Morgunblaðið - 05.10.2020, Side 8

Morgunblaðið - 05.10.2020, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 2020 Klettagörðum 11 | 104 Reykjavík | Sími 568 2130 | verslun@et.is | Opið mánud.-föstud. kl. 8.00-18.00 Mikið úrval af KÖSTURUM OG AUKALJÓSUM fyrir allar gerðir bíla Fall bankanna fyrir rúmum ára-tug var ekki aðeins notað til að reyna að endurrita söguna og stjórnarskrána heldur líka til að draga pólitíska andstæðinga fyrir dóm. Vefþjóðvilj- inn, á andriki.is, rifjaði upp í liðinni viku þegar þing- menn stóðu fyrir því, 28. september 2010, að draga ráðherra fyrir landsdóm fyrir engar sakir og þau klækjabrögð sem beitt var.    Ömurlegust var framganganokkurra þingmanna Sam- fylkingarinnar, sem, eins og Vef- þjóðviljinn sagði, settu „á svið leik- fléttu til að forða ráðherrum sínum undan saksókninni en láta um leið forsætisráðherrann fyrrverandi, Geir H. Haarde, sitja einan í súp- unni.“    Þá er rifjað upp að í mars 2012lagði Bjarni Benediktsson fram tillögu á Alþingi um aft- urköllun ákærunnar, en þingmaður Samfylkingarinnar lagði fram frá- vísunartillögu á tillögu Bjarna.    Sumir sáu að sér, meðal annarratveir af þeim fimm sem borið höfðu fram upphaflegu tillöguna árið 2010, en sátu fastir við sinn keip og hafa enn ekki sýnt neina iðrun yfir þátttöku í þessum póli- tísku ofsóknum.    Pistlinum á Vefþjóðviljanum lýk-ur með þessum orðum: „Eins og menn þekkja þá gufaði þessi saksókn svo upp fyrir Landsdómi nema hvað formsatriði sem engu máli skipti varðaði. Engin refsing var gerð. Mörg hundruð milljónum úr rík- issjóði var eytt í þetta pólitíska of- stæki.“ Tíu ár frá mis- notkun Alþingis STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Verkfræðistofan Verkís hefur birt tölvumynd af nýrri brú sem smíðuð verður yfir Jökulsá á Sólheimasandi. Eins og fram kom í frétt hér í blaðinu á fimmtudaginn hefur Vega- gerðin óskað eftir tilboðum í smíði brúarinnar og verða tilboð opnuð þriðjudaginn 27. október nk. Samkvæmt útboðslýsingu verður heildarlengd vegkafla á hringvegi um einn kílómetri. Nýja brúin, sem Verkís hannar, verður eftirspennt bitabrú í fimm höfum, alls 163 metr- ar. Hún verður reist á sama stað og sú gamla, sem verður rifin. Bráða- birgðabrú verður gerð sem vinnu- flokkur Vegagerðarinnar smíðar. Gamla brúin á Jökulsá austan Skóga er eina einbreiða brúin á leið- inni frá Reykjavík og austur að Kirkjubæjarklaustri. Hún var byggð árið 1967. Við brúna hafa oft mynd- ast langar bílaraðir þegar umferð er mest á sumrin. sisi@mbl.is Tölvumynd/Verkís Sólheimasandur Nýja brúin verður væntanlega tilbúin í nóvember 2021. Ný brú á Jökulsá verður 163 metrar Römmuð sýn, listaverk Jóns Grét- ars Ólafssonar arkitekts sem bar sigur úr býtum í hugmynda- samkeppni um listaverk í nágrenni við jarðvarmastöðina að Þeista- reykjum, er nú fullgerð og uppsett. Verkið verður vígt við hátíðlega at- höfn þegar veðurfar og sóttvarna- reglur leyfa fjöldasamkomur á ný, að því er fram kemur á vef Lands- virkjunar. Landsvirkjun hefur jafnan látið vinna listaverk í tengslum við byggingu helstu mannvirkja sinna og efndi því til fyrrnefndrar sam- keppni, sem Miðstöð hönnunar og arkitektúrs hafði umsjón með. „Römmuð sýn biðlar til fólks að upplifa umhverfið, hvert með sínum hætti, í gegnum og á milli fjögurra stálramma sem vísa í höfuðáttirnar; norður, austur, suður og vestur,“ segir á vefnum. Innan rammanna fjögurra er lík- an af Íslandi, gert úr náttúrulegum stuðlum. Stuðlarnir eru misháir og taka mið af hæð fjalla og fjallgarða landsins. Upp úr Íslandi rísa járn- súlur sem táknmyndir jarðhitans sem þar býr undir. sisi@mbl.is Ljósmynd/Hreinn Hjartarson. Römmuð sýn Listaverk Jóns Grétars Ólafssonar í norðurljósadýrðinni. Verkið Römmuð sýn er fullgert

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.