Morgunblaðið - 05.10.2020, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 05.10.2020, Qupperneq 32
Hanna Dóra Sturludóttir mezzósópran kemur fram á hádegistónleikum í Hafnarborg á morgun kl. 12 með Antoníu Hevesi píanóleikara. Tónleikarnir bera yfir- skriftina Konur úr öllum áttum og verða fluttar aríurn- ar „Amour! Viens aider“ úr óperunni Samson og Dalila, „Voce di donna“ úr La Gioconda sem og „Habanera“ og „Sequidilla“ úr Carmen. Aðgangur er ókeypis en sæta- framboð takmarkað í samræmi við viðmið heilbrigð- isyfirvalda og verður tónleikunum því líka streymt á netinu. Konur úr öllum áttum í Hafnarborg MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 279. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Steven Lennon skoraði þrennu í annað sinn í sumar þegar FH vann 4:0-stórsigur gegn ÍA á Akranesi í úr- valsdeild karla í knattspyrnu, Pepsi Max-deildinni, í frestuðum leik úr elleftu umferð deildarinnar. Lennon skoraði einnig þrennu gegn HK í Hafnarfirði, 22. ágúst síðastliðinn, en hann hefur nú skorað 17 mörk í átján leikjum í deildinni í sumar. Markamet efstu deildar er 19 mörk en því meti deila þeir Andri Rúnar Bjarnason, Pétur Pétursson, Guðmundur Torfason, Þórður Guðjónsson og Tryggvi Guðmundsson. »27 Steven Lennon skoraði þrennu á Akranesi og nálgast markametið ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Bókin Átökin um Ólympíuleikana í Moskvu 1980 eftir dr. Ingimar Jóns- son er komin út. Þar rekur höfundur söguna um baráttuna utan vallar í aðdraganda leikanna, allt frá því Al- þjóðaólympíunefndin, IOC, ákvað mótsstaðinn í Sovétríkjunum á þingi nefndarinnar í Vín í Austurríki 1974. „Strax og Moskva fékk leikana var ljóst að menn á Vesturlöndum voru ekki sáttir við ákvörðunina,“ segir Ingimar. Andúðin hafi aukst eftir því sem nær hafi dregið. „Mannrétt- indamálin í Sovétríkjunum voru dregin inn í umræðuna og ýmislegt fleira.“ Íþróttir hafa lengi verið Ingimar hugleiknar. Hann lærði íþróttafræði í Leipzig í Austur-Þýskalandi og að loknu doktorsprófi þar 1968 varð hann kennari við Kennaraskóla Ís- lands og lauk opinberum störfum við Íþróttakennaraskóla Íslands á Laugarvatni. Hann hefur gegnt ýmsum störfum í íþróttahreyfing- unni og gefið út bækur sem tengjast íþróttum, eins og til dæmis Ólymp- íuleikar að fornu og nýju, Allt um vetrarleikana, Vetrarleikarnir 1924-1984 frá Chamonix til Sa- rajevo og Vetrar- leikarnir 1988- 2010 frá Calgary til Vancouver. Hann bendir á að hann hafi tekið ýmislegt saman um kalda stríðið og eftir að hafa lesið þýsku bókina Sport und Politik eftir Rolf Pfeiffer hafi hann ákveðið að skrifa um fyrr- nefnda baráttu og átökin sem henni fylgdu. „Ég kynnti mér hvernig menn brugðust við heima og erlendis og vitna mikið í íslenskar heimildir.“ Á bláþræði Ingimar var í Ólympíunefnd Ís- lands 1973 til 1980 og segist því hafa fylgst vel með umræðunni á sínum tíma. Gaman hafi verið að taka sam- an hvað skrifað hafi verið um málið. Hart hafi verið deilt á Sovétríkin og Ólympíuleikarnir notaðir til þess að koma höggi á þau. „Ólympíu- hreyfingin var komin í gífurlega mikla hættu og þar með Ólympíu- leikarnir. Ekki munaði miklu að allt spryngi í loft upp og þess vegna fannst mér ástæða til þess að skrifa um þetta.“ Á leikunum í Moskvu var Ingimar gestur sem forseti Skáksambands Íslands. „Ég var þarna seinni vik- una, vel var tekið á móti mér og gam- an var að fylgjast með gangi mála,“ segir hann, en bætir við að sú reynsla komi ekki fram í bókinni. „Ég læt heimildirnar tala, bókin er nokkurs konar rannsóknarblaða- mennska.“ Ingimar leggur áherslu á að átök- in um leikana 1980 hafi fyrst og fremst verið pólitísk og hann segist vera ánægður með viðbrögð Ólymp- íunefndar Íslands, sem hafi staðið vörð um íþróttirnar. „Svívirðilegar árásir voru á Sovétríkin og íþrótta- fólkið og íþróttaforystan fengu ald- eilis að heyra það,“ segir hann. „Ekki hefur alltaf verið eining um Ólympíuleika en leikarnir í Moskvu eru þeir umdeildustu.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Kalda stríðið Ingimar Jónsson hefur kynnt sér átökin í aðdraganda Ólympíuleikanna í Moskvu 1980. Umdeildustu leikarnir  Ingimar Jónsson með bók um átökin fyrir Ólympíuleikana 1980

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.