Morgunblaðið - 05.10.2020, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 05.10.2020, Qupperneq 18
18 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 2020 Viðskipta Viðskiptapúlsinn er hlaðvarpsþáttur um viðskipti og efnahagsmál. Þar setjast blaðamenn ViðskiptaMoggans niður ásamt góðum gestum og ræða stærstu viðskiptafréttir vikunnar hverju sinni og hvað um er að vera í íslensku viðskiptalífi. Þættirnir fara í loftið á miðvikudögum í kjölfar útgáfu ViðskiptaMoggans og eru í samstarfi við Arion banka. Hlaðvarpið má nálgast á iTunes, Spotify og á öðrum hlaðvarpsrásum. Þættirnir eru einnig aðgengilegir á mbl.is VIÐSKIPTAPÚLSINN VIÐSKIPTAPÚLSINN NÝTTU TÍMANN OG FYLGSTU MEÐ Í dag ræða stjórn- málamenn gjarnan um mikilvægi endur- vinnslu og umhverf- ismál eru orðin áhersluatriði í stefnu- skrá allra stjórn- málaflokka. Alþjóða- samfélagið hefur sett sér metnaðarfull markmið þar sem endurvinnsla er eitt af lykilatriðunum. Ísland er eitt þeirra ríkja sem sett hafa sér markmið á þessu sviði og gengist undir alþjóðlega sáttmála um um- hverfisvernd. Aukin flokkun og endurvinnsla á plasti hefur verið nefnd sem ein af lausnunum. En til hvers að endur- vinna og flokka plast ef þeir sem stjórna hafa ekki raunverulegan áhuga á að nota vörur úr endur- unnu hráefni? Væri ekki skyn- samlegra að opinberir aðilar not- uðu vörur úr endurunnu efni í framkvæmdum þar sem það á við í stað þess að velja að nota meng- andi efni s.s. malbik? Plast er sterkt og létt efni sem hefur marga kosti og eftirspurn eftir vörum úr plasti hefur aukist jafnt og þétt síðustu áratugi. Í mörgum tilfellum er ekki raunhæft að nota annað efni en plast í vörur sem við teljum nauðsynlegar. Er plast vandamál eða er vandamálið frekar fólgið í hvernig við göngum frá því eftir notkun og endur- vinnum? Mengun vegna plasts í umhverfinu er raunverulegt vanda- mál. Einmitt þess vegna er mik- ilvægt að huga að endurvinnslu á plasti í stað þess að farga því í miklum mæli eins og nú er gert. Sem betur fer hefur á síðustu árum orðið mikil þróun í endur- vinnslu. Í nokkur ár hefur gömlu trollneti til dæmis verið safnað saman hér á landi og það sent til Danmerk- ur í endurvinnslu. Af- urðin er síðan meðal annars nýtt til að framleiða búsáhöld, kajaka, borð og bekki. Fjölmörg fleiri dæmi mætti nefna þar sem plast er end- urunnið í nauðsynjavörur tengdar iðnaði og vöruþróun á öllum sviðum daglegs lífs. VER ehf. hefur frá árinu 2006 flutt inn og selt Ecoraster- jarðvegsgrindur sem framleiddar eru úr endurunnum plastpokum og rúlluplasti. Þessi vara er 100% end- urvinnanleg og hefur vottun um að hún mengi ekki. Grindurnar eru með 20 ára framleiðsluábyrgð. Kostur þessarar vöru er meðal annars sá að það er hægt að taka hana upp og nota annars staðar, t.d. vegna stækkunar eða breyt- inga. Varan er því endurnýtanleg í fleiri en einum skilningi. Ecoraster-grindur eru hag- kvæmur og umhverfisvænn val- kostur. Grindurnar eru víða í notk- un bæði hér á landi og erlendis og nýttar í fjölbreyttum tilgangi. Hér á landi eru grindurnar meðal ann- ars notaðar í bílastæði við Lauf- skálavörðu og við tjaldsvæðið á Höfn. Í göngustíga að Svartafossi í Skaftarfelli og í Sögustíginn í Borgarnesi. Í reiðhallir og hesta- gerði, svo fátt eitt sé nefnt. Grind- urnar er einnig hægt að nota við breikkun á vegum, í innkeyrslur, aðreinar, á tjaldsvæðum, örygg- issvæði við enda flugbrauta og í þyrlupalla. Toyota í Garðabæ er dæmi um íslenskt fyrirtæki sem hefur lagt áherslu á umhverfisvernd í verki og valdi Ecoraster í bílastæði á starfssvæði sínu. Í bílastæðið voru endurunnar rúmlega 1,75 milljónir plastpoka eða 27,7 tonn af plasti. Ef svæðið hefði verið malbikað hefði þurft um 392 tonn af malbiki, þar af 19,5 tonn af jarðolíu. Auk þess hefði þurft að setja niðurföll eða frárennslislagnir sem ekki var þörf á með því að nota Ecoraster. Víða erlendis hafa sveitarfélög og borgir lagt áherslu á umhverfis- vænni lausnir í framkvæmdum. Í Evrópu eru fasteignaeigendur skattlagðir ef yfirborð lóðar er lok- að og aðkomuvatni er beint í frá- rennsliskerfi í stað þess að hleypa því beint ofan í jarðveginn, þar sem það á heima. Ef Ecoraster-grindur eru notaðar í yfirborð lóðarinnar þarf ekki að greiða þau gjöld. Þær uppfylla blágrænar kröfur. Á Íslandi fara orð og yfirlýsingar yfirvalda í umhverfismálum ekki alltaf saman við raunveruleikann. Jafnvel í friðlandi kjósa yfirvöld að nota mengandi efni í fram- kvæmdum. Við nýjan útsýnispall á Þingvöllum er bílastæði sem er malbikað í stað þess að nýta um- hverfisvænni lausn. Okkur sem er- um hreykin af okkar fallegu nátt- úru finnst sérstakt að malbika stíg í Dimmuborgum í stað þess að nota aðrar lausnir sem ekki menga. Ef íslenskir ráðamenn vilja sjá aukna umhverfisvernd í verki og stuðla að frekari endurvinnslu á plasti þá verður að gera þær kröf- ur til hins opinbera að það gangi á undan og stuðli að því að endur- unnar vörur séu notaðar í opinber- um framkvæmdum eins og kostur er. Er ekki sjálfsögð krafa að sett verði fram stefna í þeim málum? Endurvinnsla á plasti, til hvers? Eftir Magnús H. Sólmundsson Magnús H. Sólmundsson » Áhersla á aukna end- urvinnslu á plasti án þess að vilja nota vörur úr endurunnu plasti. Höfundur er framkvæmdastjóri VER ehf. ver@verehf.is Ísland er eina landið á Norð- urlöndunum þar sem kennsla í framhalds- skólum er ekki kom- in í eðlilegt horf eft- ir upphaf COVID-19- faraldursins. Fram- haldsskólar í Dan- mörku, Noregi, Sví- þjóð, Finnlandi og Færeyjum eru alveg opnir en gripið er til tímabundinna ráð- stafana ef upp koma smit (en öll- um skólanum þó ekki lokað). Framhaldsskólar hér, Versló í það minnsta, vonuðust eftir sams konar undanþágu og grunnskólar fengu hvað varðar fjarlægðar- og fjöldatakmarkanir (mbl.is 5. ágúst 2020). Sem hlýtur að þýða að stjórnendur skólans hafi litið svo á að hefðbundið skólahald væri nemendum fyrir bestu þrátt fyrir farsótt. En undanþága var ekki veitt. Hver er munurinn á þessum tveimur skólastigum, grunn- og framhaldsskólum þeg- ar smitvarnir eru annars vegar? Er eitthvað öðruvísi í þessu sam- bandi á Íslandi en hjá hinum Norðurlandaþjóðunum? Hvers eiga skólakrakkar að gjalda? Mikið er lagt á nemendur með skertu staðarnámi, auknu fjar- námi og sjálfsnámi. Það dregur úr gæðum kennslunnar og áhuga nemenda. En ekki síður eru nei- kvæð félagsleg áhrif mikil á við- kvæmu þroskaskeiði ungmenna. Norðurlöndin gripu ekki öll til sömu aðgerða í vetur þegar far- aldurinn kom upp. Öll löndin, að undanskildu Íslandi, virðast þó eiga það sameiginlegt að leggja áherslu á að skólahald sé sem eðlilegast. Enda er um að ræða mikið lýðheilsumál. En hver er stefnan hér á landi? Hvenær á að opna fram- haldsskólana? Eftir hverju er nú verið að bíða? Landamærunum hefur verið „lokað“ en staðarnám í framhalds- og háskólum er enn takmarkað þrátt fyrir að „lokun“ landamæra hafi átt að skila okk- ur hefðbundnu skólahaldi. Til stóð að færa kennslu í framhaldskólum í eðlilegra horf seinni part september (mbl.is 21. sept. 2020, „Allir í sömu súp- unni“). En með aukinni skimun greindust fleiri smit og hefð- bundnu skólahaldi var slegið á frest. Skólahald varð enn óeðli- legra. Hvatt var til enn frekari fjarkennslu og grímuskyldu kom- ið á í framhalds-og háskólum samkvæmt fyrirskipun mennta- málaráðuneytisins. Þar með var Ísland líka orðið eina landið á Norðurlöndunum sem setti grím- ur á andlit nemenda í skólastof- um. Reglur um grímuskyldu Samkvæmt reglugerð heil- brigðisráðuneytisins nr. 864/2020 sem tók gildi 7.9. 2020 segir, að tryggja skuli a.m.k. einn metra á milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum, en í tilfellum sem það er ekki hægt skuli nota andlitsgrímu sem hylur nef og munn. Framhaldsskólar hafa fylgt þessari reglu, einn metri er hafð- ur milli nemenda í skólastofum. Í leiðbeiningum landlæknisemb- ættisins um notkun hlífðargríma er vísað í reglugerð ráðuneyt- isins og sérstaklega tekið fram að ekki þurfi að nota grímur ef hægt er að fylgja eins metra reglunni eða orðrétt: „Þegar hægt er að tryggja 1 metra á milli einstaklinga þarf ekki að nota hlífðargrímu. Ekki er mælt með almennri notkun hlífð- argrímu á almannafæri.“ Yfirgengileg fyrirskipun Grímuskylda í framhalds- og háskólum er fyrirskipuð engu að síður og þvert á reglur. Byggð á hverju? Fjölda nýrra smita í framhalds-og háskólum? Nei, alls ekki. Aukningu í smitum mátti að stærstum hluta rekja til kráa og skemmtistaða þar sem fólki er nánast ómögulegt að fylgja nálægðarreglum. Nú hafa skemmtistaðir verið opnaðir á ný en aðgerðir í skólum verið hertar. Nemendur skyldugir til að bera grímur en kráargestir ekki. Svínainflúensan 2009 Í ágúst 2009 barst hingað heimsfaraldur, svínainflúensan. Bólusetning hófst ekki að neinu ráði fyrr en undir lok árs 2009. Inflúensan lagðist fyrst og fremst þungt á ungt fólk. Hvað voru yfirvöld að hugsa þá? Heimsfaraldur sem lagðist þungt á börn, ekkert bóluefni komið og krakkarnir grímulausir í skólum, engar takmarkanir, skólaböll og félagslíf! En nú stendur yfir far- sótt sem leggst fyrst og fremst þungt á eldri kynslóðina, sem er sérstaklega varin þessa dagana. En skólahald í framhalds- og há- skólum er eins og á stríðstímum. Verja skal rétt barna Börn eru börn til 18 ára ald- urs og foreldrum ber því að verja hag þeirra og réttindi. Farsótt getur verið alvarleg en samt sem áður þarf að verja börn sérstaklega gegn hvers kyns yfirgangi og réttindaskerð- ingu stjórnvalda. Sjálf eru börn- in ólíkleg til að þekkja rétt sinn. Grímuskyldan á sér ekki stoð í lögum. Skerðing á menntun og félagslífi ungmenna til langs tíma er skaðleg. Tökum hinar Norðurlandaþjóðirnar okkur til fyrirmyndar í þessu máli. Ísland eina Norð- urlandaþjóðin með fjarkennslu í fram- haldsskólum Eftir Þórdísi Björk Sigurþórsdóttur og Kristínu Johansen » Öll Norðurlandarík- in, að undanskildu Íslandi, virðast eiga það sameiginlegt að leggja áherslu á að skólahald sé sem eðlilegast á tím- um farsóttar. Kristín Johansen Höfundar eru mæður framhaldsskólanema. thordisbs@simnet.is / kristin@flo.is Þórdís Björk Sigurþórsdóttir Veistu um góðan rafvirkja? FINNA.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.