Morgunblaðið - 09.10.2020, Page 8

Morgunblaðið - 09.10.2020, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 2020 Bergþór Ólason,þingmaður Mið- flokksins, gerði stöðu einkarekinna fjöl- miðla að umtalsefni í óundirbúnum fyrir- spurnartíma á Al- þingi í gær. Hann vakti athygli á að ætl- unin væri að hækka gjaldið sem greitt er til Ríkisútvarpsins úr 17.900 krónum í 18.300 krónur á næsta ári og að Rúv. fái 4.500 milljónir króna frá ríkinu á næsta ári. Ofan á það bætist auglýsingar og fleira. Bergþór spurði fjármálaráðherra hver afstaða hans væri til þess „að leyfa greiðendum nefskattsins að ráð- stafa tilteknu hlutfalli af nefskatti sín- um til einkarekinna miðla. Það væri t.d. hægt að gera á skattskýrslu hvers árs“, sagði Bergþór, sem nefndi að fyrst í stað gæti þetta verið 10% nef- skattsins, eða um 450 milljónir.    Fjármálaráðherra sagði þettaáhugaverða hugmynd, sem hún vissulega er, en að hún væri ekki á dagskrá ríkisstjórnarinnar. Hann lýsti þó efasemdum með framkvæmd nefskattsins. Bergþór fagnaði því að ráðherra vildi umræðu um málið og benti á fleiri leiðir til að styðja við einkarekna miðla, svo sem að „af- nema virðisaukaskatt af áskrift- artekjum“ eða „eiga við trygginga- gjald starfsmanna“.    Þá tók fjármálaráðherra aftur tilmáls og benti á að Rúv. væri svo umfangsmikið vegna ríkisstyrksins að aðrir miðlar liðu fyrir það og hann nefndi auglýsingamarkaðinn sérstak- lega í því sambandi.    Þessi umræða er mjög athygl-isverð og henni hljóta að fylgja aðgerðir í samræmi við sláandi lýs- ingar á stöðu einkareknu miðlanna í skugga Rúv. Bergþór Ólason Einkarekstur í skugga ríkisins STAKSTEINAR Bjarni Benediktsson Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Samfylkingin vill ráðast í stórtækar aðgerðir til að fjölga störfum, en flokkurinn kynnti í gær efna- hagsstefnu sína fyrir næsta ár, sem ber nafnið Ábyrga leiðin. Með henni er stefnt að því að skapa um 5-7.000 ný störf og minnka þannig atvinnuleysi um allt að þriðjung. Verðmiðinn er sagður 80 millj- arðar króna, en að teknu tilliti til aukinna skatt- tekna og lægri útgjalda til atvinnuleysistrygginga yrði nettókostnaður ríkissjóðs um 50 milljarðar. Flokkurinn vill m.a. ráðast í atvinnuskapandi skattalækkanir fyrir einstaklinga og smærri fyrir- tæki, samhliða því að hækka bætur atvinnuleysis- og almannatrygginga og létta undir með sveitar- félögum. Lagt er til að fyrirtækjum verði veittur 2 milljóna afsláttur af tryggingagjaldi á næsta ári. Með því félli gjaldið í raun niður hjá einyrkjum og smáfyrirtækjum. Í áætluninni er einnig lagt til að starfsmönnum í almannaþjónustu verði fjölgað. Fram kom í máli Loga Einarssonar, formanns Samfylkingarinnar, að stöðugildum hjá ríkinu hefði fækkað um 1.000 á síðustu tíu árum, á sama tíma og landsmönnum hefur fjölgað um 50.000. Nánari upplýsingar eru á vef flokksins. Telja aðgerðir skapa 5-7.000 störf  Samfylkingin kynnti efnahagsstefnu Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Kynnti stefnu Logi Einarsson, formaður Sam- fylkingarinnar, kynnir efnahagsstefnu flokksins. Nýleg sýnataka Umhverfisstofn- unar leiddi í ljós að nokkrar teg- undir lyfjaleifa var að finna í mæl- anlegum styrk í Kópavogslæk og Tjörninni í Reykjavík. Umhverfisstofnun hefur staðið fyrir sýnatökum í vatni í þeim til- gangi að kortleggja útbreiðslu efna sem talin eru ógn við vatna- umhverfi í Evrópu, segir í tilkynn- ingu. Sýni voru tekin í hafinu við Klettagarða, í Tjörninni í Reykja- vík og í Kópavogslæk. Um er að ræða efni sem eru á sérstökum vaktlista Evrópusambandsins, sem hefur m.a. að geyma lyfjaleifar, kynhormón og varnarefni. Að auki var kannað hvort hér á landi fynd- ust lyfjaleifar sem eru á sérstökum vaktlista í Svíþjóð. Helstu niðurstöður mælinganna eru að í sýnunum var að finna þrjú efni af 16 á vaktlista Evrópusam- bandsins. Að auki fannst kynhorm- ónið estrógen í öllum sýnunum sem voru tekin. Af þeim efnum sem eru á sænska vaktlistanum fundust níu efni í mælanlegum styrk. Lyfjaleifar í Kópavogs- læk og Tjörninni Morgunblaðið/Ómar Kópavogslækur Mælingar sýndu leifar af lyfjum í læknum. Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is Tímapantanir í síma 533 1320 Við tökumvel ámóti ykkur í Vegmúla2 TILBOÐ 20% afslátturá augnlyftingu í október NÝJUNG Augnlyfting Í boði á Íslandi í fyrsta sinn Nýogbyltingarkenndmeðferð semer frábær fyrir þá semvilja láta lyfta augnlokum semeru farin að síga. Meðferðinamáeinnig framkvæma til að þétta slappa húð undir augumog til að grynnka hrukkur og fínar línur á augnsvæði. Áhudfegrun.is máfinna upplýsingar umfleiri tilboð!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.