurfa líka að sækja leikmuni til að
skapa sumar aðstæðurnar, og þá
ýmist raunsæislega (sjúkrarúm og
hitakassi) eða stílfærða (barstólar
fyrir bílsæti). Búningar Sigríðar
Sunnu voru sannfærandi í sínum
natúralisma og lýsing Jóhanns
Bjarna Pálmasonar þénug. Dans-
tónlistin í sýningunni er viðeigandi
sviplaus, og Auðarlagið sem hljóm-
aði meðan áhorfendur gengu út að
sýningu lokinni var áheyrilegt þó
torvelt væri að tengja það við er-
indi sýningarinnar og ástæðulaust
að staldra við eftir hneigingar og
fagnaðarlæti.
Í Kópavogskróniku tekst ekki
nægilega vel að flytja óvenjulegan
og skemmtilegan texta inn í sviðs-
ljósið svo úr verði grípandi og
áhrifarík dramatík. Textinn er
engu að síður jafn óvenjulegur og
skemmtilegur það langt sem hann
nær og skemmtir áhorfendum
þessa stuttu kvöldstund í prýði-
legum flutningi flinkra listamanna.
Kamilla er rétt að byrja og er
augljóslega hæfileikaríkt ólíkinda-
tól sem engin leið er að spá um
hvað gerir næst.
Bersögli í borginni
Ljósmynd/Hörður Sveinsson
Þokki „Ilmur bætir sínum umtalsverða sviðssjarma við lúmskan þokka söguhetjunnar eins og hann birtist í orðum
hennar og heldur athyglinni fanginni þótt lítið sé beinlínis að frétta,“ segir í leikdómi um Kópavogskróniku.
Þjóðleikhúsið
Kópavogskrónika bbbnn
Eftir Kamillu Einarsdóttur í leikgerð
Ilmar Kristjánsdóttur og Silju Hauks-
dóttur. Leikstjórn: Silja Hauksdóttir.
Leikmynd og búningar: Sigríður Sunna
Reynisdóttir. Tónlist: Auður. Lýsing:
Jóhann Bjarni Pálmason. Hljóðmynd:
Kristján Sigmundur Einarsson. Leik-
arar: Ilmur Kristjánsdóttir, Arnmundur
Ernst Backman og Þórey Birgisdóttir.
Frumsýning í Kassanum í Þjóðleikhús-
inu föstudaginn 25. september 2020.
ÞORGEIR
TRYGGVASON
LEIKLIST