Morgunblaðið - 05.10.2020, Blaðsíða 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 2020
LeBron James átti enn einn stór-
leikinn fyrir Los Angeles Lakers sem
er komið í 2:0 í úrslitaeinvígi sínu gegn
Miami Heat í NBA-deildinni í körfu-
knattleik. LA vann leikinn 124:114 en
LeBron skoraði 33 stig ásamt því að
taka níu fráköst og gefa níu stoðsend-
ingar. Lakers leiðir nú 2:0 í einvíginu
og hafa einhverjir haft á orði að Los
Angeles-liðið geti vel „sópað“ Miami í
úrslitaeinvíginu og unnið 4:0-sigur.
Andri Rúnar Bjarnason bjargaði
stigi fyrir Esbjerg í 2:2-jafntefli gegn
Viborg í dönsku B-deildinni í knatt-
spyrnu á laugardaginn. Skoraði hann
þar gegn landa sínum Patriki Sigurði
Gunnarssyni sem er að láni hjá Viborg
frá Brentford á Englandi. Ólafur Krist-
jánsson þjálfar Esbjerg og setti Andra
inn á 74. mínútu og hann þakkaði fyrir
sig með marki skömmu síðar.
Íslendingarnir í Aue skiluðu sínu í
24:21-sigri á Rimpar í fyrstu umferð
þýsku B-deildarinnar í handknattleik á
laugardaginn. Skyttan Arnar Birkir
Hálfdánsson skoraði fimm mörk fyrir
heimamenn og Sveinbjörn Pétursson
stóð sig vel í markinu, var með 36 pró-
sent markvörslu. Þeir gengu báðir til
liðs við félagið í sumar.
Elvar Már Friðriksson átti mjög
góðan leik fyrir Siauliai í litháísku úr-
valsdeildinni í körfuknattleik í gær
þrátt fyrir að lið hans tapaði gegn
Cbet, 94:87. Elvar skoraði tuttugu
stig, gaf ellefu stoðsendingar og tók
þrjú fráköst en hann hefur verið öfl-
ugur í fyrstu leikjum tímabilsins.
Alexander Petersson og Ýmir Örn
Gíslason fóru vel af stað í þýsku efstu
deildinni í handknattleik í gær er lið
þeirra, RN Löwen, vann 30:20-sigur á
löndum sínum Elvari Ásgeirssyni og
Viggó Kristjánssyni í Stuttgart í
fyrstu umferðinni. Alexander skoraði
fjögur mörk og Ýmir eitt en Viggó
gerði fimm mörk fyrir gestina. Þá
skoraði Oddur Gretarsson tvö mörk
fyrir Balingen sem tapaði 25:23 á
heimavelli gegn Melsungen sem Guð-
mundur Guðmundsson þjálfar sam-
hliða íslenska karlalandsliðinu. Arnar
Freyr Arnarsson leikur einnig með lið-
inu.
Arnór Ingvi Traustason kom Malmö
á bragðið í 4:0-sigri á Kalmar í sænsku
efstu deildinni í gær en hann kom
gestunum yfir strax á sjöttu mínútu.
Þá spilaði hann allan leikinn fyrir
Malmö sem er á toppnum eftir 23 um-
ferðir. Ísak Bergmann Jóhannesson
var ekki í leikmannahóp Norrköping
sem tapaði gegn Sirius.
Eitt
ogannað
arinnar sem United fær á sig sex
mörk í einum leik. Ole Gunnar Sol-
skjær, knattspyrnustjóri United,
var ómyrkur í máli í leikslok og tal-
aði um daginn sem þann versta á
ferli sínum sem stjóri liðsins.
Gylfi Þór Sigurðsson lagði upp
fyrsta mark Everton í 4:2-sigri
gegn Brighton á heimavelli en Gylfi
lék allan leikinn á miðjunni.
Jóhann Berg Guðmundsson
kom inn á sem varamaður hjá
Burnley á 68. mínútu þegar liðið
tapaði 3:1 á útivelli gegn New-
castle.
Englandsmeistarar Liverpool
fengu skell þegar liðið heimsótti
Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu í Birmingham í gær,
en leiknum lauk með 7:2-sigri
Aston Villa. Liverpool sá aldrei til
sólar í leiknum en Villa leiddi 4:1 í
hálfleik. Spilamennska Liverpool
batnaði lítið í síðari hálfleik en Ollie
Watkins reyndist Englandsmeist-
urunum erfiður viðureignar en
hann skoraði þrennu í leiknum.
Þetta er í fyrsta sinn í 57 ár sem
Liverpool fær á sig sjö mörk í ein-
um leik og þá var þetta stærsta tap
Jürgens Klopps, knattspyrnustjóra
Liverpool, á ferlinum.
Harry Kane og og Heung-Min
Son fóru mikinn fyrir Tottenham
þegar liðið vann stórsigur gegn
Manchester United í Manchester.
Kane og Son skoruðu tvö mörk
hvor í 6:1-stórsigri Tottenham en
Anthony Martial, framherji United,
fékk að líta beint rautt spjald fyrir
að slá til Erik Lamela á 28. mínútu í
stöðunni 2:1-fyrir Tottenham. Leik-
menn Tottenham gengu á lagið eft-
ir þetta. Þá var þetta var í þriðja
sinn í sögu ensku úrvalsdeild-
AFP
Fúll Jürgen Klopp upplifði sitt
stærsta tap á ferlinum í gær.
Stórliðin láku inn mörkunum
BREIÐABLIK – FYLKIR 4:1
0:1 Arnór Borg Guðjohnsen 16.
1:1 Brynjólfur Willumsson 25.
2:1 Brynjólfur Willumsson 29.
3:1 Elfar Freyr Helgason 61.
4:1 Atli Hrafn Andrason 84.
MM
Brynjólfur Willumsson (Breiðabliki)
M
Elfar Freyr Helgason (Breiðabliki)
Höskuldur Gunnlaugsson (Breiðabliki)
Viktor Karl Einarsson (Breiðabliki)
Gísli Eyjólfsson (Breiðabliki)
Stefán Ingi Sigurðarson (Breiðablik)
Atli Hrafn Andrason (Breiðabliki)
Ólafur Ingi Skúlason (Fylki)
Arnór Borg Guðjohnsen (Fylki)
Rautt spjald: Daði Ólafsson (Fylki) 54.
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson – 8
Áhorfendur: 346.
VALUR – GRÓTTA 6:0
1:0 Aron Bjarnason 14.
2:0 Eiður Aron Sigurbjörnsson 24.
3:0 Sigurður Egill Lárusson 26.
4:0 Aron Bjarnason 73.
5:0 Lasse Petry 80.
6:0 Patrick Pedersen 85.
M
Aron Bjarnason (Val)
Birkir Már Sævarsson (Val)
Eiður Aron Sigurbjörnsson (Val)
Hannes Þór Halldórsson (Val)
Lasse Petry (Val)
Patrick Pedersen (Val)
Rasmus Christiansen (Val)
Sigurður Egill Lárusson (Val)
Karl Friðleifur Gunnarsson (Gróttu)
Óliver Dagur Thorlacius (Gróttu)
Dómari: Sigurður H. Þrastarson – 8.
Áhorfendur: 293.
HK – KR 1:1
0:1 Atli Sigurjónsson 26.
1:1 Ásgeir Marteinsson 88.
MM
Atli Sigurjónsson (KR)
M
Arnar Freyr Ólafsson (HK)
Leifur Andri Leifsson (HK)
Atli Arnarson (HK)
Hörður Árnason (HK)
Ásgeir Marteinsson (HK)
Finnur Orri Margeirsson (KR)
Kennie Chopart (KR)
Ægir Jarl Jónasson (KR)
Dómari: Helgi Mikael Jónasson – 8.
Áhorfendur: 425.
STJARNAN – FJÖLNIR 1:0
1:0 Hilmar Árni Halldórsson 86. (v)
M
Björn Berg Bryde (Stjörnunni)
Haraldur Björnsson (Stjörnunni)
Hilmar Árni Halldórsson (Stjörnunni)
Sölvi Snær Guðbjargarson (Stjörnunni)
Grétar Snær Gunnarsson (Fjölni)
Sigurjón Daði Harðarson (Fjölni)
Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson (Fjölni)
Rautt spjald: Guðjón Pétur Lýðsson
(Stjörnunni) 90.
Dómari: Guðmundur Ársæll Guðmunds-
son – 7.
Áhorfendur: Um 400.
VÍKINGUR R. – KA 2:2
0:1 Guðmundur Steinn Hafsteinss. 19.
1:1 Kwame Quee 43.
1:2 Steinþór Freyr Þorsteinsson 74.
2:2 Helgi Guðjónsson 75.
M
Adam Ægir Pálsson (Víkingi)
Halldór Jón S. Þórðarson (Víkingi)
Kvame Quee (Víkingi)
Ágúst Eðvald Hlynsson (Víkingi)
Helgi Guðjónsson (Víkingi)
Aron Dagur Birnuson (KA)
Andri Fannar Stefánsson (KA)
Mikkel Qvist (KA)
Steindór Freyr Þorsteinsson (KA)
Sveinn Margeir Hauksson (KA)
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson – 7.
Áhorfendur: 202.
ÍA – FH 0:4
0:1 Steven Lennon 34.
0:2 Jónatan Ingi Jónsson 76.
0:3 Steven Lennon 78.(v)
0:4 Steven Lennon 90.
MM
Steven Lennon (FH)
M
Aron Kristófer Lárusson (ÍA)
Brynjar Snær Pálsson (ÍA)
Ísak Snær Þorvaldsson (ÍA)
Baldur Logi Guðlaugsson (FH)
Björn Daníel Sverrisson (FH)
Guðmundur Kristjánsson (FH)
Jónatan Ingi Jónsson (FH)
Dómari: Vilhjálmur A. Þórarinsson – 8.
Áhorfendur: Ekki gefið upp.
Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fotbolti.
FÓTBOLTINN
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Steven Lennon skoraði þrennu í
annað sinn í sumar þegar FH vann
4:0-stórsigur gegn ÍA á Akranesi.
Lennon hefur nú skorað 17 mörk
í átján leikjum í sumar en hann
skoraði einnig þrennu gegn HK í
Hafnarfirði, 22. ágúst síðastliðinn.
„FH-ingar gerðu nóg í dag en
ekki mikið meira en það þrátt fyrir
að hafa unnið leikinn með fjórum
mörkum en mörkin þrjú sem þeir
gerðu í síðari hálfleik komu til-
töluluega áreynslulaust sem sýnir
kannski þau miklu gæði sem búa í
FH-liðinu,“ skrifaði Pétur Hreins-
son m.a. í umfjöllun sinni um leik-
inn á mbl.is.
Markamet efstu deildar er 19
mörk sem þeir Andri Rúnar
Bjarnason, Pétur Pétursson, Guð-
mundur Torfason , Þórður Guð-
jónsson og Tryggvi Guðmundsson
deila en Steven Lennon hefur fjóra
leiki til þess bæta metið.
Endurkoma í Kópavogi
Brynjólfur Willumsson fór mik-
inn fyrir Breiðablik þegar liðið
vann 4:1-stórsigur gegn Fylki á
Kópavogsvelli.
Blikar lentu undir í leiknum en
Brynjólfur skoraði tvívegis á fjög-
urra mínútna kafla í fyrri hálfleik
og kom þeim 2:1-yfir.
Blikar hafa ekki tapað í síðustu
fjórum leikjum sínum og virðast
vera búnir að finna taktinn en liðið
er í harðri baráttu um Evrópusæti
á meðan Fylkismenn virðast vera
gefa eftir í þeirri baráttu.
„Sigurinn var kærkominn hjá
Breiðabliki í Evrópubaráttunni eftir
aðeins einn sigur í síðustu sex leikj-
um þar á undan. Það vantaði menn
hjá báðum liðum en breiddin er
meiri hjá Breiðabliki og því fór sem
fór,“ skrifaði Jóhann Ingi Hafþórs-
son m.a. um leikinn á mbl.is.
Brynjólfur skoraði sitt tíunda
mark í meistaraflokki í leiknum.
Markaveisla á Hlíðarenda
Aron Bjarnason hélt uppteknum
hætti og skoraði tvívegis fyrir Vals-
menn þegar liðið vann stórsigur
gegn Gróttu á Hlíðarenda.
Valsmenn voru komnir í 3:0-eftir
25. mínútna leik og eftir það sigldi
toppliðið sigrinum heim á sannfær-
andi hátt.
„Valsmenn voru betri á vellinum
en eftir mörkin þrjú í framan í síð-
ari hálfleik var ekki mikið bit, mað-
ur bjóst við meiru en þeir hrukku
rækilega í gang í lokin,“ skrifaði
Stefán Stefánsson m.a. í umfjöllun
sinni um leikinn á mbl.is.
Sigurmark í Garðabæ
Hilmar Árni Halldórsson reynd-
ist hetja Stjörnunnar þegar liðið
vann 1:0-sigur gegn botnliði Fjölnis
en hann skoraði sigurmark leiksins
úr vítaspyrnu á 86. mínútu.
Þetta var annar sigur Garðbæ-
inga í síðustu þremur leikjum sín-
um en liðið er í harði baráttu um
Evrópusæti.
„Það var í raun eftirtektarvert
hversu slakir Stjörnumenn voru á
köflum í kvöld. Það mætti jafnvel
segja að þeir hafi sloppið með
skrekkinn. Þetta er hins vegar sá
tími mótsins þar sem frammistaðan
skiptir kannski ekki höfuðmáli, leik-
ina þarf að vinna; sama hvernig það
tekst,“ skrifaði Kristófer Krist-
jánsson m.a. um leikinn á mbl.is.
Vandræði í Kópavogi
Íslandsmeistarar KR lentu enn
og aftur í vandræðum með HK þeg-
ar liðin mættust í Kórnum þar sem
lokatölur urðu 1:1.
Þetta var þriðji leikurinn í röð
þar sem KR mistekst að vinna
Kópavogsliðið en KR tapaði dýr-
mætum stigum í baráttunni um
Evrópusæti á meðan HK-ingar geta
vel við unað eftir að Ásgeir Mar-
teinsson bjargaði stigi fyrir þá á
lokamínútum leiksins.
„Það kom KR-ingum í koll að
draga sig aftur á völlinn síðustu 20
mínúturnar og ætla þannig að halda
fengnum hlut. Það var þó nærri því
búið að ganga upp, því fram að
marki Ásgeirs virtust HK-ingar
ekki hafa hugmyndaflugið og kraft-
inn til að ógna vel skipulögðum
Vesturbæingum,“ skrifaði Víðir
Sigurðsson m.a. um leikinn á
mbl.is.
Jafntefli í Fossvogi
Helgi Guðjónsson bjargaði jafn-
tefli fyrir Víking úr Reykjavík þeg-
ar liðið fékk KA í heimsókn á Vík-
ingsvöll í Fossvogi.
Bæði lið ætluðu sér miklu stærri
hluti í sumar og eiga þau það sam-
eiginlegt að hafa valdið miklum
vonbrigðum á tímabilinu.
„Þetta var tólfta jafntefli KA-
manna í 18 leikjum, og hafa þeir því
jafnað met Breiðabliks frá árinu
2014. Norðanmenn hafa nú fjóra
leiki til þess að bæta metið, en lík-
lega hafa þeir engan áhuga á því,“
skrifaði Stefán Gunnar Sveinsson
m.a. um leikinn á mbl.is.
Líklegur til
þess að bæta
markametið
Morgunblaðið/Íris
Fella Aron Snær Friðriksson og Brynjólfur Willumsson eigast við í gær.
Valsarar gjörsigruðu Gróttumenn
KR lenti í vandræðum í Kópavogi
KNATTSPYRNA
1. deild kvenna, Lengjudeildin:
Kópavogsv.: Augnablik – Víkingur..... 19.15
Í KVÖLD!
Dominos-deild kvenna
KR – Skallagrímur ............................... 71:75
Fjölnir – Valur ...................................... 71:60
Haukar – Breiðablik............................. 63:51
Staðan:
Fjölnir 3 3 0 236:191 6
Skallagrímur 2 2 0 129:122 4
Keflavík 1 1 0 114:72 2
Haukar 2 1 1 114:105 2
Valur 2 1 1 80:71 2
Snæfell 1 0 1 60:91 0
Breiðablik 3 0 3 122:157 0
KR 2 0 2 143:189 0