Morgunblaðið - 05.10.2020, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 2020
Við framleiðum lausnir
Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is
UMFERÐAREYJAR
Sérlausnir fyrir sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki
Henta vel til að stýra umferð, þrengja
götur og aðskilja akbrautir.
Til eru margar tegundir af skiltum,
skiltabogum og tengistykkjum sem
passa á umferðareyjarnar.
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Farðu ekki í uppnám þótt ekki sé
alltaf farið eftir þeim reglum sem þú setur.
Hafðu þig í frammi í vinnunni í dag, þó að
þér finnist það ef til vill dálítið óþægilegt.
20. apríl - 20. maí
Naut Þín bíða mörg verkefni. Láttu aðra
vita að þú ætlir að stefna ótrauð/ur að
takmarkinu sem þú settir þér í byrjun ár.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þótt þú berir ábyrgð þýðir það
ekki að þú þurfir að gera allt sjálf/ur og
megir ekki þiggja aðstoð. Lyftu þér upp og
leitaðu til góðra vina.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú munt fá mörg tækifæri til að
mennta þig á þessu ári. Vinur vill láta
óánægju sína í ljós en verður að fara fínt í
hlutina.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Félagar þínir hafa sýnt þér það traust
að velja þig til forystu í félagsskap. Farðu
varlega í það að biðja nána vini eða fjöl-
skyldu um liðsinni.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Samskipti við ástvini eru eilítið fjar-
læg og stirð í dag og tjáskipti dálítið þving-
uð. Stundum þarf bara að segja hvers
maður óskar og það rætist.
23. sept. - 22. okt.
Vog Vertu fyrst og fremst sannur í sam-
skiptum þínum við aðra og gættu þess að
lofa ekki upp í ermina á þér.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Með hjálp góðs vinar muntu
finna réttu leiðina til að tjá skoðanir þínar.
Vertu róleg/ur, erfiðleikar líða hjá og þú
nærð aftur vopnum þínum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Nú er að grípa tækifærið og
gera tilboð í það sem þú hefur lengi haft
augastað á. Nú væri upplagt að gera sér
glaðan dag í góðra vina hópi.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Varastu að láta hugmyndaflugið
hlaupa með þig í gönur. Ef þú missir sjónar
á takmarkinu verður sælan endaslepp.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú bíður í ofvæni eftir því að
þér verði hrósað fyrir góða frammistöðu.
Slíkar stundir eru nauðsynlegar og gera
þér kleift að halda áfram af fullum krafti.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það liggur ýmislegt jákvætt í loft-
inu en þú þarft að vanda þig þegar þú vel-
ur þá hluti sem þú vilt sinna. Veldu hann af
kostgæfni, því á miklu ríður að þú veljir
verkefni við hæfi.
hreinskilin að það kom mér virkilega
á óvart hvað þetta gekk vel.“ Kristín
ákvað í framhaldi að taka kennslu-
réttindi frá HÍ og einbeita sér að
skólasöfnunum. Eftir þrjú ár færði
Kristín sig yfir til bókasafns Fjöl-
brautaskólans í Breiðholti. Sumarið
eftir, 1985, gekk fjölskyldan í gegnum
mikinn harmleik þegar Björgvin,
eldri sonur þeirra, lést í slysi. Eins og
þeir vita sem misst hafa börn, þá
fylgir sorgin fólki alla tíð, þótt það
læri að lifa með henni.
Eftir sex ár í FB fann Kristín að
stigi í frönsku. Hún var þá búin að
kynnast Kára Kaaber, síðar eigin-
manni sínum og fjármálastjóra Árna-
stofnunar, og eignast soninn Björg-
vin, svo leiðinni var ekki heitið til
Frakklands. „Ég hafði pössun á þeim
tíma sem bókasafnsfræðin var kennd
og þar með var það ákveðið.“ Hún
lauk BA-prófi með bókasafnsfræði
sem aðalgrein en með frönsku og
norsku sem aukagreinar. Fjölskyldan
fór til Noregs og þar vann Kristín við
Háskólabókasafnið í Ósló í tvö ár.
„Ég hafði mjög gaman af vinnunni í
Ósló, þótt ég hefði ákveðið að ég
skyldi aldrei vinna á skólasafni. En
svo fær maður vinnu og ég hef verið
svo heppin að ég hef alltaf haft gaman
af því sem ég geri.“ Þegar heim var
komið vann Kristín á Landsbókasafni
Íslands og síðar Bókasafni Kópavogs,
en þá var yngri sonurinn Birgir
fæddur og Kristín vildi breyta til og
fékk hálfa vinnu á bókasafni Öldu-
selsskóla. „Ég var mest með yngstu
krakkana og hafði verið fullviss áður
en ég hóf starfið að annarra manna
óþekk börn væru sko ekki fyrir mig.
En börnin voru bara svo yndisleg og
K
ristín Björgvinsdóttir
fæddist á fæðingar-
deild Landspítalans
5.10. 1950 og ólst upp í
Hlíðunum í Reykjavík.
„Ég átti heima í blokk neðst í Eski-
hlíðinni, svo það var alltaf fullt af
krökkum.“ Á þessum tíma var hverfið
að byggjast upp og Kristín gekk í
Eskihlíðarskóla og var svo í fyrsta ár-
gangi Hlíðaskóla árið 1960. Íþrótta-
félagið Valur var í hverfinu og faðir
Kristínar var í stjórn Vals þegar hún
var barn og sjálf spilaði hún hand-
bolta með Val.
Kristín lauk landsprófi frá Kvenna-
skólanum í Reykjavík. „Viðhorfið á
þessum tíma var að ef eitthvert vit
væri í fólki þá færi það í MR. Mennta-
skólinn við Hamrahlíð var bekkja-
skóli og byggður upp svipað og MR,
en þeir voru með blandaða bekki,
kenndu á morgnana og pabbi hafði
líka tröllatrú á skólastjóra MH, Guð-
mundi Arnlaugssyni. Svo það endaði
með að ég var í fyrsta árgangi skól-
ans í blönduðum bekk og útskrifaðist
árið 1970.“
Kristín fór í Háskólann og lauk 1.
hún vildi breyta til og Fjölbrautaskól-
inn við Ármúla auglýsti eftir bóka-
safnsfræðingi árið 1991.
„Á þessum tíma var að verða tölvu-
bylting í mínu fagi og FÁ vildi fara
lengra en aðrir skólar og það var aug-
lýst sérstaklega eftir bókasafnsfræð-
ingi sem vildi taka þátt í uppbygg-
ingu upplýsingakerfis í skólanum.“
Kristín segir þetta hafa verið gífur-
lega spennandi tíma og hún tók þátt í
mörgum verkefnum, t.d. á vegum
Norrænu ráðherranefndarinnar og
fór á ráðstefnur fyrir hönd Íslands.
Hún tók þátt í miklu uppbygging-
arstarfi í faginu, s.s. tölvuvæðingu og
uppsetningu safna, eins og Kvenna-
sögusafns Íslands og við Grunnskól-
ann í Stykkishólmi. Þessum breyt-
ingum fylgdi mikill kraftur og Kristín
hélt áfram að læra og lauk meistara-
prófi frá háskólanum í Wales, Aberst-
wyth, í stjórnun bókasafna. Auk þess
að stýra bókasafni FÁ frá 1991,
kenndi hún skjalastjórnun við lækna-
ritarabraut FÁ frá 1992-2019 og var
stundakennari við félagsvísindasvið
HÍ á árunum 2002-2008. Einnig hefur
Kristín skrifað margar greinar um
Kristín Björgvinsdóttir bókasafnsfræðingur - 70 ára
Skírn Við skírn barnabarnsins Unnars. F.v. Kári, Brigitte Louste, Birgir með soninn Unnar, Juliette Louste, Kristín Björgvinsdóttir og Patrick Louste.
Árið sem við ætluðum að ferðast
1967 Kári og Kristín í vorferð MH.
Til hamingju með daginn
Reykjavík Ragna Vil-
borg Baldvinsdóttir
fæddist 28. október
2019 kl. 20.24. Hún vó
3.576 g og var 51 cm
löng. Foreldrar hennar
eru Baldvin F. Þor-
steinsson og Fanney
E. Ragnarsdóttir.
Nýr borgari
50 ára Einar ólst upp í
Garðabænum og býr
þar enn. Hann er lög-
maður og eigandi hjá
MAGNA lögmönnum
ehf. á Höfðabakka 9.
Helstu áhugamál
Einars eru útivist,
hjólreiðar og veiði og einnig björgunar-
sveitarstörf sem hann sinnir með
Hjálparsveit Skáta í Garðabæ.
Maki: Elfa Farestveit, f. 1971, sjúkraliði.
Synir: Arthur Knut, f. 1995, Jóhann Karl,
f. 2000 og Hákon Ingi, f. 2004.
Foreldrar: Arthur Knut Farestveit, f.
1941, fv. forstjóri hjá Einari Farestveit og
co. og Dröfn H. Farestveit, f. 1941, hús-
stjórnarkennari.
Einar
Farestveit
40 ára Katla Rós
fæddist í Reykjavík en
ólst upp frá fimm ára
aldri í Svíþjóð, lengst af
í Lundi. Katla Rós er
myndlistarkona og
hönnuður. Hún og eigin-
maður hennar, Ragnar
Már, ásamt vinum voru með Galleríið og
kaffihúsið Bismút á Hverfisgötu, sem var
tímabundið verkefni, en þau hafa einnig
verið virk í Kling og Bang galleríinu.
Maki: Ragnar Már Nikulásson, f. 1985,
myndlistarmaður og hönnuður.
Dóttir: Áróra Alba, f. 2016.
Foreldrar: Sigríður Vala Haraldsdóttir, f.
1958, d. 2012 og Gunnar Vilhelmsson, f.
1951, ljósmyndari, sem býr í Reykjavík.
Katla Rós Völu
og Gunnarsdóttir