Morgunblaðið - 09.10.2020, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 09.10.2020, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 2020 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Þingsályktunartillaga um að heimila sveitarfélögum að innheimta um- hverfisgjöld hefur verið lögð fram á Alþingi. Lagt er til að samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra í samráði við umhverfis- og auðlindaráðherra verði falið að meta hvort og hvernig sé unnt að veita sveitar- félögum heimild til að innheimta slík gjöld. Ráð- herra skili Al- þingi skýrslu um málið á vorþingi 2021. Flutnings- menn eru Ólafur Þór Gunnarsson og Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir. Þetta er í sjötta sinn sem sam- bærileg þingsályktunartillaga er lögð fram. Það var fyrst gert 2010- 2011. Tillögurnar hafa ekki verið af- greiddar. Ólafur var spurður hvort hann gerði sér vonir um að það færi öðru vísi nú? „Ég veit það ekki en umræðan um umhverfismál er orðin miklu þrosk- aðri en hún var. Mín hugsun er fyrst og fremst að fá umræðu um að sveit- arfélögin verða að geta tekið á um- hverfismálum til að draga úr kolefn- isspori. Væntanlega verður þeim í sjálfsvald sett hvort þau nota til þess jákvæða hvata, sem ég tel skynsamlegast, eða fara aðrar leið- ir,“ sagði Ólafur. Jákvæðir hvatar geta t.d. verið að heimili sem eiga einn bíl fái frítt í bílastæði eða aðrar ívilnanir. Ólafur segir að ástæða þess að hann leggur fram þingsályktunartil- lögu en ekki lagafrumvarp sé að skoða þurfi marga fleti á málinu, ekki síst gagnvart þeim sem verða að nota bíla. Það er töluverður hóp- ur og taka verður sérstakt tillit til slíkra. Nái til mengandi starfsemi Í greinargerð með tillögunni bein- ist athyglin talsvert að bílum en Ólafur segir að tillagan snúist um einnig um aðra mengandi starfsemi innan sveitarfélaganna. Nú hafi sveitarfélögin ekki heimildir sam- kvæmt lögum til að taka umhverf- isgjöld af slíkri starfsemi. En er ekki verið að höggva í sama knérunn varðandi bíleigendur, er ekki nóg sem þeir þurfa að borga? „Þetta þarf alls ekki að vera í formi gjalda heldur alveg eins í formi ívilnana. Þannig væri hægt að fá fólk til að hugsa um hvort það þarf að eiga bíl númer tvö. Hugs- unin með tillöguflutningnum er að koma þessu inn í umræðuna.“ Ólafur segir að bílaumferð og sú mengun sem hún veldur snerti sveitarfélögin einna mest. Nú hafi sveitarfélögin engar tekjur af bif- reiðagjaldi. Þau hafa heimild til að rukka fyrir bílastæði og notfæra sum sér það en önnur ekki. Ólafur segir að flest sveitarfélög geri nú ráð fyrir því í skipulagi að það þurfi þrjú bílastæði fyrir hvern bíl í sveitarfélaginu. Það krefst mikillar landnotkunar og er kostnaðarsamt. Sveitarfélögin fá það ekki bætt nema helst í gatnagerðargjöldum. Þau eiga að fara í að gera götur en eru ekki til að mæta öðrum þáttum sem valda kostnaði, segir Ólafur. Umhverfisgjöld í sjötta sinn  Þingsályktunartillaga um að sveitarfélög geti lagt umhverfisgjöld á mengandi starfsemi  Litið til bílaeignar, notkunar á efnum og umhverfisáhrifa Morgunblaðið/Ómar Umferð Sveitarfélögin skortir tæki til að taka á mengandi þáttum, að mati flutningsmanns þingsályktunartillögu. Ólafur Þór Gunnarsson pinnamatur Næst þegar þið þurfið pinnamat, smurt brauð eða tertur fyrir útskriftina eða annan mannfagnað, hafðu þá samband og fáðu tilboð í sal okkar og veitingarnar þínar. Pinna- og tapasréttir eru afgreiddir á einnota fötum, tilbúið fyrir veisluborðið Fagnaðir Hólshraun 3 · 220 Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is Veislur eru okkar list! Bjóðum uppá fjölda tegundapinnamats og tapasrétta Sjá verð og verðdæmi á heimasíðu okkar www.veislulist.is Icelandair Group hefur ákveðið að senda fjórar Boeing 757-200-vélar úr flota sínum í niðurrif. Verður það framkvæmt hér á landi og í Banda- ríkjunum. Vélarnar sem rifnar verða voru smíðaðar árið 1991 og 1992. Þá hefur Icelandair selt þrjár sams konar vélar úr flotanum, tvær smíð- aðar 1994 og eina sem smíðuð var ár- ið 2000. Sú yngsta þeirra komst í eigu Icelandair árið 2011 en hinar á árabilinu 2003-2005. Eftir þessar breytingar á flota fé- lagsins verða elstu vélarnar eftir sem áður þær sem smíðaðar voru 1991 og 1994. Því verða elstu vélar flotans 29 ára gamlar. Á síðasta ári veðsetti Icelandair Group 10 skrokka Boeing 757-véla í eigu fé- lagsins í tengslum við lántöku hjá Landsbankanum sem hljóðaði upp á 80 milljónir dollara. Samkvæmt upp- lýsingum frá félaginu var engin þeirra véla sem nú hverfa úr flota fé- lagsins veðsett bankanum. Morgunblaðið/Eggert Boeing Icelandair notast að mestu við 757-200-vélar í flota sínum. Þó eru þar einnig 757-300- og 767- breiðþotur og 737-MAX-vélar. Elstu vél- arnar í flot- anum 29 ára

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.