Morgunblaðið - 05.10.2020, Side 15
15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 2020
Haust Það hefur verið fallegt veður víða um land undanfarna daga og margir hafa nýtt sér það til útiveru. Haustlitirnir fönguðu augað á kvöldgöngu við Reynisvatn fyrir skemmstu.
Ingólfur Guðmundsson
Í dag hefst ráðstefna
á Íslandi sem telja má
til heimsviðburðar.
Ráðstefnan fer að
mestu fram í fjarfundi,
en líka að hluta til í
Skálholti. Þannig
munu fulltrúar fjöl-
margra trúar- og lífs-
skoðunarfélaga koma
saman, að mestu leyti í
gegnum netið, til þess
að leggja grunn að
samstarfsvettvangi þeirra í um-
hverfismálum.
Ljóst er að trú- og lífsskoð-
unarfélög hafa áhrif á
hegðun og viðhorf mik-
ils meirihluta mann-
kyns. Það er því til
mikils að vinna, fyrir
umhverfið, að breið
fylking fulltrúa ólíkra
trúarbragða taki af-
stöðu með umhverfinu
og mæli fyrir ábyrgri
hegðun í umhverfis- og
loftslagsmálum.
Markmið ráðstefn-
unnar er meðal annars
að ræða hlutverk trú-
ar- og lífsskoð-
unarhópa í því að ná heimsmark-
miðum Sameinuðu þjóðanna um
sjálfbæra þróun. Í því miði verða
unnin drög að sameiginlegri ályktun
sem vilji stendur til að afla fylgis og
leggja fram á umhverfisþingi Sam-
einuðu þjóðanna (UNEA 5) á næsta
ári. Stofnun bandalags um trú í þágu
jarðar (Faith for Earth Coalition)
verður líka rædd á ráðstefnunni.
Forseti Íslands opnar ráðstefnuna
í dag og í kjölfarið ávarpar fjöldi
fulltrúa hinna ýmsu trúar- og lífs-
skoðunarfélaga ráðstefnuna. Meðal
annars patríarkinn af Konst-
antínópel, Bartholomew I, Peter
Turkson, einn af kardinálum
kaþólsku kirkjunnar, auk fulltrúa
shía- og súnnímúslima, gyðingdóms,
búddisma, Bahá‘í og íslensku þjóð-
kirkjunnar, Agnes M. Sigurð-
ardóttir biskup, svo einhver séu
nefnd. Inger Andersen, fram-
kvæmdastjóri Umhverfisstofnunar
Sameinuðu þjóðanna (UNEP) og
undirritaður ávarpa einnig ráðstefn-
una.
Alþjóðlegt heiti ráðstefnunnar er
Faith for Nature og má nálgast upp-
lýsingar og alþjóðlegar útsendingar
á slóðinni www.faithfornature.org.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið
tekur þátt í undirbúningi ráðstefn-
unnar, en meginþungi skipulagn-
ingar hefur verið í höndum fulltrúa
Félags Sameinuðu þjóðanna á Ís-
landi, þjóðkirkjunnar og Land-
græðslunnar og Baháí‘-samfélagsins
á Íslandi, í samstarfi við UNEP. Ég
vona innilega að þetta framtak muni
skila markverðum árangri fyrir um-
hverfismálin í heiminum og hlakka
til að taka þátt.
Eftir Guðmund
Inga Guðbrandsson » Það er til mikils að
vinna, fyrir um-
hverfið, að breið fylking
fulltrúa ólíkra trúar-
bragða taki afstöðu með
umhverfinu og mæli
fyrir ábyrgri hegðun í
umhverfis- og loftslags-
málum.
Guðmundur Ingi
Guðbrandsson
Trúarbrögð taka höndum saman fyrir umhverfið
Höfundur er umhverfis- og
auðlindaráðherra.
Alþjóðadagur kenn-
ara er í dag. Fá störf
eru jafn samfélagslega
mikilvæg og kenn-
arastarfið. Við munum
öll eftir kennurum
sem höfðu mikil áhrif
á okkur sem ein-
staklinga, námsval og
líðan í skóla.
Góður kennari
skiptir sköpum. Góður
kennari mótar framtíðina. Góður
kennari dýpkar skilning á mál-
efnum og fær nemandann til að
hugsa afstætt í leit að lausnum á
viðfangsefnum. Góður kennari opn-
ar augu nemenda fyrir nýjum hlut-
um, hjálpar þeim áfram á beinu
brautinni og stendur við bakið á
þeim sem þurfa á því
að halda. Góður kenn-
ari tekur upp hansk-
ann fyrir þá sem
minna mega sín og
gerir kraftaverk í lífi
barns. Góður kennari
lyftir þungum brúnum
og getur kallað fram
hlátrasköll. Góður
kennari styrkir ein-
staklinginn.
Skólastarf á tímum
heimsfaraldurs er
ómetanlegt. Þegar
fyrst var mælt fyrir um takmark-
anir á skólahaldi, þann 13. mars,
var rík áhersla lögð á mikið og gott
samráð við lykilaðila í skóla-
samfélaginu; Kennarasamband Ís-
lands, Samband íslenskra sveitarfé-
laga, skólameistara og rektora, og
ekki síður nemendur. Það samstarf
hefur skilað góðum árangri, gagn-
kvæmum skilningi á stöðu ólíkra
hópa og samtali sem tryggt hefur
skólastarf í landinu, á sama tíma og
börn í mörgum öðrum löndum hafa
þurft að sitja heima.
Nemendur á öllum skólastigum
eru yfir hundrað þúsund talsins. Í
leik- og grunnskólum eru um 64.650
nemendur og 11.450 starfsmenn. Í
framhalds- og háskólum eru um
41.000 nemendur. Aðstæður skóla
og nemenda hafa verið ólíkar í
heimsfaraldrinum og skoðanir um
aðgerðir á hverjum tíma skiptar.
Allir hafa þó lagst á eitt við að
tryggja öryggi og velferð nemenda
og starfsfólks og ég dáist mjög að
þeirri seiglu sem birtist í árangr-
inum. Það er ómetanlegt fyrir börn
að komast í skólann sinn, að læra
og eiga fastan punkt í tilveru sem
er að hluta til á hvolfi.
Við erum menntaþjóð. Við viljum
vera samfélag sem hugsar vel um
kennara sína, sýnir þeim virðingu
og þá viðurkenningu sem þeir eiga
skilið. Við viljum vera samfélag sem
fjárfestir í menntun, enda er fram-
úrskarandi menntun ein meginfor-
senda þess að Ísland verði sam-
keppnishæft á alþjóðavettvangi.
Fjárlagafrumvarpið í ár sýnir
glögglega mikilvægi menntunar og
hvernig forgangsraðað er í þágu
þessa.
Aldrei hef ég verið eins stolt af
íslensku menntakerfi og einmitt nú,
þegar hindrunum er rutt úr vegi af
fagmennsku og góðum hug. Kenn-
arar og skólastjórnendur hafa sýnt
mikla yfirvegun og baráttuvilja.
Umhyggja, sveigjanleiki og þraut-
seigja hefur verið leiðarljósið okkar
nú í haust og við munum halda
áfram á þeirri vegferð. Ég hvet alla
til að halda áfram að vinna að far-
sælum lausnum á þeim verkefnum
sem blasa við okkur.
Kæru kennarar. Ykkar framlag í
baráttunni við veiruna skæðu verð-
ur seint fullþakkað. Takk fyrir að
halda áfram að kenna börnunum
okkar og leggja ykkur fram við að
bjóða nemendum upp á eins eðlilegt
líf og hægt er.
Eftir Lilju Dögg
Alfreðsdóttur »Umhyggja, sveigj-
anleiki og þraut-
seigja hefur verið leið-
arljósið okkar nú í haust
og við munum halda
áfram á þeirri vegferð.
Lilja Alfreðsdóttir
Höfundur er mennta- og
menningarmálaráðherra.
Góður kennari gerir kraftaverk