Morgunblaðið - 05.10.2020, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 2020
og leitin að jafnvægi
Hvernig tökum við umræðuna um líðan
og stöðu karlmanna upp á næsta stig?
Bifröst föstudaginn
9. október kl. 14-16.Ráðstefna VIRK og Háskólans á Bifröst um karlmennsku,
líðan karla og stöðu þeirra.
Dagskrá
• Ásmundur Einar Daðason
félags- og barnamálaráðherra opnar ráðstefnuna.
• Pétur Guðjónsson
rafmagnsverkfræðingur og fyrrum framkvæmdastjóri hjá
Marel segir frá reynslu sinni af alvarlegri kulnun.
• Númi Ólafsson
starfsmaður á leikskóla segir frá reynslu sinni af því að
festast í ofsakvíða og óvirkni við tölvuna.
• Þórarinn Þórsson
starfsendurhæfingarráðgjafi hjá VR og VIRK talar um að
hafa kjark til að leita sér hjálpar.
• Eysteinn Eyjólfsson
verkefnastjóri almannatengsla og útgáfu hjá VIRK
ræðir karla og VIRK.
• Þorsteinn V. Einarsson
meistaranemi í kynjafræði við HÍ ræðir um það hvernig við
tökum umræðuna um karlmenn og líðan þeirra á næsta stig.
Sirrý Arnardóttir stýrir ráðstefnunni.
Haldin í Hriflu á Bifröst, er öllum opin og sóttvarnarreglur
virtar. Aðgangur ókeypis en skrá skal þátttöku á virk.is.
Boðið verður upp á kaffi og spjall og gönguferð um náttúru-
perlur Bifrastar að lokinni ráðstefnunni.
Streymt verður frá ráðstefnunni á vefsíðu VIRK.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Endurhæfing er mikilvægur þátt-
ur í heilbrigðisþjónustu og efling
hennar er sennilega ein besta leið-
in til þess að ná markvissari nýt-
ingu fjármuna. Heilsueflandi starf
getur til dæmis komið í veg fyrir
að fólk þurfi að leggjast inn á há-
tæknisjúkrahús og auðveldar öðr-
um að komast aftur út á vinnu-
markaðinn eða verða með öðru
móti virkir þáttakendur í sam-
félaginu. Það er leiðarljósið í öllu
okkar starfi,“ segir Pétur Magn-
ússon forstjóri Reykjalundar.
Með dagskrá alla þessa viku
verður þess minnst að 75 ár eru
síðan Reykjalundur í Mosfellsbæ
var opnaður, þá sem endurhæfing-
arstöð fólks sem glímdi við afleið-
ingar berkla. Langt er síðan sigur
náðist á þeim sjúkdómi og í dag
leitar á Reykjalundi fólk sem þarf
að stoð og þjálfun til að ná aftur
vopnum sínum eftir til dæmis eftir
veikindi, slys eða önnur áföll. Á
bilinu 1.000-1.200 manns koma á
ári hverju í meðferð á Reykjalundi
og er aðsóknin mikil.
„Reykjalundur er í raun allt
önnur stofnun en var þegar ég hóf
hér störf árið 1983,“ segir Lára M.
Sigurðardóttir framkvæmdastjóri
hjúkrunar á Reykjalundi. „Fyrir
37 árum var hér enn fólk sem hafði
fengið berkla, og glímdi við var-
anlega skerta starfsorku af þeim
sökum. Hér bjuggu sumir í áratugi
og störfuðu, enda var Reykjalund-
ur þá „vinnuhæli“ eins það var
kallað. Þegar berklar liðu undir
lok fóru hjarta- og lungnasjúkling-
ar í meiri mæli að koma hingað. Í
dag er hér sinnt alhliða endurhæf-
ingu. Flestir okkar skjólstæðingar
eru hér aðeins yfir dag en einnig
er hér 14 rúma sólarhringsdeild
sem er fyrir þá mesta þjónustu
þurfa.“
Aftur út í samfélagið
Læknisfræðileg endurhæf-
ingu á Reykjalundi hefur það inn-
tak uppræta, minnka eða bæta fyr-
ir skerðingu í færni og virkni
hvers skjólstæðings. Tekið er mið
aðstæðum sjúklings og meðferðin
sniðin eftir því. Takmarkið er að
bæta lífsgæði fólks þannig að við-
komandi geti að nýju orðið virkur
þátttakandi í samfélaginu.
Að meðferðarstarfi kemur
fólk í ólíkum fagstéttum en á
Reykjalundi eru efnaskipta- og of-
fitu-, geðheilsu-, gigtar-, hjarta-,
lungna-, tauga- og hæfingar- og
verkjateymi – auk þess sem sér-
stakt meðferðarteymi sinnir
starfsendurhæfingu skjólstæð-
inga. Starf þetta er unnið við hinar
bestu aðstæður en á Reykjalundi
eru æfinga og íþróttasalir, með-
ferðar- og vinnustofur, og tvær
sundlaugar svo eitthvað sé nefnt.
Sótt í verkfærakistur
„Margar fagstéttir koma að
meðferðarstarfinu hér og gerir
stöðu Reykjalundar um margt ein-
staka. Við getum brugðist við
vanda hvers skjólstæðings og að-
stæðum í samfélaginu sem breyt-
ast hratt. Síðustu árin hefur verið
áberandi hve margir þurfa aðstoð
vegna lífsstílstengdra þátta, til
dæmis kulnun, offitu og efna-
skiptasjúkdóma. Því fylgir oft álag
á stoðkerfi og andlegur vandi,“
segir Lára. „Sérstaklega höfum
við hér lagt okkur fram við að
sinna fólki sem gæti með tilliti til
aldurs verið virkt á vinnumarkaði.
Slíkt útilokar þó ekki að eldri kom-
ist hingað í meðferð ef þarf.“
Síðasta vetur var gert sam-
komulag milli Landspítala og
Reykjalundar, um að af sjúkrahús-
inu komi til endurhæfingar fólk
sem veikst hefur af Covid-19 og
þarf endurhæfingu í kjölfar veik-
inda. Slen, síþreyta og hjarta- og
lungnasjúkdómar eru meðal ann-
ars afleiðingar sýkingarinnar en
margt er þó óljóst enn. Í dag eru
um 40 manns á biðlista eftir með-
ferð vegna Covid-19 á Reykjalundi
og nánast á degi hverjum bætast
nýjar umsóknir um meðferð við,
að sögn Péturs Magnússonar.
„Þau sem þurfa endurhæf-
ingu vegna Covid eru fólk á öllum
aldri sem glímir við misjafnar af-
leiðingar veikindanna. Þessi hópur
hefur verið í forgangi hér síðustu
mánuði, en úr reynslubanka okkar
og verkfærakistum voru hér á
ekki löngum tíma þróaðar aðferðir
og lausnir til að geta sinnt honum
sem best,“ segir Lára.
Krónan áttfaldast
Fyrr á þessu ári stofnaði SÍBS
óhagnaðardrifið félag, Reykjala-
undur endurhæfing ehf. um með-
ferðarstarfið. Félagið hefur sér-
staka stjórn, en hlutverk SÍBS sem
eiganda verður sem fyrr að fjár-
magna uppbyggingu, m.a. með
happadrættisfé. Daglegur rekstur
byggir aðallega á þjónustusamn-
ingi við Sjúkratryggingar Íslands.
„Fjármunir sem hið opinbera
ver til heilbrigðisþjónustu verða
alltaf takmarkaðir. Með fólks-
fjölgun og hækkandi meðalaldri er
því mikilvægt að þróa nýjar leiðir í
heilsueflandi stafi. Framlög rík-
isins til Reykjalundar eru um tveir
milljarðar króna á ári og rann-
sóknir segja hverja krónu sem fer í
endurhæfingarstarf skili sér jafn-
vel áttfalt til baka. Því er til mikils
að vinna,“ segir Pétur Magnússon.
Covid-sjúklingar í forgangi á Reykjalundi sem er 75 ára um þessar mundir
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Stjórnendur Lára M. Sigurðardóttir og Pétur Magnússon á Reykjalundi.
Nýjar leiðir til
heilsueflingar
Ljósmynd/Aðsend
Endurhæfing Leiðin út í lífið. Lára Margrét Sigurðardóttir
er hjúkrunarfræðingur að
mennt. Hefur unnið við hjúkrun
á Reykjalundi frá 1983 og þar af
framkvæmdastjóri hjúkrunar
frá 2000.
Pétur Magnússon er lyfja-
fræðingur að mennt og með
MBA-gráðu frá HR. Hann var
ráðinn forstjóri Reykjalundar
nú í sumar en starfaði síðustu
12 ár sem forstjóri Hrafnistu.
Hver eru þau?
Fjórum var bjargað um borð í fiski-
bát eftir að 15 metra fiskiskip tók
niðri á grynningu austur af Papey í
gærkvöld. Landhelgisgæslan vildi
ekki greina frá því hvaða skip ætti í
hlut.
Þyrla Landhelgisgæslunnar og
sjóbjörgunarsveitir Slysavarna-
félagsins Landsbjargar á Suð-
austur- og Austurlandi voru kall-
aðar út þegar neyðarkall barst kl.
20.55, en leki hafði komið að skip-
inu. Jafnframt óskaði Landhelg-
isgæslan eftir því að skip og bátar í
grenndinni héldu á staðinn. Klukk-
an 21:20 hafði tekist að bjarga öll-
um fjórum skipverjunum um borð í
fiskibát sem kom á staðinn, en
tæpri stundu síðar var skipið komið
í tog á leið inn til Djúpavogs.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Strand Þyrla Landhelgisgæslunnar var
kölluð út en hennar reyndist ekki þörf.
Fjórum bjargað úr
strandi við Papey
Íslensk erfðagreining er farin af
stað með rannsókn á eftirköstum
COVID-19-sjúkdómsins og stefnir
ÍE á að boða alla sem fengu staðfest
smit kórónuveiru í fyrstu bylgju
faraldursins hérlendis í rannsókn.
Fyrstu niðurstöður eru vænt-
anlegar fljótlega. Hilma Hólm, yf-
irmaður hjarta- og æðarannsókna,
segir mikilvægt að kortleggja
vandann og grípa þá sem glíma við
eftirköst sjúkdómsins en eins og áð-
ur hefur komið fram glímir fjöldi
fólks við eftirköst og eru biðlistar á
Reykjalundi eftir endurhæfingu
vegna eftirkasta.
ÍE rannsakar eftir-
köst COVID-19